Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005 Helgarblaö DV íris Eva Bachmann íris Eva stendur bak viö grillið í Hamraborginni og töfrar fram íslenskan alþýðumat. r 1 I ' c / jj Make frá Gosh „Þetta er vetr- armeikið sem passar núna þegar brúnkan er farin af manm. Varalitablýantur af ókunn- um uppruna „Ég er búin að eiga hann svo lengi að nafnið hefur máðst af. Hann er í dökkum tón, svona eins og maður notar þegar maður er með þunnar varir," segir Guðrún hlæjandi. Varalitur frá Channel „Þetta er ægilega fínt gloss í appelsínubleiku. Ég nota þennan dag- lega." Augnháralitur frá Gosh „Augnháralit nota ég ekki nema endrum og eins. Það er af sem áður var þegar ég fór ekki út úr húsi nema knallmáluð, helst með “eye- liner" og allt. Það hefur sem betur fer breyst." Guðrún Ögmundsdóttir alþingiskona er með fáa en vel nýtta hluti í snyrti- buddunni sinni enda málar hún sig minna nú en forðum daga þegar hún hefði ekki látið sér detta f hug að fara ómáluð út í búð hvað þá meira. Guðrún er í sérlega góðu skapi nú f vetrarbyrjun þar sem hún er að undirbúa sig fyrir fyrstu þingdagana, en hjartans málið frá f sumar er komið i höfn. „Nú er stóra málið, sem er öll réttarstaða samkynhneigðra, orðið að stjórnarfrum- varpi. Ég er búin að vera með það í fanginu í allt sumar og gleðst því af öllu hjarta yfir málalyktum. Það verða svo að sjálfstöðu ný hjartans mál f vetur." „Ég veit ekki alveg af hverju ég ákvað að fara út í atvinnurekstur," segir íris Eva. „Ég vann við skrif- stofustörf og bókhald og langaði að breyta til. Ég keypti hérna í nóvem- ber í fyrra og hafði þá enga reynslu af rekstri og ekki einu sinni elda- mennsku, en hér hefur allt gengið eins og í sögu." Fiskibollur og plokkfiskur sí- vinsælir réttir Hamragrill hafði verið í rekstri í Hamraborginni í níu ár áður en fris keypti og hún ákvað að reka staðinn áfram með sama sniði. „Áherslan er á dæmigerðan heimilismat, það má kannski segja að hér sé boðið upp á íslenskt eld- hús," segir íris hlæjandi. „Steiktur fiskur í raspi, soðnar og steiktar kjötbollur, fiskibollur og plokkfisk- ur eru sívinsælir réttir. Heimilis- maturinn er í boði í hádeginu til tvö og aftur á kvöldin frá fimm til níu. Þess á milli bjóðum við upp á grillmat." íris er mætt klukkan átta á morgnana og er allt í öllu í Hamra- grilli. „Ég sé auðvitað um bókhald , pantanir og reksturinn yfirleitt og svo er ég hér alla daga að elda. Þetta er langur vinnudagur en að sama skapi ánægjulegur. Hér kemur sama fólkið dag eftir dag og ánægjan felst ekki síst í samskiptum við kúnnana. Suma þekkjum við svo vel að þeir þurfa ekki að einu sinni að panta, við vitum nákvæmlega hvað þeir vilja." Eiginmaðurinn eins og klettur íris segist hvenær sem er hvetja konur út í atvinnurekstur af ein- hverju tagi og blæs á að það sé eitt- hvað öðruvísi að vera kona en karl í rekstri. „Það eru bara grýlusögur," segir hún. íris er með opið um helgar líka og vill gefa eiginmanninum kredit fyrir að standa með sér eins og klettur. „Við eigum tvær litlar stelpur svo þetta snýst allt um samvinnu. Ég ætla ekki að gera neinar breytingar í vetur, finnst óþarfi að breyta bara breytinganna vegna. Við verðum að sjálfsögðu með heimilismatinn áfram og á aðventunni bætum við hangikjöti á matseðilinn. Að öðru leyti höldum við bara okkar striki," segir íris og hlær þegar hún er spurð hvort maður verði ríkur á svona rekstri. „Ekki í veraldlegum skiln- ingi, en það er ríkidæmi að starfa við það sem maður hefur gleði af og nýtur að gera." Guðrún Ögmundsdóttir alþingiskona Notarfáar snyrtivörur en nýtir þær vei. Athafnakonan Iris Eva Bachmann var orðin leið í þurri skrifstofuvinnu og langaði í „action“. Hún söðlaði því alveg um og festi kaup á veitingastaðnum Hamragrilli sem hún rek- ur nú við góðan orðstír. Þetta er hörkuvinna en íris kvartar ekki og segir uppskeruna ekki síst felast í ánægjunni. Konurþurfa að minnsta kosti fimm vinkonur Vinkonur eru eins og skór. Eitt par af skóm er ekki nóg. Maður notar til dæmis ekki uppáhaldsgöngu- skóna sína við öll tækifæri þótt þeir séu æðislegir. Sama á við um vinkon- ur. Það er nauðsynlegt að þær séu af mörgum tegundum og gerðum. Þetta segir Marla Paul, höfundur bókarinnar The Friendship Crisis: Finding, Making, and Keeping Fri- ends When You're Not a Kid Anymore. Hún segir að hverri konu sé nauðsynlegt að eiga að minnsta kosti fimm mismunandi vinkonur. „Það getur verið nóg fyrir okkur sem börn að eiga eina bestu vin- konu, en eftir því sem við eldumst og þroskumst þurfum við fleiri vinkon- ur til að sinna mismunandi þáttum í lífi okkar," segir Marla. „Það er óraunhæft að ætlast til að ein og sama manneskjan geti tekið þátt í gleði og sorgum á öllum svið- um. Einhleypa-framakonan getur til dæmis engan veginn sýnt samúð þegar þú vælir yfir eymabólgu barn- anna og eilífum vökunóttum, eða yfir því hvað maðurinn þinn er eigin- gjam og tilltislaus. Hún getur hins vegar ráðið þér heilt þegar þú ætlar að biðja um launahækkun og huggað þig ef þú færð neitun." Óskastaðan samkvæmt kenningum Mörlu er að eiga fimm góðar vinkonur: I fyrsta lagi þessa sem þú hefur átt síðan í bamaskóla og veit allt um þig. Hún er sú sem getur hlegið með þér þegar þú dettur óvænt um „stóm ástina" þína úr grunnskóla og finnst ömgglega btjálæðislega fyndið hvað hann er orðinn feitur og ljótur. Vin- kona á vinnustað eða í svipuðu starfi er ómetanleg svo og vinkonan sem hefur svipuð áhugamál og nennir með þér í líkamsræktina eða leikhús- ið. Vinkonan sem stappar í þig stál- inu undir öllum kringumstæðum er alveg ómetanleg og síðast en ekki síst er flippaða vinkonan sem kemur þér ailtaf í gott skap, verð þyngdar sinnar í gulli." Marla segir ekkert jafhast á við gott vinkvennasamband og hvetur konur til að vanrækja ekki vinkonur sínar. „Það er líka erfiðara að stofna til varanlegra vináttusambanda eftir því sem aldurinn færist yfir svo rækt- ið vel þær vinkonur sem þið eigið," segir Marla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.