Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 23
DV Útivist & ferðalög MIÐVIKUDACUR 21. SEPTEMBER 2005 23 Litlaströnd er vinsæl nektarströnd Á listanum yfir tíu bestu nektarstrendur heims er „Little Beach" eða Litlaströnd eins og mætti kalla hana. Hún er staðsett á Maui á Havaí og er þekkt sem „óopinber strönd þar sem val er um klæðnað". Þó svo að bannað sé með lögum að sóla sig nakinn á Havaí hefur þeim lögum ekki verið framfylgt síðustu ár. Því hefur Litlaströnd orðið smátt og smátt vinsæll staður fyrir ferðamenn og listamenn eins og dr. Leisure sem hefur málað myndir af nektarströndum síðastliðin tíu ár. Nóg er að gera á Litluströnd eins og sund, brimbretti og hvalaskoðun. Litlaströnd Vinsæl nektarströnd á Maui. V00D00 í NEW ORLEANS Lengi hafa leyndardómar og voodoo loðað við New Or- leans og borgin er einnig heimili eins óhugnanlegasta staðar heims,St. Louis kirkjugarðsins númer l,en þar liggur hvelfing voodoo-drottningarinnar Marie Laveau. Laveau sem var hávaxinn og fagur kynblendingur og fædd á Haítí varð fræg um 1830 þegar hún sá fyrir sér með spádómum fyrir heldri konur borgarinnar.Stuttu síðar komu voodoo-hæfileikar hennar í Ijós og sagt var að hún gæti komið óvinum fólks fyrir kattarnef með því að nota voodoo. Dauði hennar 1881 var hjúpaður leyndardómum og gestir hvelfingarinnar hafa gjarnan tilkynnt um dansandi, nakta drauga. Ólína, Brynhildur, Magga meiri- háttar, Solla, Bogga og Guðbjörg Hluti Slóveníuhópsins. Herminjar (Slóvenfu Hægt var að taka með sérmuniheim. á vegum IT ferða og alltaf stækkar hópurinn. „Fólk byrjar á einni gönguferð og vill svo fara aftur og aftur," segir Margrét en hún er líka með hóp á sínum snærum og hún ákveður ákvörðunarstaði fyrir þann hóp og segir fólk afar fegið að þurfa ekki að standa í undirbúningnum sjálft. Fólkið sem tekur þátt í svona gönguferðum segir Margrét vera skemmtilegt fólk sem hefur áhuga á göngum og því að kynnast nýjum stöðum og þjóðum. Fallegar andstæður gröðurs og fjalla Og mitt á milli skáli ngistvari eina nótt. Brasilía var í þrjár aldir undir stjórn Portúgala en hlaut sjálf- stæði árið 1822. Brasilía er langstærsta land Suður-Amer- íku og einnig fjölmennasta. f dag er Brasilía leiðandi fjár- málaafl í álfunni en ójöfn skipt- ing auðs í landinu er mikið vandamál. 1. Nafn: Republica Federativa do Brasil. 2. Höfuðborg: Brasilía. 3. Aörar helstu borgir: Sao Paulo, Rio de Janeiro, Belo Horizonte, Salvador. 4. Staðsetning: Liggur að Atl- antshafi austarlega í Suður-Am- eríku. 5. Sjálfstæði frá Portúgal: 7. september 1822. Kynnist sjálfum sér í ferðum sem þessum er sofið í nýjum skála á hverri nóttu og Mar- grét segir það afar Ijúft að koma í skálann í lok dags. í skálunum er svefnpláss með lökum og koddum. Þó svo að í sumum skálum sé hægt að fá lakpoka þá bera flestir slíka poka með sér en það eru örþunnir svefnpokar sem fólk skríður í. Mar- grét segir lítið að bera á göngunum og mestmegnis sé það bara nesti yfir daginn og lakpoki. Hún segir það magnað hversu vel fólk kynnist sjálfu sér í þessum ferðum og ekki síður hvað það kemst af með lítið í lífinu. „Við erum bara með það sem er í pokanum, maður þarf varla neitt!" segir Margrét og þeir sem ætla að framlengja ferðina um viku þurfa ekki að hafa áhyggjur því ferðataskan er sett í vörslu þar til fólk þarf á henni að halda. Slóvensku