Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2005, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2005
Sálin DV
Björn Haröarson og Eygló Guðmundsdóttir eru
sérfræðingar DV í málefnum sálarinnar. Þú getur sent
þeim bréfá kaerisali@dv.is
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Fínnlandi
............... . . .________mwmmmmœiimmmmmmgmimm
Minnistöflur
FOSFOSER
MEMORY
m söluaðil:
sími: 551 923V
112 V V_ I C4 Cl
Yfirvöld í Taflandi eru þessa
dagana að rannsaka tilkynningar
frá þorpsbúum sem segjast hafa
séð geim-
verur. Um
tíu manns
frá þorp-
inu Huay
Nam Rak
segjast
hafa rekið
augun í
geimveru
nokkra á
hrís-
grjónaakri
nálægt
þorpinu. Veran er sögð
vera smágerð með stórt höfuð,
sköllótt með lítinn munn, stór
eyru og augu. Hin 35 ára gamla
Sawaeng Boonyalak, sem var ein
þeirra sem þutu til að skoða ver-
una segir hana hafa verið um 70
sentimetra háa með gula húð og
flatbrjósta. Hermt var eftir
þorpsbúunum að veran hafi ekki
skilið eftir sig nein fótspor. Hún
á að hafa rölt um akurinn í um
klukkustund án þess að taka eftir
þorpsbúunum.
Vitni segja veruna hafa
skyndilega svifið upp í trjátopp
og eftir að fleiri áhorfendur
bættust í hópinn sveif hún upp
til himna. Vitnin munu öll hafa
haft svipaða sögu að segja og
myndir sem þau teiknuðu voru
allar mjög keimlíkar.
lOfóbíur
1. Pediophobia.
Hræðsla við dúkkur.
2. Rupophobia.
Hræðsla við óhreinindi.
3. Pedophobia.
Hræðsla við böm.
4. Scelerophobia.
Hræðsla við vonda menn og
innbrotsþjófa.
5. Teutophobia.
Hræðsla við Þjóðverja og þýska
hluti.
6. Thermophobia.
Hræðsla við hita.
7. Vestiphobia.
Hræðsla við fatnað.
8. Vitricophobia.
Hræðsla við stjúpföður.
9. Numerophobia.
Hræðsla við tölustafi.
10. Euleutherophobia.
Hræðsla við frelsi.
Sæl
vertu
Það má í raun segja að
ég sé krónískur verkja-
sjúkhngur. Ég hef
þjáðst af hrikalegum
verkjum sem ég
ætla ekki að
fara að útíista
hér en hef ver-
ið að lesa mér
til um aðrar leiðir
en bara að
treysta á lyfin
og kveinka
mér. Er
mögulegt að draga úr verkjum
með huganum?
Sæl!
Verkir em senniiega þær þjáning-
ar sem við tengjum fyrst og fremst
við lflcamlega þættí. Þegar við emm
búin að skilgreina orsökina sem Lflc-
amlegan þátt, leitum við eðlilega
leiða til að hafa áhrif á þá með bein-
um hætti. Þetta getur verið að taka
inn bólgueyðandi eða verkjastillandi
lyf. Aðrar leiðir sem við gjaman not-
um er til dæmis að leita í sjúkraþjálf-
un og nudd eða fá einhvers konar
leiðbeiningu um lflcamsbeitingu.
Hugurinn getur dregið úr
verkjum
Mikiivægt þykir líka að skoða
þætti eins og að velja sér betra rúm
til að sofa í og betri stól til að sitja
við. Allt em þetta mikilvægir þættir í
leitinni eftir að draga úr verkjum og
bólgum. AUir þessir þættir hafa það
sameiginlegt að þeir em beintengdir
lflcamlega þætti verkjanna eða þeim
lflcamspörtum sem verkirnir koma
fram í eða hafa áhrif á. Þannig er það
nærtækast að taka inn lyf sem hafa
áhrif á verkina sjálfa, fá nudd á staði
sem em aumir og fara betur með lflc-
amann með betri húsgögnum til að
sofa og sitja í. Þegar við ætíum síðan
að skoða hvemig hugurinn getur
unnið með okkur vandast máiið því
að tengingin milli verkja og hugans
er ekki eins áþreifanleg. Fyrir suma
er tengingin milli hugsana og verkja
jafnvel fjarstæðukennd, þ.e að ein-
hver möguleiki sé á því að hægt sé
að draga úr verkjum með huganum.
Hins vegar hafa rannsóknir gefið til
kynna að hugurinn geti unnið tölu-
vert til að draga úr verkjum og haft
áhrif á einhver af þeim vandamálum
sem verkirnir valda.
