Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Qupperneq 14
74 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV OR kaupir vatnsveitu Orkuveita Reykjavíkur hefur keypt vatnsveitu Grundarfjarðar og mun leggja hitaveitu í bænum á næsta ári. Orkuveitan mun taka við rekstri vatnsveit- unnar um næstu áramót. Áætlað er að húshitunar- kosmaður í Grundarfirði lækki um 40-50% en þar er hitað með rafmagni. Fjár- festing Orkuveitunnar við byggingu hitaveitunnar í Grundarfirði verður um 450 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að verð á heitu vatni verði það sama og í Reykja- vík og mun framkvæmdum ljúka á næsta ári. Leikskólakenn- ararósáttir Stjóm félags leikskóla- kennara harmar ummæli Steinunnar Valdísar borgar- stjóra í fréttum þann 19. sl. þar sem hún lýsti því yfir að aðallega vanti ófaglært fólk á leikskóla borgarinnar. Þannig ýti borgarstjóri undir þá mistúfkun að ófaglært starfsfólk og kjör þess skipti sköpum fyrir starfsemi leik- skóla og viija leikskólakenn- arar því mótmæla og telja einu viðunandi lausn mann- ekluvandans vera að efla námsframboð og bæta kjör kennara og skólastjóra sem em burðarás í öllu skipulagi og fagstarfi leikskólanna. Kötturinn varði bæinn Köttur einn lenti í rimmu við tófu við bæinn Lyngholt í Dýrafirði fyrir skemmstu. „Kötturinn var þama að veija svæðið sitt greinilega og var þaninn sem glasa- bursti og mikið skelkaður en hafði náð að króa tófuna af þar sem ég kem að kvikind- inu urrandi," segir Sæmundur Þorvaldsson bóndi. „Ég snaraði mér inn og náði í haglabyssuna og aflífaði dýrið þar sem ég sá ekki fram á góða sambúð dýranna beggja í nánustu ffamtíð." Sæmundur sagði töluvert hafa verið um tófu í firðinum fýrr í sumar, en lít- ið undanfarið enda ungarmr flognir úr hreiðrum sínum. Miðasala haf- in á Airwaves Miðasala er hafin á hina árlegu tónlistar- O. ; * • hátíð IcelandAirwaves ****' en hátíðin fer fram hér D tfl á landi 19. til 23. októ- ber næstkomandi. Að- eins þijú þúsund miðar verða seldir hér innanlands og miðað við reynslu síðustu ára má búast við að þeir seljist fljótt upp. Hátíðin er einhver mesta þungamiðja íslensks tónlistarlífs og er dagskráin að vanda þétt- skipuð okkar frambærileg- asta tónlistarfólki auk fjölda rísandi stjama sem koma er- lendis frá. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aöalféhirðir Landssímans, vill heQa nám viö Viðskiptaháskólann á Bifröst þar sem hann lærir meðal annars hagnýta hag- fræði og viðskiptasiðfræði. Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Btf- röst, vill að fangar fái jafnan rétt til náms. Hann hefur sent Birni Bjarnasyni bréf vegna málsins. „Bókhald er ekki á meðal þeirra kennslu- greina sem Sveinbjörn myndi leqqja stund _ á, enda gert ráð fyrir að nemendur á 3. ári í viðskiptafræði hafi tileinkað sér slíkar grunngreinar fyrr í sínu námi." fiektorbelr Björn Bjarnason dómsmálaráðherra Runólfur vill auka rétt- indi fanga tilnáms. //-\ / / j£\. / Runólfur Agústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, hefur sent Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra bréf og beðið hann að beita sér fyrir því að Sveinbirni Kristjánssyni, fyrrum aðalféhirði Landssímans, verði tryggð aðstaða til háskólanáms. Hann segir Viðskiptaháskólann á Bifröst hafa samfélagslegum skyldum að gegna þar sem allir eigi að hafa jafnan rétt til nám. „Fangar em þar ekki undanskfldir, enda er það trú mín að bæði sé eðlilegt og sjálfsagt að skólakerfið, þar með taldir háskólar, sinni þörfum fanga tfl náms. Ég tel rétt að fangar geti notað þann tíma sem fangavist skapar til menntunar og með slíku stuðlað að auknum þroska sínum í þeirri viðleimi að gera sig að betri mönnum. í þeim skflningi ætti hið gamla íslenska orð, betrunarhús, að gilda um þær stofhanir sem sinna refsi- vist fyrir samfélagið," segir Rúnólfur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans. Lærir