Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2005, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2005
Sport r»v
MarkMessier
hættur
Kanadíski íshokkíkappmn
Mark Messier, sem er einn besti
leikmaður sem leikið hefur í
N1 IL-deildinni í Bandaríkjunum
er hættur. Messier lék í 25 ár sem
atvinnumaður og vatm Stanley-
hikarinn, sem eru sigur-
launin í NHL-deildinni, .,í
sex sinnum alls. Messier
var upp á sitt besta ÉEjjFTE-
á níunda áratugn- ,/ j. 'jSL,
um þegar hann lék fc **
með Wayne Gretzky '{I
hjá Edinonton og V
voru þeir án nokk-
urs vafa skærustu wu„
stjörnur deildar- ÉÉHHNHMl
innar á þeini tíma.
Messier iék 1756 I . ■■ „
leiki á ferli sínum
og er næstmarka-
hæsti leikmaður í "
sögu deildarlnnar. "
Allardyce
tilbiiiim a
styraEngli
Grikkinn Steiios Giannako-
poulos segir knattspyrnustjóra
sinn hjá Bolton, Sani Allardyee,
vera rétta manninn til þess að
stýra Iiði Engiands í heimsmeist-
arakeppnitmi. „Ég vona að Allar-
dyce fari ekki neitt þvi hann er
besti knattspyrnustjðri sem (5g iief
haft á mfnum i'erli. En ég er sann-
fa'iöur um að hann er tilbiíinn til
þess að stjórna sterku landsliði
eins og því enska. Það eru góðir
leikmenn í öllum stööum og með
hans stjórnunarhæflleikum getur
liöið ekki ann-
fað en náð góð-
um ái.ingri."
Sam Aliardyce
w , sjálfur segist
f ætla að ein-
beita sér að
þvf að ná góð-
um árangri
með Bolton.
„Auövitað er
það draumur
> allra enskra
þjálfara að stýra
landsliðinu en
ég er ánægður
lijá Bolton og
j* vonandi get ég
'jj hfildið áfram að
standa mig vei hér.“
Kaká getur
orðið sá besti
Eftir að hafa horfl á Brasilfu-
manninn Kaká fara á kostum með
AC Milan gegn Fenerhahce í
Meistaradeild Evrópu sagðist Car-
lo Ancelotti, knattspymustjóri AC
Milan, sannfærður um að Kaká
hefði allíi buröi tii þess að veröa
besti leikmaður í lieimlnUm. „Ég
hef fylgst með Kaká í nokkur ár og
eftir þvf sein tíminn líður verð ég
alltaf sannfærðari um að hann
verði besti knaltspyrnumaður í
heiminum innan fárra ára. Hæfi-
leikar hans til þess að stjóma
leikjum eru meðfæddir og með
mikilii æfingu gctur hann orðið
enn lietri. Þessi frammistaða hans
gegn Fenerbahce var mögnuð,
senniiega besta frammistaða sem
ég hef séö hjá ein-
stökumleik-
manniíMeist-
aradeildinni.
; Hann var liti
um allan völl
frá fyrstu
míiiútu
■ ustu,'
Breiðablik er með besta kvennalið landsins enda tvöfaldir meistarar. Sá sem á
hvað mestan þátt í titlunum tveimur er knattspyrnuáhugamönnum algjörlega
ókunnugur enda sagði enginn frá því að hann væri þjálfari liðsins.
Þann 9. maí síðastliðinn gerði meistaraflokksráð Breiðabliks
samning við Björn Kristinn Björnsson um að verða aðalþjálfari
liðsins ásamt Úlfari Hinrikssyni. Tímasetning ráðningar Björns
vekur verulega athygli enda aðeins átta dögum fyrir fyrsta leik í
fslandsmóti. Það sem kannski vekur enn meiri athygli er að eng-
inn hjá Breiðablik sá ástæðu til þess að greina frá ráðningu
Björns og Úlfar hefur heldur ekki verið að deila sviðsljósinu með
manninum sem er þjálfari liðsins til jafns við hann að því er for-
maður meistaraflokksráðs félagsins segir.
Ástæða ráðningar Bjöms er sam-
kvæmt heimildum DV Sports sú að
illa gekk hjá Breiðabliki á undirbún-
ingstímabilinu og stjórn meistara-
flokksráðs treysti ekki Úlfari Hin-
rikssyni til þess að klára sumarið
upp á eigin spýtur. Því var ákveðið
að ráða Björn með honum. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins fór þessi
ákvörðun meistaraflokksráðs ekki
sérstaklega vel í Úlfar en hann sætti
sig þó við hana. Heimildir blaðsins
herma enn fremur að um tíma hafi
komið til tals að reka Úlfar en ekkert
varð af því.
Mikil leynd
Leyndin á bak við ráðningu
Björns er með hreinum ólíkindum
en svo leynt fór meistaraflokksráðið
með ráðninguna að þeir tilkynntu
ekki einu sinni um hana á heima-
síðu félagsins, breidablik.is. Skal því
„Leyndin á bak við
ráðningu Björns er
með hreinum ólíkind-
um en svo ieynt fór
meistarafíokksráðið
með ráðninguna að
þeir tilkynntu ekki
einu sinni um hana á
heimasíðu félagsins,
breidablik.is."
í raun engan undra að ekki hafi
neins staðar komið fram að tveir
þjálfarar eru við stjórnvölinn hjá lið-
inu.
