Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Qupperneq 17
DV Helgarblað
LAUCARDAGUR24. SEPTEMBER2005 7 7
Eva María og Margrét,
eða Maggý eins og hún
er kölluð, gengu í heil-
agt hjónaband 23. júlí
síðastliðinn í Áskirkju.
Feður þeirra fylgdu
þeim inn kirkjugólfið og
frændsyskini Evu voru hringaberar.
Veisluhöldin fóru síðan fram í saln-
um fyrir ofan Valsheimihð.
„Það var sameiginleg vinkona
okkar sem kynnti okkur,“ segir
Maggý og bætir við, einstaklega
opinská og óhrædd við að ræða til-
finningar sínar og hjónaband henn-
ar og Evu. „Ég heillaðist strax af Evu.
Hún var samt ekkert voða hrifin
fyrst og ég þurfti aðeins að ganga á
eftir henni en við vissum það mjög
fljótlega að það var eitthvað frábært
í vændum. Það varð líka raunin,"
segir hún glaðleg og bætir við með
fagran glampa í augum: „Við höfum
reynt ótrúlega margt saman."
Störfuðu saman sem skála-
verðir
„Við fórum þremur mánuðum
eftir að við kynntumst til Hvera-
valla að vinna saman sem skála-
verðir og vorum það þrjú næstu
sumur," segir Eva og bætir við að
það hafi verið frábær tími sem þær
upplifðu saman, meðvitaðar um
að þegar fólk eyðir löngum tíma
saman kemst það ekki hjá því að
kynnast hvort öðru vel. „Við vor-
um saman allan daginn, alla daga,
í 100 daga þar sem voru 100 km í
næstu byggð," útskýrir Eva og
Maggý jánkar til samþykkis og
bætir við einlæg: „Við fórum líka
til Ítalíu og vorum þar í tæpt ár að
vinna. Það var mjög lærdómsríkt.
Og það má í raun segja að frá því
að við hittumst fyrst höfum við
verið óaðskiljanlegar.“
Bar bónorðið upp á Ítalíu
Hvor ykkar bar upp bónorðiö?
„Eva bað mín á Ítalíu,“ svarar
Maggý innileg og geislar af kátínu.
„Við vorum þar fyrir tveimur árum
en þá vorum við báðar alveg rosa-
léga veikar með öll flensueinkenni
sem hægt er að hugsa sér," segir
hún og hlær en bætir við eftir stutta
umhugsun: „Hún fór út í búð að
kaupa vatn og eitthvað að borða og
kom við á útimarkaði sem var rétt
hjá og keypti tvo fallega hringa.
Kom svo til mín og bað mín með
hor og hita. Mjög rómantískt," segir
hún og þær skella báðar upp úr
geislandi af hamingju.
Fallegt kirkjubrúðkaup
„Við ákváðum í febrúar á þessu
ári að láta verða af þessu og sögðum
foreldrum okkar frá því. Þau voru
rosalega ánægð og studdu okkur í
þessari ákvörðun en við vorum
búnar að spá lengi í þessu og höfum
alltaf verið vissar að þetta væri eitt-
hvað sem við vildum gera en það
var bara spurning um hvenær. Þeg-
ar við fórum virkilega að spá í gift-
inguna heyrðum við frá vinum af
Jónu Hrönn Bolladóttur miðbæjar-
presti. Við höfðum samband við
hana því að við höfðum einmitt
heyrt svo fallegar sögur af henni og
urðum mjög ánægðar með valið
þegar við loksins hittum hana. Upp-
haflega ætluðum við okkur ekki að
gifta okkur í kirkju, en eftir að hafa
rætt við Jónu Hrönn fannst okkur
það vera bara svo rétt og sáum at-
höfnina fyrir okkur."
Afslappaðar og umkringdar
ástvinum
„Við vorum ferlega afslappaðar í
öllum undirbúningnum, tókum
bara smá stressrispu síðustu vik-
una," segir Maggý hlæjandi við
upprifjunina. „Foreldrar okkar
beggja hjálpuðu okkur mikið við
undirbúninginn og gerðu þetta svo
auðvelt. Við fengum Petru Dís vin-
konu okkar til að hanna á okkur föt-
in og Sigrún Elsa vinkona okkar
saumaði þau á okkur. Þau komu
mjög vel út."
Talið berst að myndatökunni.
