Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Blaðsíða 3
'DV'.flyntog frenist FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 S3 Er spilling á íslandi? Spilling hjá bensínköllunum „Já, þaö er töluverð spilling á Islandi. Spillingin er sérstaklega mikil hjáþessum bensínköllum." Harpa Grétarsdóttir nemi. f Samkvæmt stofnuninniTransparency International er fsland það land í heimi þar sem minnst spilling þrífst innan stjórnkerfisins. En talaði stofnunin við fólk- ið á götunni? „Nei, ég held að það sé ekki mikil spill- ing á íslandi." Guðmundur Baldvinsson ellilífeyris- þegi. „Já,að sjálfsögðu. Það er nú bara eins og annars stað- ar.‘‘ Sigríður Kjart- ansdóttir móttöku- dama. „Já, það held ég alveg örugglega." Anna Ýr Gísla- dóttir nemi. „Já, ég held að það sé Sþilling á mörg- um stöðum i þjóðfélaginu en hún birtist í mis- munandi mynd- um.“ Tomislav bar- þjónn. . Brúðkaup í Englandi Það jafnast eklcert á við enskt brúðkaup. Ég tala nú ekki um ef það er í sól og blíðu, í iðjagrænni enskri sveitasælu og meira að segja í minni elskuðu Austur-Anglíu þar sem einn uppáhaldsrit höfundur minn, George Orwell, sat sumur löng og skrifaði. Já, ég eyddi helginni í brúðkaupi hjá Maríönnu Bye, dótt- ur míns gamla kenn- ara á mínum gömlu slóðum í Suffolk Englandi. Það var sól og hálfgert sumar ennþá. Brúðkaupið var í stóru gömlu húsi frá sextándu öld sem er miðja vegu milli strand- ar og smábæjarins Beccles, þar sem íslensku kiljurnar eru kannski ennþá prentaðar. Blóm- in voru ljósrauð, og brúðar- meyjarnar í kolsvörtum síðum kjólum og Maríanna í hvítu - og svörtu. Áður en árin réð- ust að skeggi mínu og gerðu það brúnt grátt það einsog á sjó- ræningja. Maríanna litla ruglaðist gjarnan á því og skeggi pabba hennar sem var líka rautt, og kall- aði mig stund- um pabba þeg- hún var nýorðin og var rautt talandi fyrir aldar- fjórðungi eða svo. Nú er hún hluti af vösku liði Tony Blair sem berst gegn eiturlyfjum og því sem kallast „antisocial elements.“ Hörð í horn að taka og Ric- hard maðurinn hennar skrifar ræður fyrir nýjan menntamálaráðherra Verkamannaflokksins, Ruth Kelly, sem líkt og menntamálaráðherr- ann olckar er eini kaþ- ólikkinn í ríkisstjórn- inni. [...] Kvöldið fyrir brúðkaupið hitt- ust í fyrsta skipti fjölskyldur brúðhjónanna og við borðuðum öll saman útí sveitinni á litlum veitingastað. Þau að norðan og Bæjararnir að sunnan, frá Lundúnum og Austur-Anglíu. Á eftir fórum við öll á lítinn sveitabæ sem fjölskyldurnar höfðu til dvalar yfir helgina. Það var hálfvand- ræðalegt. Ég bjargaði málunum með ís- lensku að- ferðinni. Skellti á borðið íslensk- um hákall og spanderaði báðum brennivíns- flöskunum sem ég hafði ætlað lærimeistara mínum til áramót- anna. Það hreif. Á nokkrum ís- lenskum prómillum skelltist liðið saman einsog íslensk sveitafjöl- skylda. Daginn eftir gekk ég svo undir nafninu „The shark-man“ í nærsveitum. I tilefni Iceland Airwaves langar mig að rifja upp bak- grunn minn í rokkbransanum. Sem ungur maður var ég í hæsta máta óefnilegur. Nám átti ekki við mig og ég flosnaði upp úr menntaskóla á öðru ári. Ég batt bagga mína sömu hnútum og aðrir óefnilegir, ungir menn og saman stofnuðum við efnilega rokkhljómsveit. Eins og þetta hljómaði óefnilega virtust foreldrar mínir aldrei hafa neinar tiltakanlegar áhyggjur af þessu brölti mínu og hvöttu mig áfram ffekar en hitt. Einn vinur minn sem var með okkur í hljómsveitinni átti hins vegar í tómu basli með að gefa sig allan í rokklífið. Hann var með kærustu á bakinu sem nauðaði í honum að klára stúdentinn, svo hann myndi ekki enda uppi jafn glataður og við. Þetta varð til þess að hann hætti í bandinu og fór menntaveginn. Ég varð hneykslaður á þessum vini mínum. Talaði ekki við hann í ár á eftir. En við hinir héldum áfram ótrauðir í leit að hinum fullkomna hljómi og allri þeirri frægð sem því mundi fylgja. Ferð- uðumst um heiminn, sannfærðir um að hann legðist af fótum okkar. Þá var ekk- ert til sem hét Loftbrú, eða styrkir frá iðnaðarráðuneytinu. Einu sinni fóru tveir úr hljómsveitinni á fund með Svavari Gests syni, þáverandi menntamálaráðherra, tU að væla út pening fyrir utanlandsferð, en hann vildi ekkert gera. Þetta var á - tímum skyldusparnaðar og mér tókst að særa hann út með herkj- um. Hann fór allur í rokkið. Og það kemur ekki upp sú sekúnda sem ég sé eftir þessum tíma. Rokkið var minn framhalds- og há- skóli. Rokkbransinn er eins og smækkuð útgáfa af hagkerfmu. Rokkhljómsveit er smækkuð útgáfa af fyrirtæki. Framboð, eftirspurn, markaðssetning, PR, framleiðni, framleiðslugeta, framlegð, sam- keppnisstaða, markaðshlutdeild. Allt eru þetta hugtök. sem eiga við í smáfyrirtækinu rokkhljómsveit, þó svo að maður vissi það kannski ekki þá. Ég útskrifaðist eftir sjö ára nám í Viðskipta- og listaháskóla Rokks- •ins. Rokkið gerði mig að manni. Vinur minn, þessi sem ég sagði ykkur frá áðan; hélt áfram í námi og býr nú í Kóreu eða Kína og nemur enn. Kínverska sögu, held ég. Fínt fyrir hann. En við æsku lands- ins vU ég segja þetta: For those about to rock, we salute you! Kiallan Sigurjón Kjartansson Þar sem iökulinn ber við loft... A Búðum eru einstakar aðstæður fyrir árshátíðir, hvataferðir, vinnuhelgar, ráðstefnur, jólagleði og hvers kyns hópefli. I aðeins tveggja stunda fjarlægð frá Reykjavík er ævintýralegasta fundaraðstaða Islands. Við \iljuni ekki gorta okkur af einstakri matargerðinni, glænýjum fundarsalnum, jöklinum, ströndiimi, golfinu, hesttmum, hrauninu og töfrunum. Þess vegna segjum við bara: ef fólkið þitt á skihð það besta skaltu bóka á Búðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.