Alparnir „Við fórum til Slóveníu í lok júní og vorum 45 manns saman með er- lenda farastjóra sem þekkja allt inn og út," segir Margrét og ítrekar hversu frábær fararstjórnin hafi ver- ið. Gengið var í slóvensku Ölpunum og þar segist Margrét hafa séð falleg- asta og fjölbreyttasta gróður sem hún hafi á ævinni séð. í Ölpunum var hörkuganga á hverjum degi og svo var nestið tekið upp um miðjan daginn og svo haldið áfram. „Það er mikið hlegið í þessum ferðum, það var mjög skemmtilegt og stöðugar uppákomur," segir Margrét. Hún segir markmiðið vera að kynnast landi og þjóð og að vera í náttúrunni þar sem er engin um- ferð, bara friður og ró. Margrét segir að mikil hugleiðsla felist í því og fólk kynnist sjálfu sér betur. í ferðinni til Slóveníu framlengdi ljöldi fólks ferðina um viku og eyddi Sao Paulo, borg sælkera og listunnenda Borgin Sao Paulo í Brasilíu er stærsta borg landsins og þriðja stærsta borg heimsins með sautján mjlljónir íbúa. Sao Paulo er í samkeppni við borgina Rio de Janeiro sem er þekkt fyrir náttúrufegurð en aðdráttarafl Sao Paulo liggur ekki síst í fólkinu og menningunni og má þar finna þjóðarbrot eins og Japana, ítali og araba. Borgin er iðandi af Iífi og þar má finna einstaka matarmenningu sem blandast hefur ítölskum, kín- verskum og arabískum áhrifum svo eitthvað sé nefnt. Sao Paulo er fræg fýrir gott nautakjöt og sagt er að sumir ferðist þangað í þeim tilgangi að fara út að borða á einhverjum af fjöldamörgum veitingastöðum sem í boði eru. Jardins-hverfið er þekkt veitingahúsahverfi og miðja félags- lffs borgarinnar. Það er til siðs að borða seint að kvöldi og margir staðir opna ekki fýrr en um 21.00 og eru þá oftast opnir til þrjú um næt- ur. Sao Paulo hefur einnig margt upp á að bjóða auk matarmenning- arinnar. Söfnin í borginni eru með- al þeirra bestu f Suður-Ameríku og strandlínan morar af fallegum ströndum auk þess sem næturlífið laðar að sér bestu skemmtikrafta heims. Síðustu ár hefur Sao Paulo verið þungamiðja landsins þegar kemur að capoeira, brasilískri bardagalist, sem hefur verið að sækja í sig veðr- ið. Capoeira kemur upprunanlega frá bahia-þrælum og fýlgir henni trumbusláttur og tónlist. Capoeira var bannað af yfirstéttum landsins en til þess að viðhalda list sinni breyttu þrælarnir æfingunum í henni í slökun eftir erfiða göngu- viku. Margrét segir það líka frekar al- gengt að fólk fá til sína maka eða börn seinni vikuna og eyði henni með þeim. Aðspurð segir Margrét þessar ferðir ekki vera dýrar en vikan með fararstjórn, mat, gistingu og flugi kostar yfirleitt innan við 100.000 krónur og svo er ódýrt að framlengja um viku eða um 12.000 krónur. Margrét vonar að næst verði farið til Króatíu og segir að fólk sé duglegt að koma með uppástungur og IT reyni að uppfylla óskir þess. 6. Stærð: 8.511.965 ferkílómetr- ar. 7. Fólksfföldi: 180 milljónir. 8. Tungumál: Portúgalska. 9. Aðallönaður: Textíll, skógerð, sement, timbur, stál og véla- hlutir. 10. Helstu viðskiptaaðilar: Bandaríkin, Argentína, Þýska- land, Kína og Hoiland. ragga@dv.is Sao Paulo Þriöja stærsta borg íheimi. dans og ákveðið verkfæri, barimbau, sem notað var til að vara við yfirmönnum, fór að fylgja með dansinum sjálfum. Banninu var ekki aflétt fyrr en um 1930 en í dag er þetta þekkt og vinsæl bardagalist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.