„Við ákváðum að fara í Grasagarð-
inn fyrir athöfnina svo að við
þyrftum ekki láta bíða eftir okkur í
veislunni. Vinir okkar sáu um að
taka myndir og Doddi litli var Dj
þegar líða tók á kvöldið og partí-
stemningin tók við," segja þær við
„Hún fór út í búð að
kaupa vatn og eitt-
hvað að borða og
kom við á útimarkaði
sem var rétt hjá og
keypti tvo fallega
hringa. Kom svo til
mín og bað mín með
hor og hita. Mjög
rómantískt."
upptalninguna á óvæntri aðstoð
sem þeim barst úr öllum áttum.
Skemmtileg ræðuhöld
„Það kom okkur á óvart og var
alveg frábært hvað það voru marg-
ir sem héldu ræður fyrir okkur í
veislunni. Okkur fannst reyndar
rosalega fýndið hvað fólk átti í
vandræðum með hvað það átti að
kalla okkur og fengum við að heyra
ýmsar útgáfur, eins og til dæmis
„brúðirnar" og „brúðhjón"," segja
þær óhræddar við að segja frá
stemmingunni þennan yndislega
dag. „Særún fósturmamma Evu
bjó til fyrir okkur brúðkaupstert-
una sem var alveg hrikalega flott og
mjög gómsæt. Og fyrst við vorum
svona hefðbundnar með þetta allt
saman þá ákváðum við að dansa
brúðarvalsinn. Það gekk áfallalaust
fyrir sig enda höfðum við fengið
fagmann til þess að fara í gegnum
þetta með okkur," segir hún hlæj-
andi og heldur áfram: „Svo þegar
valsinum var lokið þá var þetta
bara hálfgert partí. Það var dansað
á fullu langt fram á nótt.Við gistum
síðan heima hjá okkur um nótt-
ina,“ segir Eva og bætir við einlæg:
„Því þar líður okkur best."
Sönn ást
„Það er í raun mjög erfitt að
svara þessari spurningu á einn veg
því það er svo misjafnt hvað virkar í
samböndum . hjá fólki," svarar
Maggý þegar talið berst að góðu ást-
arsambandi sem einkennist af
ánægju, ástríðu og umfram allt
góðu jafnvægi. „Þó að við getum
kannski nefnt stóru atriðin sem
verða að vera til staðar og það er
fyrst og fremst traust og virðing. í
okkar tilviki er allt svo auðvelt. Lífið
er svo gott eftir að við byrjuðum
saman. Við vegum hvor aðra upp og
það ríkir mikið traust á milli okkar.
Við elskum að vakna saman á
morgnana og að fara að sofa saman
á kvöldin því stundum eru þetta
einu tímarnir sem við fáum saman
þegar það er mikið að gera og við
pössum okkur að gleyma okkur
aldrei í hversdagsleikanum og reyn-
um alltaf að gera eitthvað skemmti-
legt saman þegar tími gefst til," út-
skýra þessar ungu og fallegu ham-
ingjusömu konur sem gengu í heil-
agt hjónaband frammi fyrir guði og
mönnum. Við þökkum Maggý og
Evu fyrir fallega, opinskáa og ein-
læga frásögn.
spamadur@dv.is
Gestirnir stíga dans
„Báðar fjölskyldur okkar og vinir okkar hjálpuðu
"okkur við undirbúning brúökaupsins.“
Hamingusamar saman
,,Og fyrst við vorum svona hefðbundnar með
þetta allt saman þá ákváðum við aö dansa
bruðarvalsinn. Það gekk áfallalaust fyrir sig
enda höfðum við fengið fagmann tilþess að
tara I gegnum þetta með okkur."
Bruðartertan skorin
Stelpurnarskáru
brúðartertuna sem
fósturmamma Evu hafði
bakað fyrir veisluna.
Nýgiftar ígtæsivagniá
leið úr kirkjunni.
Brúðarvalsinn
Hér er á ferðinni sönn
ást.erhægtað gera
sér I hugarlund feg-
urri giaðning?
Við altarið í kirkjunni
'effunölÍT æTð“™vi& °kkur ekk'að 9ifta okkurfkirkju, e
eftir aðhafarætt við Jónu Hrönn fannst okkur það vera bara
svo rétt og saum athöfnina fyrir okkur."
Innbyggðir klósettkassar og
Villeroy & Boch WC skálar í úrvali