Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2005, Side 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 2005 11
Óshlíðin enn
áferð
Óshlíðin milli Bolungar-
víkur og Hnífsdals er komin
í fréttirnar á ný eftir mikið
grjóthrun síðasliðinn laug-
ardag. DV greindi frá því
um mánaðamótin að íbúar
í Bolungarvík eru orðnir
langþreyttir á ástandinu en
vegurinn um Óshlíð er
þeirra eina samgönguleið.
Þar er grjóthrun mjög al-
gengt en sérfræðingar telja
að Óshlíðin sé að því kom-
in að renna í sjóinn en það
gæti haft í för með sér
mikla flóðbylgju sem hefði
alvarleg áhrif á nærliggj-
andi byggðarlög.
Vegfarendur
hræddir
„Það er ekki hægt að
búa við þetta lengur og
vegfarendur eru logandi
hræddir," segir Jónas Guð-
mundsson, sýslumaður í
Bolungarvík, en hann var á
leið á fund um málið hjá
Almannavörnum þegar DV
náði tali af honum. „Vegur-
inn um Óshlíð er okkar
eina samgönguleið því hér
er ekkert flug og engar
reglubundnar siglingar,"
segir Jónas sem hefur ekki
heyrt um neinar lausnir á
vandanum nema þær að
samgönguráðherra sé með-
vitaður um vandann og
málið sé í skoðun. „Þetta er
tímaspursmál og fólk er
hætt að fara um veginn
nema í brýnustu nauðsyn,"
segir Jónas sem vill að
lausn verði fundin á vand-
anum hið fyrsta.
Loksins lækk-
ar bensínverð
Olíurisamir þrír lækkuðu
allir verð á bensíni í gær.
Heimsmarkaðsverð hefur
farið lækkandi að undan-
fömu og því var loks komið
svigrúm fýrir lækkun, en
bensínverð hefur hækkað
mikið að undanfömu. Bens-
ínhtrinn lækkaði um tvær og
háha krónu en dísillítrinn
um tvær krónur. í dag er
heimsmarkaðsverð á olíu
um 63 Bandaríkjadahr hver
tunna en fór upp undir 70
dollara á tunnuna þegar
áhrifa fellybylsins Katrínar
gætti sem mest. í upphafl
árs kostaði tunnan hins veg-
ar aðeins 43 Bandaríkjadali.
Leikmenn annars flokks Víkings í knattspyrnu gerðu aðsúg að dómaranum Ólafi
Kjartanssyni eftir leik við KA á laugardaginn. Víkingar töldu óhemjuslaka frammi-
stöðu Ólafs hafa kostað þá sæti í B-deild. Dómarinn fékk á sig högg og svívirðingar
og þurfti að yfirgefa Víkina í lögreglufylgd. Þjálfari drengjanna Kristján F. Jónsson
fordæmir ekki framkomu drengjanna.
Á flótta ÓlafurKjart-
ansson, dómari leiksins
(fremst á myndinni), átti
fótum sínum fjörað
launa eftir leikinn.
Dómari þurfti lögreglufylgd
úr Víhinni eftir barsmfðar
Allt sauð upp úr eftir leik Víkings og KA í öðrum flokki í knatt-
spyrnu karla á laugardaginn. Leikurinn var síðari úrslitaleikur
liðanna um hvort liðið færi upp um deild. Víkingar sigruðu leik-
inn tvö núll en það nægði ekki. Dómarinn dæmdi af þeim tvö
mörk auk þess að hunsa dóma línuvarða og dæma KA-mönnum
í vil. Eftir leikinn réðust svo bæði stuðningsmenn og leikmenn
Víkings að dómaranum.
Sauðuppúr Eftir leikinn veittust leikmenn og stuðningsmenn Vikings að dómara leiksins.
„Um leið og flautað
varafþustu um tíu
drengir inn á völlinn
og ásamt stuðnings-
mönnum Víkings réð-
ust þeir að dómaran-
um sem fékk á sig
nokkurhögg."
Öm Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Víkings, hafði ekki heyrt af
málinu þegar blaðamaður DV talaði
við hann, enda nýkominn frá út-
löndum. Hann vildi ekki tjá sig um
málið að öðm leyti en að þetta væri
vissulega leiðinlegt mál.
