Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2005, Síða 10
70 ÞRIÐJUDAGUR20. SEPTEMBER 2005
Fréttir DV
Óskar Jónasson
Óskar þykir gæddur snilligáfu
og þá sérstaklega í
húmorstengdum efnum,
vandvirkur og notalegur.
Óskar er samt eins og
margir grínistar frekar lok-
aður persónuleiki, minnir
stundum á trúðinn sem
grætur.
„Óskar er mjög flinkur og vand-
virkur maður. Það beinlfnis
neista afhonum
notalegheitin. En
það er rosalega
erfitt að finna
galla á Óskari...
hann mætti
kannski fatta
brandarana mlna hraðar."
Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona.
„Hann er snillingur maðurinn.
Frábær húmoristi. Hann er af-
skaplega þægilegur I um-
gengni en strang-
ur þegar að kem-
ur. Þótt ég hafi
unnið mikið með
honum hefég ekki
komið auga á ein-
hverja annmarka.
Hann er dáldið mikið vandvirk-
ur sem þýðir að það tekur lang-
an tlma að taka hvern skets, en
það er bæði galli og kostur
reyndar."
Kjartan Guðjónsson leikari.
„Hann er alveg Ijómandi
skemmtilegur fýr og hefur
marga góða kosti og alveg
Ijómandi góða
næmni fyrir gríni.
Hann er afar lag-
hentur líka og ansi
útsjónarsamur
þegar kemur að þvi
að búa sér til snið-
uga hluti á heimili sinu. Ég er til
dæmis afskaplega hrifinn af
plnulitla klósettinu sem hann
keypti handa dóttur sinní, þótt
ég geti ómögulega notað það.
Hann á það til að vera dáldið
þver og þá hleypur einhver
pirringarskólastjóri I hann en
það rennur fljótt afhonum
samt."
Sigurjón Kjartansson lífskúnstner.
Óskar Jónasson er fæddur í Reykjavík 30.
júnl 1963. Hann hefur leikstýrtgaman-
þættinum Stelpunum á Stöð 2 með góð-
um árangri. Hann vann einnig til Eddu-
verðlauna fyrir besta sjónvarpsþáttinn,
Fóstbræður árið 1999, en þar kom hann
lika fram með eftirminnilegum hætti.
Byltingarkennd hugmynd. Gísli Marteinn Baldursson vill breyta Ingólfstorgi í
skautasvell. Hann sér fyrir sér rómantík á svellinu þar sem ástfangin pör skauta
kringum fallega skreytt jólatré undir harmónikkutónlist. Gísla er fullkomin alvara.
Hann telur borgarbúa kunna vel að meta hugmyndir sínar.
„Þetta gefur mannlífinu svo skemmtilegan svip. Og er auðvitað
góð hreyfing/' segir Gísli Marteinn Baldursson borgarstjórnar-
frambjóðandi um hina byltingarkenndu hugmynd sína að
breyta Ingólfstorgi í skautasvell að vetri til. Hann segist telja að
borgarbúar kunni vel að meta svona jákvæðar hugmyndir.
„Fyrir nokkrum árum sat ég í
menningarnefnd þar sem kom upp
sú hugmynd að leigja færanlegt
skautasvell frá Svíþjóð og nota á
vetrarhátíð. Ekkert varð úr þeirri
hugmynd en ég varð hrifinn. Vildi
ekki gefa þetta alveg upp á bátinn.
Síðan þá hef ég reynt að taka eftir
svona svæðum í borgum erlendis.
Enda gefa skautasvell mannlífinu
svo skemmtilegan svip og er auðvit-
að góð hreyfing," segir Gísli Mart-
einn.
Gnæfir yfir torginu
Kosningabaráttan milli Gísla
Marteins og Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar virðist komin á fullt skrið. Um
helgina opnaði Gísli kosningaskrif-
„Ég er bjartsýnn og
jákvæður. Þannig hef
ég verið alla ævi."
stofu sína, einmitt fyrir utan Ingólfs-
torg, þar sem mynd af Gísla gnæfir
yfir torginu. Segja vegfarendur að
þeir finni fyrir auknu öryggi þar sem
vökul augu Gísla fylgjast með torg-
inu; sem einhvern daginn kann að
verða skautasvell, komist Gísli
Marteinn til valda.
