Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Qupperneq 18
18 LAUGARQAGUR 24. SEPTEMBER 2005
Helgarblaö DV
Nýlega tóku nokkrar konur sig saman og mynduðu hóp áhugakvenna
um mótorhjólaakstur. Formlega hefur klúbburinn ekki verið stofhaður en
hann hefur fengið nafnið Skutlumar. Sem gæti ekki verið meira réttnefni.
Þama em skutlur á öllum aldri og athygli vekur hversu margrar þeirra em
komnar yfir miðjan aldur. Helgarblaðinu tókst að króa þijár af og spyrja
þær nánar um áhugamálið.
Rúðurnar
hristast þegar
Dídí setur í gang
Ekki lengur Stefnan að þrír
hnakkskraut hjá ættliðir hjóli
eiginmanninum saman
Herdís Karlsdóttir, kölluð Dídí, er sölu- og mark-
aðsfulltrúi og starfar hjá BB-skiltum sem eru í eigu
sambýlismanns hennar, Baldurs Baldurssonar.
Herdfe er 54 ára og á þijú böm og þijú ömmuböm.
Hvenær vaknaði mótorhjólaáhuginn?
„Ég kynntist manni,“ segir Herdís
hlæjandi. „Það var einmitt um það
leyti sem ég ætlaði að einbeita mér
að ömmuhlutverkinu af fullum
kraftí. Ég byrjaði sem hnakka
skraut og sat bara aftan á, en
svo fannst mér það ekki nóg
og ákvað að læra sjáif.“
Áttu hjól?
„Já, einn morguninn
leiddi sambýlismaðurinn mig
út að pickupinum sínum og
sagði: Hvemig líst þér á? Uppi á
pallinum stóð mótorhjólið mitt,
æðislegt Yamaha V-Drag 650.“
Hvað er aðalkikkið?
„Útíveran og félagsskapurinn. Mér
finnst lyktin af malbikinu góð og gott að finna vind-
inn leika um mig. Svo em auðvitað drunumar. Ég er með
spes hljóðkút þannig að þegar ég set í gang hristast rúðumar
í nágrenninu."
Hversu oft hjólar þú?
„Ailtaf þegar tími gefst og veðtn1 leyfir."
Ertu með krómdeilu?
„Já, ég er með mikið króm á mínu hjóli sem er mjög skraut-
legt. Það kemst varla meira króm fyrir. Maður smitast af þessu. “
Áttugaila?
„Að sjálfsögðu. Ég fór daginn eftir að ég fékkk hjólið og
keyptí mér goretexgalla því það hentar best íslenskri veðráttu.
Leðurgallinn er næstur á dagskrá."
Er þetta dýrt sport?
„Hjólið er dýrt svo þetta er nokkur stofnkostnaður. En svo er
þetta bara viðhald gg krómið kostar auðvitað talsverðan pen-
ing."
Hvað Bnnst bömum og bamabömum?
„Vrnum bamanna minna finnst að þau eigi æðislega töff
mömmu. Strákamir mínir em að venjast tilhugsuninni og dótt-
ur minni finnst ég bara töff."
Ertu töffari?
Ása Gíslason skrifstofumaðnr er 54 ára. Hún var
búin að sitja aftan á hjdli eiginmannsins í tæp
fjörutíu ár þegar hún ákvað að byrja sjálf.
Hvenær vaknaði áhugirm?
„Það em ekki nema þrjú ár síðan. Fram að því hafði ég
verið hnakkskraut hjá manninum mínum. Við vomm
fimm konur sem ákváðum að drífa okkur á námskeið
og fara sjálfar að hjóla."
Áttu hjól?
„Já, rosalega flott Harley Davidson-
hjól."
Hvað er aðalkikkið?
„Mér finnst ég svo frjáls á hjólinu
og svo er kikk í félagsskapnum."
Hversu oft hjólar þú?
„Ég er farin að hjóla mjög oft eftir
að ég kynntist þessum
skemmtilegu
stelpum, og
nú emm
við búnar
að mynda
klúbbinn
Skutlum-
ar."
Ertu með
krómdellu?
„Nei, ég er
ekkert upptekin
af því. Maður-
inn minn er hins
vegar með
króníska krómdellu
og mér finnst alveg
nóg að hann sjái um
það."
Er þetta dýrt sport?
„Ekki þegar búið er að kaupa hjólið. Þá er þetta aðaliega
bensínið."
Áttu galla?
„Já, allar sortir."
Hvað finnst börnum og bamabömum?
„Ég á bara eina dóttur sem hjólar líka. Henni finnst ég
töff að hafa slegið til."
Ertu töffari?
Rannveig Höskuldsdóttir er starfsmaður Háskóla
fslands. Hún er 54 ára og búin að hjóla í þrjú ár.
Hvenær vaknaði áhuginn?
„Bömin mín hafa verið á hjólum
mörg ár svo það var annað
slá til og
/erða út-
undan."
Áttu hjól?
„Já, tvö frekar
en eitt. Ég nota
þó aðallega ann-
að sem er
Yamaha Drag-
Star."
Hvað er
aðalkikkið?
„Þetta er allt
skelfilega gaman
og allt önnur og
ný upplifun á um-
hverfinu. Frjáls-
ræðið er æðislegt og
tilfinningin að ráða við
þetta stóra þunga hjól."
Hversu oft hjólar þú?
„Daglega meðan veður leyfir. Ég
fer á hjólinu í og úr vinnu og svo í lengri og styttri ferðir
þegar ég get. Það þýðir ekkert annað þegar maður er kom-
inn á þennan aldur en að stunda þetta stíft. Annars verður
maður alltaf smeykur."
Ertu með krómdellu?
„Ég ligg soldið inn á e-bay að leita að dóti og vantar enn
ýmislegt á hjólið. En nei, ekki beint dellu."
Er þetta dýrt sport?
„Já, ég myndi segja það."
Áttugalla?
„Já, þrenna, bæði goretex og leður."
Hvað Gnnst bömum og bamabömum?
„Bömin hjóla og stefnan er að hjóla í þrjá ættliði. Dóttir
mín er besta hjólavinkonan og enn sem komið er hjólum
við með bömin aftan á. Ég hlakka til þegar þau komast á
þann aldur að fara að hjóla sjálf. Þeim finnst ég auðvitað
bara kúl."
Ertu töffari?
„Já, ég myndi segja það, ég er búin að vera í hestamennsku
í 24 ár og, jú, ég er örugglega töffari."
„Ja, getur maður sjálfur dæmt um það? Jú, miðað við „Já, og dellumanneskja. Þetta er ömgglega ekki fyrsta og
aldur er ég sennilega bara nokkuð töff." ekki síðasta dellan."