Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR21. SEPTEMBER 2005
Útivist & ferðalög DV
í DV á miðvikudögum
Rúgbrauð í Rússla
Sagt er að engin ferð til Rússlands
sé fullkomin nema komið sé við í
Sankti Pétursborg og bragðað á rétt-
um borgarinnar. Sankti Pétursborg
er sál menningarinnar í Rússlandi
og er þekkt fyrir veitingastaði sína
sem eru með úrvai alþjóðlegra rétta
svo og hefðbundinna rússneskra
rétta.
„Það er engin máitíð án brauðs,"
segir rússneskt máltæki og þeir
bjóða upp á endalausar teg-
undir brauðs. Þess
má geta að engin
önnur þjóð
borðar eins
mikið af rúg-
brauði og
Rússar.
Útivist á næstunni
Ferðir framundan
23.-25.september
Jökulheimar - Breiðbakur
Brottför kl. 19.00. Brottfararstaður ákveðinn síðar.
Á föstudagskvöldið verður ekið í Hrauneyjar þar sem tekið verður elds-
neyti og þaðan er haldið í Jökulheima.
Á laugardeginum verður fundið vað á Tungnaá og haldið fram Breið-
bak, ekið um Blautulón og Skælinga, gengið í Eldgjá og gist í Hólaskógi. Á
sunnudegi verður Syðri-Fjaliabaksleið ekin með viðkomu í Strút, skála
Útivistar, þaðan yfir Markarfljót og til byggða. Þátttaka háð samþykki far-
arstjóra. Fararstjóri Skúii Haukur Skúlason. Verð 4200/4900 kr. á mann.
7.-9. október
Haustlitaferð
Ferðafélagið stendur fyrir haustlitaferð í Þórsmörk helgina 7.-9. októ-
ber. Ferðin er tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Fátt er fegurra en íslensk nátt-
úra í haustlitum Farið verður á föstudegi og komið til baka á sunnudegi
um kl. 18.00 Boðið er upp á leiðsögn og fróðleik um flóru Þórsmerkur.
Teknir eru græðlingar, sáð, plantað og fleira. Verð í ferðina er krónur
12.000/14.000 með gistingu, fargjaldi, og fararstjóm. Börn og unglingar
yngri en 16 ára greiða hálft gjald.
11.-13. nóvember
Föndurferð f Þórsmörk
Ferðafélagið
stendur fyrir fönd-
urferð í Þórsmörk
helgina 11.-13. nóv-
ember. Ferðin er til-
valin fyrir alla fjöl-
skylduna til að fara
og útbúa eigið jóla-
skraut. Farið verður
á föstudegi 11. nóv-
ember kl. 14.00 og
komið til baka á
sunnudegi um kl.
18.00. Boðið er upp
á leiðsögn í föndri og
meðal annars málað
og límt, skorið út,
teiknað og mafgt
fleira. Þátttakendur hjálpast saman við að safna efni til föndurgerðar í
Þórsmörk eftir því sem hægt og leyfllegt er. Verð í ferðina er krónur
12.000/14.000 með gistingu, fargjaldi, leiðsögn í föndri og fararstjórn. Börn
og unglingar yngri en 16 ára greiða hálft gjald.
„Mér stóð til boða árið 1994 að
fara í hálfs mánaðar gönguferð til
Austurríkis og Sviss og það var alveg
frábært. Þegar ég kynntist göngun-
um þá byrjaði nýtt líf hjá mér og ég
hef farið í göngur síðan,“ segir Mar-
grét en hún hefur tekið þátt í 17
gönguferðum síðan.
Nauðsynlegt að vera í formi
Margrét hefur farið til ýmissa
landa og segir að áhersla sé lögð á að
fara á nýja staði. Hún hefur gengið
frá Spáni yfir Pýreneafjöllin til
Frakklands og aftur til Spánar en
ferðirnar em miserfiðar. Sú erfiðasta
að sögn Margrétar var þegar gengið
var yfir þýsku Alpana og yfir Austur-
ríki og endað á Ítalíu. Fjöllin þar
vom hæst um 3000 metrar. Margrét
segir nauðsynlegt að vera í góðu
formi og þegar fólk spyr hana hversu
góðu formi það þurfi að vera í svarar
hún því til að ef fólk getur gengið
upp á Esjuna nokkra daga í röð þá sé
það tilbúið. Hún segir að ekki sé nóg
að hafa farið einu sinni upp á Esjuna
því þessar ferðir ganga út á að ganga
og fólk þarf að geta gengið miklar
vegalengdir dag eftir dag. Stundum
er gengið í allt að tólf tíma á dag.
