Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2005, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Sjónvarpsstjörnurnar Logi Bergmann Eiðsson og Svanhildur Hólm slógu í gegn á
dansleik með Sálinni hans Jóns míns á Nasa á laugardagskvöldið þegar þau stukku
upp á svið og tóku lagið með Stefáni Hilmarssyni. Uppákoman var óvænt og komu
þau hjón bæði hljómsveitinni og öðrum gestum gjörsamlega á óvart.
Atriðið var óundirbúið og kom
hljómsveitarmeðlimum og gestum
staðarins í opna skjöldu. En Logi
Bergmann og Svanhildur sviku
ekki frekar en fyrri daginn og slógu
í gegn.
Þokkalegt par
„Þetta var skemmtilegt uppbrot
en alls ekki planað," segir Stefán
Hilmarsson, söngvari Sálarinnar,
um atvikið en hann er alls ekki
óvanur þvf að fólk slæðist upp á
sviðið hjá hljóm-
sveitinni og
vilji syngja
-'S með.
En
Salin Lifandi goð-
sögn sem fékk
óvænta aðstoð við
tónlistarflutning á
laugardagskvöldið.
Hassá
Hrauninu
Fjörutíu grömm af hassi
fundust við skyndileit í að-
stöðu fanga á Litla-Hrauni í
síðustu viku. Rannsókn
leiddi í ljós að gestur
fangans hefði fært honum
hassið þegar hann kom í
heimsókn. Að sögn Þor-
gríms Óla Sigurðssonar hjá
Lögreglunni á Selfossi er
nokkuð um að fangar fái
fíkniefni inn með heim-
sóknum. „Það var töluvert
um þetta í vor, en hefur
ekki verið mikið undanfar-
ið. Fangaverðir gera
stikkpmfur einstaka sinn-
um og þá kemur svona lag-
að í ljós," segir Þorgrímur.
Ólöglegir
stripparar
„Við erum músíkalskt par"
segir Svanhildur innt eftir
atburðum næturinnar.
Lögreglustjórinn
í Reykjavík hefur
stefnt Hlyni Vigfús-
syni, eiganda súlu-
staðarins Bóhem við
Grensásveg, fyrir að
hafa í apríl ráðið til
sín í vinnu þrjá
tékkneska strippara án þess
að hafa fengið fyrir þær til-
skilin atvinnuleyfi né til-
kynnt Útlendingastofnun
um að stúlkurnar hefðu
hafið störf hjá honum.
Stúlkurnar dönsuðu á Bó-
hem í eina viku áður en Út-
lendingastofnun hlutaðist
til um málið. Hlynur segir
tékkneska strippara ekki
þurfa atvinnuleyfi og neitar
sök.
Eldur í
Öldutúnsskóla
Eldur kom upp í
Öldutúnsskóla í fyrrinótt.
Slökkviliðið fékk tilkynn-
ingu um að eldur væri í
gámi við skólann en þegar
það kom á staðinn var sá
eldur slokknaður. Slökkvi-
liðsmenn veittu því hins
vegar athygli að bmnavam-
akerfið var í gangi og þegar
að var gáð reyndist eldur
loga í tölvustofu skólans.
Reykur og sót barst í nær-
liggjandi stofur en þær
vom reykræstar og vonast
til að kennsla verði með
eðlilegum hætti í dag. Elds-
upptök em ókunn en gmn-
ur leikur á fkveikju.
aldrei hefur frægara fólk tekið slag-
inn og kastað sér í faðm hljóm-
sveitarinnar á sviði. „Þetta er
þokkalegt par og hlýtur að hafa
slegið í gegn,“ segir Stefán Hilm-
arsson.
Söngur hjónanna, sem gengu í
heilagt hjónaband 16. júní síðast-
liðinn, var góð viðbót við mikið
stuð sem ríkti á Sálarballinu.
Svanhildur söng tvisvar
Svanhildur Hólm lét sér ekki
nægja að fara einu sinni á sviðið
með Loga sínum heldur stökk hún
aftur upp og söng enn meira.
Hvorki lög né textar þvældust fyrir
henni enda Svanhildur mikill að-
dáandi Sálarinnar og segist ekki
geta gert upp á milli allra þeirra
frábæru laga sem komið hafa úr
smiðju sveitarinnar.