Vill gosbrunn á Lækjartorg
Auk þess að berjast fyrir skauta-
svellinu hefur Gísli Marteinn tekið
jákvætt í það að byggja gosbrunn á
Lækjartorgi fyrir utan Héraðsdóm
Reykjavíkur. Hefur torgið hingað til
staðið eyðilegt þegar kuldinn sverf-
ur að. Á sumrin er líf í kringum
kaffihúsið en fæstir yrðu trúlega
ósáttir við að einmana pylsuvagnar
véku fyrir fallegum gosbrunni líkt
og þeim sem prýða torgin í heims-
borgunum.
„Ég er bjartsýnn og jákvæður.
Þannig hef ég verið alla ævi," segir
Gísli Marteinn.
Jákvæð barátta
„Ég vil að borgarmálin verði já-
kvæð og skemmtileg í kosningunum
í vor. Það kunna borgarbúar að
meta," bætir Gísli við, óhræddur við
að lofa borgarbúum skautasvelli.
Hann muni standa við stóru orðin.
„Þegar skautasvellið kemur mun
það gefa þessu svæði lit og líf," segir
Gísli og þótt hann segi það ekki
beint út má heyra af orðum hans að
rómantíkin svífur yfir vötnum.
Það er því aldrei að vita nema
ástin muni kvikna á skautasvellinu á
Ingólfstorgi.
simon@dv.is
Gísli Marteinn Bald-
ursson Kemur með
ferskar hugmyndir inni
borgarmálin.
Skautasvellið
byltingarkennda
Gísli Marteinn vill
breyta Ingólfstorgi.
Auglýsingasímar DV
eru 550 5833
550 5811 8217514
Netfang okkar er
aualvsinaar@dv.is
Hart verður barist meðal ungliða í Sjálfstæðisflokknum
Bolli ætlar sér Heimdall
Ungstirnið Bolli Thoroddsen
mun bjóða sig aftur fram sem for-
maður Heimdallar. Aðalfundur
Heimdallar verður
haldinn þann 27.
september. I yfir-
lýsingu frá Bolla
segist hann leggja
áherslu á að losa
borgarbúa undan
valdaþreytu, eyðslu-
og skuldaáráttu
vinstri
manna. Eng-
inn hefur lýst
framboði
gegn Bolla.
í tilefni
af þessari
ákvörðun
hefur Bolli
opnað
kosninga-
Bolli Thoroddsen, for-
maður Heimdallar Býð-
ur sig aftur fram sem for-
maðurog ætlar í prófkjör í
borgarstjórninni.
skrifstofu ásamt vini sínum Borgari
Þór Einarssyni sem býður sig fram
sem formaður SUS. Saman æda þeir
að vinna kosningarnar. Hvor á
sfnum vígstöðvunum.
„Hægt er að fullyrða að engin
stjórnmálahreyfing ungs fólks hér á
landi hefur í dag á að skipa jafn-
mörgum virkum félagsmönnum,"
segir Bolli í yfirlýsingu sinni.
Undanfarnar vikur hefur staðið
yfir skipun á fulltrúum á aðalfundi
Heimdallar og SUS. Bolli segir
breyttar áherslur vera í skipun full-
trúa. „Þeir sem eru virkir í starfmu fá
forgang í að verða fulltrúar," segir
Bolli.
Enn hefur enginn lýst yfir fram-
boði gegn Bolla. Oft er hart tekist á í
ungliðapólitíkinni. Samkvæmt
heimildum DV má fastlega búast við
mótframboði og hafa bæði Heiðrún
Lind Marteinsdóttir, kosningastjóri
Gísla Marteins Baldurssonar, og
Skapti Öm Ólafsson, sem vinnur fýr-
ir framboð Þorbjargar Helgu Vigfús-
dóttir, verið orðuð við það hlutverk.
simon@dv.is