Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2005, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2005
Helgarblað DV
'mk
| Jt l 1 41 j\ . 'N,l
m á ml'AJ
Stórsöngkonan Halla Margrét Arnadóttir gekk að eiga sinn heittelskaða, ítalann Paulo, í
Ráðhúsinu í Parma 10. september. Engu var líkara en borgin öll ljómaði af hamingju þennan
dag og ekki var síðra í sveitinni þar sem brúðkaupsveislan var haldin. DV fylgdist með.
veislan í sveitinni
£9 Brúðhjónin ásamt Guð-
Ifinnu, fjórtán ára dóttur
Höllu Margrétar, og bræðr
unum Sigurði og Elliða Að
alsteinssonum. Guðfinna
■i náði þeim merka áfanga
§ nð vera með hæstu ein-
■ kunn af öllum grunn-
skólakrökkum á Italíu og
«j? var boðið til móttöku til
■ Róm að því tilefni síðast-
■ liðið vor. Framundan eru
■ menn taskólaárin.
Hamingjan lá í loftinu, sólin
skein og fólk lék við hvem sinn
fingur þegar stórsöngkonan Halla
Margrét Arnadóttir gekk í heiiagt
hjónaband og hét ævilangri tryggð
við hann Paulo sinn. Fáar íslenskar
konur hafa sungið bettn en Halla
Margrét og enn færri brosað jafn
breitt og af einlægni og hún þennan
dag. Allt svo bjart.
Halla Margrét, sem sló fyrst í
gegn þegar hún flutti Eurovisionlag
Valgeirs Guðjónssonar Hægt og
hljótt í Eurovision árið 1987, hefur
verið búsett á Ítalíu undanfarin ár.
Þar hitti hún Paulo, sem er þekktur
veitingahúseigandi í Parma, en sam-
an búa þau á sveitasetri rétt utan við
borgina og una hag sínum vel. Svo
vel að brúðkaup varð eins og sjálf-
sagt svar við einfaldri spurningu.
Hreinræktaður gleðileikur
„Þetta var meiriháttar,“ segir Sig-
urjón Aðalsteinsson, deildarstjóri
hjá Fiskistofu, sem var svaramaður
Höllu Margrétar og mættí í brúð-
kaupið ásamt bróður sínum, Elliða
Aðalsteinssyni, vélstjóra á Vest-
mannaeyjaferjunni Herjólfi. Þeir
bræður em ífændur Höllu Margrét-
ar; mæður þeirra em systur. „Brúð-
kaupið var hátíðlegt og veislan
glæsileg," segir Sigurjón sem er ný-
kominn heim úr þessari skemmtí-
legu ferð þar sem hann varð vitni að
hreinræktuðum gleðileik sem engan
endi virtíst ætla að taka: „Það var svo
gaman,“ segir hann.
Ástin sýnir sig rétta andlit
Halla Margrét og Paulo giftu sig í
Ráðhúsinu í Parma og var sjálfur
borgarstjórinn viðstaddur. Að
athöfninni lokinni var slegið upp
veislu á heimili brúðhjónanna í sveit-
inni rétt utan við borgina. Nágrannar
Höliu Margrétar og Paulo tóku einnig
þátt í gleðinni og sýndu þá tillitsemi
að hafa kýr sínar innandyra á meðan
gestimir óku í hlað. Þeir vildi ekki láta
neitt tmfla þá gleði sem í vændum
var. Þannig em ítalir þegar ástin sýn-
ir sitt rétta andlit.
Svo var drukkið, dansað
og hlegið fram eftir nóttu.
Þannig eru ítalir þeg-
ar ástin sýnir sitt rétta
andlit. Svo var drukk-
ið, dansað og hlegið
fram eftir nóttu.
Endalaus ástaróður
Söngferill Höllu Margrétar er síð-
ur en svo á enda þó svo að hún hafi
fest ráð sitt og sé nú orðin eiginkona
í ítalskri sveit. Það er stutt til borgar-
innar þar sem Paulo, eiginmaður
hennar, rekur einn vinsælasta bar-
inn í bænum. Enda létu fastagestír
kráarinnar sig ekki vanta í brúð-
kaupið og glöddust með líkt og þeir
gera hvern dag yfir fyrsta drykknum.
Halla Margrét ætlar að halda áfram
að syngja með sínu sérstaka lagi og
þá ekki síst þann söng sem mestu
skiptir; ástaróðinn til eiginmannsins
og framtíðarinnar sem bíður þeirra
beggja - saman.
I anddyri Ráðhússins í Parma
Brúðhjónin gangast við gesti, ný-
stigin út úr glæsibifreiðinni sem
fylgdiþeim allan daginn.
Brúðhjónin í Ráðhúsinu í Parma
Halla Margrét og Paulo.Við hlið
brúðarinnar er ítölsk vinkona henn-
ar og svo svaramaðurinn, Sigurjón
Aðalsteinsson.frændihennarog
edí deildarstjóri hjá Fiskistofu.
Tekið við hamingjuóskum
Halla Margrét ísfmanum á meðan Sig-
urjón frændi hennar hellir upp á kaffí.
Brúðkaupsveislan var haldin á heimili
þeirra Höllu Margrétar og Paulo.
Með borgarstjóranum í Parma
Nýgift. Maðurinn með borðann er
borgardómarinn sem gafþau saman.