Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV Ólína klagar Finnboga Ólína Þorvarðardóttir hefur farið fram á að út- varpsráð fjalli um fréttaflutning Finn- boga Hermannsson- ar, forstöðumanns Svæðisútvarps Vest- í'jarða, um málefni Menntaskólans á ísa- firði. í bréfi til út- varpsráðs segir Ólína að Finnbogi hafi ítrekað farið út yfir mörk hlutleysis og óhlutdrægni í málflutn- ingi sínum sem oftar en ekki hafi verið beint gegn skólameistara Menntaskól- ans á ísafirði. Finnbogi seg- ist hafa leitað eftir sjónar- miðum Ólínu á meðan hún vildi tala við hann og vísar ásökunum hennar á bug. Saurgerlar yfirviðmiðun- armörkum Heilbrigðiseftirlit Hafn- arfjarðar og Kópavogssvæð- is hefur gefið út nýjar tölur um saurmengun í lækjum og vötnum á sínu svæði. Mengun var mæld í júní og þá var hún langt yfir mörk- um. í mælingum núna kemur í ljós að ástandið hefur lítið lagast en núna mældust 160 þúsund saur- kólígerlar og 2000 saur- kokkar í 100 ml vatns sem telst óviðunandi. Gústaf Jónsson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Garða- bæjar, segir mjög erfitt að ráða við þetta og segir ástand verra núna þar sem minna vatn sé í lækjum en venjulega. Uppselt á Antony Miðar á tónleika Antony and the Johnsons seldust upp á sjö mínútum í gær. Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni 10. desember en þetta er í annað sinn sem Antony og hljómsveit heimsækja ís- land. Það er því ljóst að hróður Antonys hefur vaxið ört hér á landi sem annars staðar því ekki var sami hraði á miðasöl- unni þá eins og nú. Síðari helmingur tónleikaferða- lags Antonys um heiminn er að hefjast um þessar mundir en það var ósk Antonys að ljúka tónleika- ferðalaginu hér á landi. Jóhanna Vilhjálmsdóttir lifir á 10 þúsund krónum á mánuði. Maður sem ekki vill láta nafns síns getið tók frétt um málið nærri sér og ákvað að gefa Jóhönnu 15 þús- und krónur í gjöf. Með gjöfinni hefur maðurinn meira en tvöfaldað þá upphæð sem Jóhanna hefur til ráðstöfunar mánaðarlega. Fær peninganjöf irá Jóhanna VII- I hjálmsdóttir Tek- j urvið 15 þúsund ikrónum úrhendi I mannsins. Jóhanna er óvinnufær vegna þunglyndis og er á framfæri félags- þjónustunnar. Hún þarf að sjá sér og tveggja ára syni sínum far- borða á tíu þúsund krónum á mánuði. Jóhanna segir peninga- gjöf mannsins bjarga mánuðinum fyrir sér og vill koma þakklæti á framfæri til hans. Peninginn ætlar hún að nota í mat og strætókort. Maðurinn sem gaf peninginn þekkir Jóhönnu ekki en vill hjálpa þeim sem minna mega sín og finnur sérstaklega til með börnunum. „Ég sé ekki eftir peningunum sem fóru í gjöfina en ég vann þennan pening í happdrætti," segir maðurinn sem segist vera með meðallaun. Hann segir að mikið sé um fátækt á íslandi og að bilið á mili ríkra og fátækra hér sé alltaf að breikka. Peningurinn bjargar mánuð- inum „Ég er orðlaus," sagði Jóhanna þegar blaðamaður hafði samband við hana og sagði henni frá gjöfinni. „Ég þakka manninum kærlega fyrir gjöfina og þetta bjargar mánuðin- um fyrir mér," segir Jóhanna. Hún segist aldrei áður hafa fengið pen- ingagjöf frá ókunnugum. „Ég hef bara fengið inneignarnótu hjá Mæðrastyrksnefnd sem ég verslaði fyrir í Bónus fyrir jól," segir Jó- hanna. Hún segir að peningurinn sem maðurinn gaf henni fari í mat. „Það bjargar málunum að Jón Þór sonur minn fær að borða á