Einokaði sviðsljósið Úlfar Hinriksson baðaði sig ísviðsljósinu í allt sumar án þess að
minnast einu sinni á þátt félaga slns, Björns Björnssonar. Þessi mynd er táknræn fyrir ástandið
- Úlfar erjolleraður“ en Björn stendur á kantinum, hógvær sem fyrr.
Hver er sköllótti maðurinn?
„Ég hef furðað mig mikið á því að
enginn fjölmiðill hafi spurt sig að því
hver sköllótti maðurinn sé sem hef-
ur setið við hliðina á Úlfari í allt
sumar. Það er einnig þjálfari
liðsins," sagði Karl Brynj-
ólfsson, formaður
meistaraflokksráðs, við
DV Sport í gær en hann
ákvað loksins að greina
ffá því í gær að
hann hefði ráð-
ið annan að-
alþjálfara
fyrir sumar-
ið.
„Úlfar
Hinriks-
son er
ekki einn
og hefur
ekki verið
það síðan
9. maí.
Björn er ráð-
inn sem þjálf-
ari við hlið Úlf-
ars og þeir eru
jafnir. Þetta eru
okkar Ásgeir og
Logi," sagði
Karl, en af
hveiju til-
kynnti hann
aldrei um ráðn-
ingu „Loga"? „Ég skal alveg viður-
kenna að kannski stóðum
við okkur ekki þar. Þetta
var ljóst fyrir okkur all-
an tímann að svona
var staðan."
Það er óhætt að
segja að þessi tíð-
indi hafi komið
blaðamanni
verulega á óvart
enda ekki á
hverjum degi
sem þjálfara
tekst að vinna
tvöfalt á ís-
landi án þess
að nokkur viti
afþvífyrirutan
fámenna klíku
Huldumaður Björn Kristinn
Björnsson er sigursælasti þjálfari
landsins en enginn veit af því.
innan félagsins. Við settum okkur
því í samband við Björn sjálfan og
spurðum hann út í málið. Hvemig
það væri að vera huldumaður í ís-
lenska fótboltanum.
Hógvær
„Þetta er allt í lagi mín vegna. Ég
er að vinna með góðum manni og er
alveg sama þótt kastljósið sé ekki á
mér," sagði Björn af einstakri hóg-
værð en finnst honum ekkert fúlt að
fá ekki hrós út á við fyrir sína vinnu?
„Ég fæ fullt af hrósi. Allir í knatt-
spyrnuheiminum vita að ég er þjálf-
ari liðsins þótt almenningur viti það
kannski ekki. Ég sef alveg yfir þessu.
Ég sá enga ástæðu til þess að auglýsa
sérstaldega að ég væri þjálfari liðs-
ins. Kannski hefði átt að benda á
þessa staðreynd en mér líður ágæt-
lega þótt ég sé ekki að baða mig í
sviðsljósinu," sagði Bjöm Kristinn
Björnsson - huldumaðurinn í ís-
lenska boltanum. henry@dv.is
Alvarlegur dómaraskortur framundan í íslenskum handbolta
Gamlar dómarakempur dregnar á flot
„Það er ljóst að ekkert má út af
bregða f vetur í dómaramálum
handboltans. Það fækkar væntan-
lega um eitt par, endurnýjunin er lít-
il og líklega þurfum við að draga
gamlar dómarakempur á flot til að
brúa bilið," sagði Hákon B. Sigur-
jónsson, formaður dómaranefndar
HSÍ í viðtali við DV.
Líklega verða 13 dómarapör að
störfum í efstu deildum karla og
kvenna og fækkar um eitt frá síðasta
vetri. Eitt reyndasta og besta dóm-
arapar landsins, Guðjón L. Sigurðs-
son og Ólafur Haraldsson, hætti
störfum í vor og verður skarð þeirra
vandfyllt.
Að sögn Hákons þreyta 30 til 60
manns dómaraprófin á hverju ári en
það telst til tíðinda ef einhver þeirra
skilar sér síðar meir til dómgæslu í
úrvalsdeild. „Sérstaklega hef ég
áhyggur af næsta ári vegna nýs dómurum sem skilar sér illa.
keppnisfyrirkomulags ef ekki verður Ábyrgðin hvílir fyrst og fremst hjá
meiri fjölgun í stéttinni. Við erum aðÚdarfélögunum," segir Hákon.
með töluverðan efnivið af yngri Samkvæmt nýrri gjaldskrá HSÍ
fær dómari 8.300 kr. fyrir hvem
dæmdan leik í efstu deild karla og
kvenna. í úrslitakeppninni í fyrravet-
ur hækkaði upphæðin í 14.200 kr. Þar
sem úrslitakeppni handboltans heyr-
ir sögunni til má segja að dómarar
verði fyrir verulegri kjararýrnum.
Hákon segir miður hversu nei-
kvætt andrúmsloft er í garð hand-
boltadómara á íslandi og það hafi
væntanlega sitt að segja.
Á morgun er haustfundur dóm-
ara þar sem farið verður yfir breyt-
ingar á dómarareglum. Stærsta
breytingin felur í sér að þegar dóm-
arar flauta á brot þar sem sóknar-
maður stígur á markteig, er dæmt
útkast en ekki aukakast. Þá er ekki
lengur nauðsynlegt að stöðva
leikklukku í vítaköstum og valdsvið
tímavarðar á ritaraborði mun
aukast.