„Aðstandendur drengjanna og
félagsins hjálpuðu okkur að hafa
hemil á þeirn," segir Kristján F. Jóns-
son, þjálfari annars flokks Víkings í
knattspyrnu karla. Eins og DV
greindi frá í gær veittust leikmenn
félagsins að dómara eftir leik við KA
síðastliðinn laugardag. Úrslit leiks-
ins gerðu það að verkum að KA-
menn fóru upp um deild en Víking-
ar sátu eftir með sárt ennið.
Ráðist að dómaranum
Það vom ekki aðeins leikmenn
félagsins sem veittust að dómara
heldur líka nokkrir stuðningsmenn.
„Mönnum blöskraði svo mikið dóm-
gæslan að það var alveg til skamm-
ar,“ segir Kristján um ástæðu þess
að allt sauð upp úr. Dómari leiksins
er sagður hafa átt mjög slakan leik,
dæmdi meðal annars tvö mörk af
Víkingum og hunsaði ítrekað dóma
línuvarðar.
Um leið og flautað var af þustu
um tíu drengir inn á völlinn og
ásamt stuðningsmönnum Víkings
réðust þeir að dómaranum sem fékk
á sig nokkur högg. Kristján þjálfari
Víkings minntist þó ekkert á það,
sagði bara að nokkur fúkyrði hafi
verið látin faha sem betur hefðu ver-
ið ósögð. Að öðru leyti gagnrýndi
hann ekki viðbrögð leikmanna
sinna.
Sjö rauð spjöld
Leikskýrsla leiksins gefur ýmsar
hugmyndir um hvað gekk á að
leikslokum. Dómarinn, Ólafur Kjart-
ansson sem dæmir fyrir KR, gaf átta
leikmönnum Víkings gult spjald í
leiknum og einum rautt auk þess
sem Kristján þjálfari fékk gult spjald.
Eftir að leiktíminn var búinn fengu
svo sex Víkingar í viðbót rauða
spjaldið.
Lögreglufylgd af vellinum
Eftir að hafa flúið inn í búnings-
klefa mátti Ólafur dómari dúsa þar í
eina tvo tíma með tvo ffleflda karl-
menn sem dyraverði sem pössuðu
upp á að tíu drengir næðu ekki tfl
hans. Markmið þeirra var skýrt; þeir
ætluðu að berja Ólaf í klessu. Þolin-
mæði drengjanna var meiri en Ólafs
sem lét kalla á lögreglu til að fylgja
sér út úr Vfldnni. Að sögn viðstaddra
var hann mjög skelkaður, enda þótt
dómarar séu ýmsu vanir hafl þetta
verið öllu meira en venjulega.
Sorglegt
Dómari leiksins, Ólafur Kjartans-
Hólpinn Ólafur komst loksins úr Vikinni eftir
að hafa falið sig inni i búningsklefa I tvo
tíma.
son sem dæmir fyrir KR, vildi ekki tjá
sig um atvikið: „Ég tjái mig ekki um
leiki," sagði hann og benti blaða-
manni á að ræða við KSÍ. Birkir
Sveinsson, mótastjóri KSÍ, sagði
málið sorglegt en gat að öðru leyti
lítið tjáð sig um atvikið eða viðbrögð
knattspyrnuforystunnar. „Þetta fer
sína hefðbundnu leið, dómari gefur
skýrslu og aganefnd tekur málið fyr-
ir. Ég veit svo ekki hver niðurstaða
hennar verður." En eru svona atvik
algeng? „Nei, sem betur fer ekki."
Acer CE-5330
5.0 Megaplxlar
2” LCD skjár
3 x Optical Zoom
4 x Digital zoom
Þyngd: 130 gr.
Taska fylgir
14.900-
Acer CS-5530
5.2 Mogaplxiar
2.5” LCD skjár
3 x Optical Zoom
4 x Digltal zoom
64mb mlnniskort
Taska fylgir
23.900-
Acer CR-6530
6.3 Megaplxlar
2.5” LCD skjár
3 x Optical Zoom
4.4 x Digital zoom
64mb minnlskort
Taska fylgir
24.900-
Hvetur fólk til dáða
svan)-
fr SIOUMÚLA 37 - SIIV1I 510 6000 - WWW.SVAR.IS