Dáleiðsla
Dáleiðsla er aðferð sem lengi vel
hefur gagnast mjög vel við að draga
úr verkjum fólks. Dáleiðsla hefur
meðal annars verið tölvert mikið
notuð við aðgerðir og t.d. hefur auk-
ist í Bandarflcjunum að nota dá-
leiðslu í stað deyfilyfja við ákveðnar
skurðaðgerðir. Það eitt að hægt sé
að framkvæma aðgerðir sem venju-
lega kreíjast deyfilyfja með dá-
leiðslu, gefur til kynna að hugurinn
getur verið öflugt tæki okkur til
hjálpar og sennilega töluvert meiri
en við gerum okkur í hugarlund
dags daglega. Athyglisverðar niður-
stöður á gagnsemi hugrænnar
atferlismeðferðar hafa birst víða um
heim á undanförnum árum. Reykja-
lundur rannsakaði til að mynda
áhrif hugrænnar atferlismeðferðar í
meðferð verkja og þrátt fyrir að nið-
urstöður leiddu í ljós að meðferðin
virtíst ekki draga sérstaklega úr
verkjunum sjálfum, þ.e. verkimir
vom svipaðir, þoldi fólk verkina
mun betur og átti mun auðveldara
með að lifa og starfa með verkjunum
dags daglega.
Væntingar til verkja
hafa áhrif
Önnur nýleg rannsókn frá
Bandarflcjunum sýndi að þær vænt-
ingar sem fólk gerði til verkja hafa
áhrif á hversu slæmir verkimir
verða. Það er að, ef fólk bjóst við
minni verkjum upplifði fólk verkina
sem ekki jafn slæma. Verkirnir
minnkuðu um 28% í þessari rann-
sókn sem er í raun sama hlutfall og
ákveðin morfi'ntengd verkjalyf virð-
ast vera að gefa. Þessar niðurstöður
gefa því til kynna að hugurinn sem
við oft teljum ekki geta haft áhrif á
verki, getur haft jafnmikla virkni í
ákveðnum tilvikum og lyfin sem
hafa bein áhrif á lflcamann. Til að
reyna að skilja þetta samspil verkja
og hugsana er kannski best að reyna
að útvflcka skilning okkar á verkjum.
Verkir em sennilegast ekki bara
svömn líkamans við skemmdum
eða lflcamlegum tmflunum heldur
hefur heilinn og hugsunin þar áhrif
með að móta verkina og hvernig
þeir em upplifðir. Því ætti að vera
mögulegt með aðferðum eins og dá-
leiðslu, slökun og hugrænni atferlis-
meðferð að láta þessa mótun heil-
ans á verkina vinna með okkur og
draga úr óþægindunum sem
verkirnir hafa á líf fólks.
Gangiþérvel!
Bjöm Haröarson
Sálíræöingui
Græn fötláta fólkilíða vel
Það að breyta um liti í herbergi
hvort sem það er með málningu,
lýsingu eða skrautmunum getur
haft mikil áhrif á allt í herberginu
og það sem á sér stað þar. Það
sama á við um fyrirtækið, stofnun-
ina og fötin sem fólk gengur í.
Prófaðu að ganga í skærrauðu,
grænu eða bleiku þá daga sem þú
ert langt niðri. Gangtu í rauðu þeg-
ar þú þarft að sýna vald þitt eða
gera samning.
Gangtu í brúnu, grænu, appel-
sínugulu eða einhverjum jarðarlit-
um þegar þú vilt að fólki lfði vel í
kringum þig.
Vertu í bláu, og sérstaklega túr-
kísbláu, eða skæmm gulum litum
þegar þig vantar góðar hugmyndir.
Regnbogi
Sumirganga um eins og regnbogar.
Þegar þú finnur til hræðslu
skaltu umvefja þig hvítu ljósi því
það hefur verndandi áhrif og
þegar þú vilt laða að þér ást, róm-
antík og peninga eða þegar þú
vilt rækta með þér græðandi
orku, skaltu sjá þig fýrir þér í
bleikri kúlu umkringda/n grænu
ljósi.
Sumir eiga auðveldara með að
lesa skapbrigði annars fólks en
aðrir. Hvort sem þeir gera sér
grein fyrir því eða ekki þá skynja
þeir áruna og litina sem hana
prýða og tengja við ákveðna líðan
og skapbrigði.
Hvort sem fólk veit það eða
ekki þá lýsa litir af árum fólks og
sumir eru gangandi regnbogar
meðan aðrir svarthol.
Flestar árur lýsa af einum eða
tveimur litum, eftir því hvernig
andlegri, tilfinningalegri og lík-
amlegri heilsu er háttað og flestir
sjá þessa liti hvort sem þeir eru
meðvitaðir um það eður ei.
Fg er farinn að trúa því að
veröldin sé ráðgáta, meinlaus
ráðgáta sem umbreytist í eitt-
hvað hræðilegt vegna þess að við
erum svo brjáluð að reyna að
túlka hana líkt og hún búi yfir
einhverjum heilögum sannleika.
Umberto Eco