Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Page 8
8 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 Fréttir DV Kennari í einelti Ingibjörg Ingadóttir enskukennari við Mennta- skólann á ísafirði er farin í tveggja vikna veikindafrí frá kennslu. Ingi- björg segir ástæðuna vera einelti á vinnu- stað og að hún hafi vottorð frá lækni upp á veikindi sem séu afleiðing eineltis- ins. Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskól- ans á ísafirði, kannast ekki við að Ingibjörg hafi til- kynnt veikindi og fengi leyfi frá störfum næstu tvær vik- umar. Þá segir Ólína það afar óvenjulega aðferð að tilkynna veikindi í gegnum fjölmiðla. Innbrot í Hafnarfirði f vikunni hafa sex til- kynningar borist Lögregl- unni í Hafnarfirði vegna þjófnaða og innbrota. Brot- ist var inn í bifreið í Garða- bæ og geislaspilari tekinn. Dekkjum og felgum af vömbifreið var stolið í Hafnarfirði og gaskútum stolið frá veiðihúsinu við Djúpavatn. Þá var skemmdarverk tilkynnt á Álftanesskóla þar sem málningu hafið verið úðað á skólann. Hugarleikfimi gegn Alzheimer Kreijandi vinna eða regluleg heilaleikfimi minnka líkurnar á Alz- heimer um íjórðung. Þetta kemur fram í rannsókn á tíu þúsund sænskum eldri borgurum. Frekari stoðum var rennt undir rannsókn- ina með því að rannsaka starfsferil tvíbura þar sem annar hefur greinst með Alzheimer en hinn ekki. í öllum tilvikunum hafði sá tvíburi sem unnið hafði meira krefjandi vinnu minni einícenni. Sam- kvæmt þessu eru til dæmis krossgátur ágætis forvörn gegn Alzheimer. „Ég er nú ósköp upptekinn núna. Er með mann hjá mér og á mikilli hraðferð," segir Páll Pálsson, stjórnarfor- maður Sparisjóðs Hafnar- Hvað liggur á? fjarðar.„En hvað liggur á? Mig langar til að kíkja á Þingvelli um helgina og skoða haustlitina. Ætli það liggi ekki bara á.“ Sönnunargögn voru af skornum skammti í máli Ríkissaksókn- ara gegn Portúgala sem verið hefur í farbanni síðan í maí. Hann var ákærður fyrir að hafa misnotað ölvun konu til að hafa við hana samræði. Atburðurinn átti sér stað á skemmti- staðnum Traffic í Keflavík í maí á þessu ári. 1_ Traffic Gestirurðu varir við að ekki væri alit með felldu. Á móti sól Konan man ekki neitt frá þvl hljómsveitin Á móti sól hætti að spila á Traffíc og þar til hún vaknaði á lög- reglustöðinni daginn eftir. Kolbrún Sævarsdóttir Saksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun. 39 ára Portúgali var í Héraðsdómi Reykjaness í gær sýknaður af að hafa nýtt sér ölvun 27 ára konu til að hafa við hana samræði. Atburðurinn átti sér stað á klósetti skemmtistaðarins Traffic í maí síðastliðnum. Konan man ekkert Við yfirheyrslur bar Portúgalinn að konan hefði dregið sig inn á kló- sett og gert sig líklega til að hafa við hann munnmök. Hann hefði ekki haft áhuga á að eiga við hana sam- ræði og haldið konuna vera að grín- ast. Sagði hana hafa hlegið og gant- ast. Hún hefði síðan gyrt niður um sig og viljað hafa við hann samræði. Sagðist hann ekki viss um hvort mök hefðu átt sér stað eður ei. Konan sjálf segist ekki muna neitt eftir kvöldinu frá því að hljómsveitin Á móti sól, sem spil- aði á Traffic þetta kvöld, hætti að spila og þangað til hún rankaði við sér á lögreglustöðinni daginn eftir. Engar vísbendingar Dómarinn í málinu átti ekki um margt að velja þegar kom að dóms- uppsögu í málinu í gær. Sakborn- ingurinn neitaði þráfaldlega og fórnarlambið man ekkeirt eftir at- burðinum sem málið snýst um. Rannsókn á fatnaði bæði Portú- galans og konunnar gáfu lögreglu engar vísbendingar. Né heldur lík- amsskoðun á konunni. Læknir sem rannsakaði hana bar fyrir dómi að hún hefði virst hafa meiri áhyggjur af gervitönn sem hún hafði týnt þetta kvöld en atburðun- um sem leiddu til réttarhaldanna. Þar að auki gaf framburður vitna ekki ótvírætt til kynna að saknæmt athæfi hefði átt sér stað. Óvíst með áfrýjun Niðurstaðan var því óhjákvæmi- leg - Portúgalinn var sýknaður og bótakröfum vísað frá. Verjandi Portúgalans, Hilmar Baldursson, segir þetta hafi verið niðurstöðuna sem hann reiknaði með. „Þetta er búið að vera erfiður tími fyrir skjólstæðing minn. Hann er búinn að vera í farbanni og því ekki komist heim til Portúgal eins og hann hafði ætlað að gera." Kolbrún Sævarsdóttir saksókn- ari sótti málið fyrir ákæruvaldið. Hún segir að ákvörðun hafi ekki verið tekin um hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. andri@dv.is Portúgalinn, sem býr í Sandgerði, hefur verið í farbanni síðan í maí en hann neitaði frá upphafi að hafa misnotað sér ölvun konunnar og sagði hana hafa haft frumkvæði að því samræði sem þau höfðu á kló- settinu á Traffic. Ekki allt með felldu Þann 16. maí barst Lögreglunni í Keflavík tilkynning um að konu hefði verið nauðgað inni á kvenna- salerni skemmtistaðarins Traffic. Yfirdyravörður staðarins kallaði á lögreglu en nokkrir gestir höfðu orðið varir við að ekki væri allt með felldu inni á einum bás kvennakló- settsins. Tveir karl- Heraösdómur Reykjaness Sönnun- argögn voru afskorn- um skammti. „Þetta er búinn að vera erfiður tími fyrir skjólstæðing minn." menn reyndu að opna dyr að básn- um, en mættu fyrirstöðu og fóru því inn á næsta bás til hliðar, stigu upp á salernisskál og kíktu yfir skilrúm milli básanna. Sögðu þeir lögreglu, þegar hún kom á vettvang, að þeir hefðu séð konu liggjandi fram á salernistank, með annan fótinn á salerninu en hinn á gólfinu. Portúgalinn hafi staðið fyrir aftan hana og viðhaft samfarahreyfingar. Þeir ákváðu þá að yfirbuga manninn og héldu hon- um þangað til lögreglan kom á vett- vang. Portúgalinn var handtekinn og síðar ákærður en konan var færð á lögreglustöð og svaf þar ölvunar- svefni þar til klukkan tvö daginn eftir. nOMSAUm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.