um viðskiptasiðferði DV greindi frá því í gær að Sveinbjörn Kristjánsson, sem dæmdur var í fjögurra ára fangelsi fyrir að stela 260 milljónum af Landssímanum meðan hann starfaði þar sem aðalféhirðir, hygðist hefja nám í bókhaldi við Viðskiptaháskólann í Bif- röst. Þetta segir Runólfur ekki alveg rétt. Sveinbjöm sé útskrifaður iðnrekstrar- fræðingur frá THÍ og vanti aðeins 30 ein- ingar til að geta lokið námi í viðskipta- fræði. Hann muni því leggja stund á fjöl- breyttar greinar; allt frá aðferðafræði við- skipta og hagnýtrar hagfræði tfl sam- tímamenningar og viðskiptasiðfræði. „Auk þess myndi hann samhliða skrifa BS-ritgerð undir leiðsögn umsjón- arkennara. Bókhald er ekki á meðal þeirra kennslugreina sem Sveinbjöm myndi leggja stund á, enda gert ráð fyrir að nemendur á 3. ári í viðskiptafræði hafi tileinkað sér slflcar grunngreinar fyrr í sínu námi," segir Runólfur. Sendir Birni bréf Runólfur heimsótti Svein- bjöm þann 26. ágúst tfl að kanna aðstæður hans til há- skólanáms. Hann segist hafa rætt við Kristján Stefánsson, fang- elsisstjóra, og gert honum grein fyrir því að í svo krefjandi háskólanámi þyrfti Sveinbjöm að lágmarki netaðgang 30 klukkustundir í viku. „Ljóst að öryggismál varðandi netnotk- un fanga em viðkvæmt atriði en háskólinn hefur bent fangelsis- yfirvöldum á að þau megileysa með einföldum hætti," segir Runólfur. Runólfur bætir við að ljósi viðræðna við fangelsis- yfirvöld og fréttar DV um málið hafi hann sent Bimi Bjamasyni dómsmálaráð- herra bréf og beðið hann að beita sér í málefnum Svein- bjöms til að tryggja honum og öðmm föngum aðstöðu tfl háskólanáms. Runólfur segir: „Viðskiptaháskólinn er W. tflbúinn tfl samstarfs við fangelsisyfirvöld í þeim efnum." Runóifur Ágústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bif- röst Hefur sent Birni Bjarnasyni bréf vegna Sveinbjörns. Sveinbjörn Kristjánsson fangi Vill hefja nám við Við skiptaháskóiann á Bifröst. Áfram hrynur grjót úr Óshlíðinni. Nýleg skýrsla bendir á átta valkosti til lausnar vandanum. Óshlíðin ekki á dagskrá Bergþór Ólason, aðstoðarmaður samgönguráðherra, segir að engar hugmyndir um lausnir séu á borði ráðuneytisins á því óffemdarástandi sem ríkir á veginum um Óshlíð mflli Bolungarvíkur og Hnífsdals. Eins og fram hefur komið í fréttum DV þora Bolvík- inar ekki að fara veginn nema í brýn- ustu nauðsyn vegna mikfls grjóthmns en vegurinn er þeirra eina samgönguleið. „Þetta mál er hjá Vegagerðinni en ekki inni í ráðuneyti," segir Borgþór. Hjá Vegagerðinni er hins vegar til skýrsla frá ár- inu 2002 þar sem taldar em fram átta lausnir á vandan- um og er hverri lausn gefin einkunn með tilliti til öryggis og kostnaðar. Því eigi ráðuneytinu að vera ljóst hver staðan er og til hvaða lausna sé best að grípa. Lausnirnar em aftur á móti mjög kostnaðarsamar en ættu að vera framkvæmanlegar í ljósi almanna- hagsmuna og nýtilkomins auka fjár- magns tfl vegagerðar. „Framtíðarlausnirnar liggja fyrir en það hefur einungis verið unnið í bráðabirgðarlausnum síðustu ár. í núgfldandi vegaáætlun er ekki gert ráð fyrir neinum fjármunum í fram- tíðarlausn á þessu máli en þar sem kröfur em nú mjög háværar og í ljósi aukins ijármagns í vegagerð er aldrei að vita hvað gerist," segir Magnús Valur Jóhannsson, svæðis- stjóri hjá Vegagerðinni. svavar@dv.is Hálka á Hellisheiði „Það er autt núna en það má fara að búast við því núna þegar tekur að hausta að það komi svona morgunskot," segir Jón Gunnar Þórhallsson varðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi. Tveir bflar fóm útaf á Hellisheiðinni í gærmorgun en þar hafði snjóað í fyrrinótt og var því töluverð hálka á veginum. í hvomgum útafakstrinum urðu þó slys á fófki. Jón Gunnar biður fólk að sýna aðgát og kynna sér færð á vegum áður en það leggur af stað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.