Margrét segir að eftir því sem fólk er
í betra formi því betri verði upp-
lifunin.
Með nesti og nýja skó
„Ferðimar eru yfirleitt vikulang-
ar og svo er algengt að fólk fram-
lengi um viku og slappi af í sólinni
eða fari að skoða bæi og borgir,"
segir Margrét. Margrét segir fólk
kynnast vel í svona ferðum því það þegar heim er komið er algengt að
eyðir miklum tíma saman. Seinni fólk hittist og haldi myndakvöld og
vikan sé því alltaf.skemmtileg og slíkt. Síðustu ár hefur Margrét farið
Margrét Árnadóttir
Léttklædd / ijúfu veðri.
iSfiil
er mikil áhugamanneskja um ferðalög
og göngur. Hún hefur farið í 17 gönguferðir um allan heim
síðustu ellefu árin og fór nú síðast í sumar í ferð um slóv-
ensku Alpana. Hún segir DV upp og ofan af ferðum sínum.
Náttúruperlur í óbyggðum og
haustlitum
Helgina 23.-25. september efnir
Hópferðamiðstöðin-Vestfjarðaleiðtil
helgarferðar I samvinnu við Ferðafé-
lag (slands.Farið verður í Núpsstaðar-
skóga og á Höfðabrekkuafrétt I Mýr-
dal.
Á laugardeginum verður farið um
Núpsstaðarskóga og nágrenni sem
eru með fegurstu stöðum á landinu
og haustlitirnar auka á þá fegurð. Ekið
er inn með Lómagnúp að austan og
inn undir brekkur Eystrafjalls. Þar er
falleg gönguleið um skógana, hjá
Staðarhóli og hrikalegum giljum inn
að Kálfsklifi. Upp það er farið á járn-
keðju og blasir þá við Núpshylur,en í
hann falla tveir fossar, Núpsárfoss og
Hvítárfoss. Núpsstaðarskógar urðu á
sfnum tíma frægir fyrir Ijónstyggt villi-
fé.
Höfðabrekkuafréttur er minna þekkt
náttúruperla undir Mýrdalsjökli. Þang-
að verður farið fyrrihluta sunnudags
og ekið inn í Þakgil sem nú er orðið
aðgengilegt ferðafólki.
Á þessu svæði eru einnig stórbrotin
hamragil og minnir landslagið um
margt á ÞórsmörkVerð aðeins 9.500
kr.á mann með rútu allan tímann,
gistingu í tvær nætur f svefnpoka-
plássi á Hótel
LundaVík leið-
sögn og grill-
veislu.
Brottför föstudagskvöld 23. septem-
berfrá Ferðafélagshúsinu Mörkinni 6.
kl. 20.00.
Fararstjóri: Kristján M. Baldursson.
| Lomagnupur
Dæmium fallega
náttúru svæðisins.
12 STAÐREYNDIR
1. íbúar Havaf
stunduðu brimbretti
áður en Kólumbus
sigldi til Ameríku.
2. Flestar Rolls Royce
bifreiðir er að finna f
Hong Kong, miðað
við höfðatölu.
3. Líkurnar á hvftum
jólum f NewYork eru
einn á móti fjórum.
4. Yfir98% Japana
eru brennd eftir and-
látið.
5. Hefð er fyrir því (Kína að brúðurin
klæðist rauðu.
6. Grænland er stærsta eyja heims.
7. Flórfdarfki er stærra en England.
8. Krakkar alveg
niður f fimmtán
ára eiga á hættu
að lenda f fang-
elsi ef þeir
svindla á loka-
prófi (Bangla-
desh.
9. Það er ekkert
eitt orð yfir„já"
eða„nei" f
japönsku.
10. Bandarfkja-
menn borða samanlagt 18 ekrur af
pítsum á dag.
11. Grfski þjóðsöngurinn er 158 erindi.
12. Finna má fleiri plast-flamingóa í
Bandaríkjunum en lifandi.