leikskól- anum en í gær þurfti ég að fá lánað „Gjöfin færmig til að trúa á hið góða í manninum." vísakort hjá mömmu til að kaupa það allra nauðsynlegasta í Bónus," segir Jóhanna. Jóhanna var orðin auralaus og átti engan pening til að lifa á út mán- uðinn og því kom peningurinn sér vel. „Ég hef ekki ennþá fengið niðurgreiðslu á leikskólagjöldunum og það er ekki til að bæta fjárhaginn," segir Jóhanna. Á lyfjum vegna þunglyndis Jóhanna á tíma hjá félagsráð- gjafa á geðdeild Landspítaians á morgun. Þar verður gerð áætlun sem miðar að bata Jóhönnu þannig að hún komist aftur út á vinnu- markaðinn. „Svefninn hjá mér hef- ur verið í algjöru rugli og ég hef ým- ist sofið út í eitt eða ekki neitt," seg- ir Jóhanna, sem tekur bæði lyf við þunglyndi og svefnleysi. Jóhanna segir ^Wuta svefnleys- isins vera vegna áhyggna af pen- ingamál- um sem eru verulegar. „Ég skulda nokkrar milljónir og af því að ég hef nánast ekkert til að lifa af get ég ekki heldur greitt niður skuldirn- ar," segir hún. hugrun@dv.is Peningagjöfinni verður varið i mat- arkaup í Bónus. Sandrækja í Seðlabankanum Öll veröldin er leiksvið, er Svart- höfði fullviss um. Hann sannfærðist jafnvel enn ffekar þegar Héraðs- dómur Reykjavíkur vísaði hinu margumtalaða Baugsmáli frá dómi í gær. Þar með hélt fléttan áfram sem Davíð Oddsson batt fyrsta hnútinn á. Nú er hann fjarri góðu gamni, leikstjórinn genginn af sviðinu, rétt áður en tjaldið fellur. Baugsmálið féll þó tiltölulega í skuggann af forsíðufrétt Morgun- blaðsins í gær. Sandrækja hefur samkvæmt blaði allra landsmanna fundist í fyrsta skipti við strendur landsins. Kannski fréttin sé engin i Svarthöfði tilviljun. Svarthöfða fannst jafn ólík- legt að Davíð myndi ákveða að naga blýanta í Seðlabankanum og að sandrækjan gerðist landnemi við eyðilagðar strendur landsins. Og leikritið heldur áfram. í Fréttablaðinu var því slegið upp að konur meinuðu Kristni að kjósa. Svarthöfði hefur alltaf dáðst að Kristni Gunnarssyni. Hann er víst nýgenginn í Landssamband fram- sóknarkvenna en konurnar samein- uðust gegn honum, funduðu og Hvernig hefur þú það? Maðursegist hafa það ágætt en hvað liggur á bak við þau orð veit ég varla sjálf,“seg- ir Krístín ísfeld, kennari og dóttir Reginu Rist en mál Regínu hefur verið til umfjöllunar í DV að undanförnu.„Mál móður minnar liggur þungt á mér en annars hefég það Ijóm- andi gott. Ég er á fullu í kennslu sem er mjög gaman en það er mikið um fundahöld tengd kennslunni sem eru kannski ekki alveg eins gefandi og kennslan." ákváðu að hann hefði ekki kosn- ingarétt á þinginu. Það á ekki af Kristni að ganga. Innar í blaðinu er ffétt um að hann hafi verið nær dauða en lífi keyrandi um Óshlíðina - þar sem grjóthrun gæti valdið tsunami sem myndi valda dauða og eyðileggingu á Vestfjörðun- um. Framsóknarkonur sáu ekki aumur á Kristni sem uppfýllir píslarvættis- hlutverk sitt fýllilega. í öllum þessum hamagangi þegir leikstjórinn þunnu hljóði. Davíð, sem hafði vit á að forða sér áður en Baugs- málið spryngi út eins og fullþroskuð rós, klárar nú síðustu dagana sem ut- anríkisráðherra áður en strangar golfæfingar á púttvelli Seðlabankans byrja. Hann sækir kannski aðferðir sínar til óhefðbundinna listamanna. Þetta virðist nefnilega allt hálftilvilj- unarkenndur spuni. Svarthöföi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.