Músíkalskt par
„Við erum músíkalskt par,“ seg-
ir Svanhildur innt eftir atburðum
næturinnar. „Þetta var mjög gam-
an enda hljómsveitin frábær og við
Logi skemmtum okkur vel.“
Söngur Loga og Svanhildar á
Nasa vakti mikla athygli annarra
gesta á dansleiknum. Eins og góð
Það var fjör á Sálarballi á Nasa við Austurvöll á laugardagskvöld-
ið. Stútfullur staður af dansandi og syngjandi fólki sem tók und-
ir með Stefáni Hilmarssyni í hverjum Sálarsmellinum á fætur
öðrum. Hápunkti náði ballið þó þegar sjónvarpsstjörnurnar
Logi Bergmann Eiðsson og Svanhildur Hólm Valsdóttir stukku
upp á svið og tóku lagið með hljómsveitinni.
Nasa við Austurvöll Vettvangur óvæntra
atburða um síðustu helgi.
ábót á girnilegan og vel framreidd-
an rétt þar sem saman fer gott
bragð og útlit í takt. Logi og Svan-
hildur áttu kvöldið - þetta var
þeirra stund sem þau deildu með
öðrum gestum á Sálarballlinu á
Nasa.
Maðkar í mysu Mosfellinga
&
Svarthöfði er mikill unnandi
trjáræktar. Það var ekki síst vegna
þess sem Svarthöfði var mikill að-
dáandi Vigdísar Finnbogadóttur í
forsetastóli en hún var manna
duglegust við að gróðursetja tré og
leið vart sú vika í forsetatíð hennar
að hún var ekki mynduð með garð-
yrkjuhanskana að planta trjám.
Það er því óhætt að segja að
Svarthöfða hafi brugðið í brún
þegar hann opnaði DV í gær og sá
sér til mikillar hrellingar að millj-
ónasta tré Skógræktarfélags Mos-
fellsbæjar hafði verið stolið. Svart-
Hvernig hefur þú það?
Svarthöfði
höfði hefur stoltur fylgst með upp-
byggingu skógræktarfélagsins í
Hamrahlíðarskógi á undanförnum
árum og var sjálfur viðstaddur
þegar hið margfræga milljónasta
tré var gróðursett. Það var hátíðleg
athöfn og Mosfellingum til mikils
sóma.
Svarthöfði skilur hvers konar
reiðarslag það er fyrir Mosfellinga
að horfa á eftir milljónasta trénu úr
Ég hefþaö bara mjög gott. Ég er aö smíða nýtt klósett heima hjá mér og við stelpurnar í
Trabant erum byrjaðar að smíða efni I nýja plötu," segir Þorvaldur H. Gröndal, trommari
ÍTrabant.„Þá er meiningin aö fara til til Rotterdam um helgina til tónleikahalds og til
Englands í tíu tónleika túr í lok október. Við verðum þvímiður ekki meðá Airwaves i
þetta skiptið vegna þessa túrs en við erum búnir að skemmta okkursvo vel síðustu
Airwaves að viðákváðum að spila Istaðinn útiþetta skiptið."
bænum. Tréð
er tákn fyrir
það blóð, þann
svita og þau tár
sem
menn Skóg-
ræktarfélags
Mosfellsbæjar
hafa lagt í
skóginn. Svart-
höfði, sem er
uppalinn í
Mosfellsbæ,
trúir því varla
hvernig komið
er fyrir þessum gömlu heimkynn-
um sínum. Svarthöfði trúir því
varla að ódæðismennirnir séu úr
Mosfellsbæ enda vita allir heima-
menn hvílík drottinsvik það eru að
stela þessu tré.
Svarthöfði ætlar að nota tæki-
færið og biðla til glæpamannanna
að skila trénu á sinn stað. Þetta tré
stendur fyrir mikið átak sem unnið
hefur verið undanfarin ár og það er
sorglegt að pörupiltar eða -stúlkur
sjá sér hag í því að eyðileggja þetta
frábæra starf. Ef trénu verður ekki
skilað mun skógrækt í Mosfellsbæ
aldrei bíða þess bætur. Það væri
synd!
Svarthöföi
sungu