Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005 Fréttir 0V Flensulyfrýk- ur út Svissneska lyfjafyrirtækið Roche þarf að hafa sig allt við til að anna ásókn hinna ýmsu ríkisstjóma í íuglaflensulyfið Tamiflu. Eftirspurnin jókst mun meira en sérfræðingar fyrirtækisins spáðu fyrir og síðustu þrjá mánuði hefur það selt lyfið fyrir rúma 13 milijarða króna. Svissneska lyfjafyrirtækið mætir eftir- spurninni með því að marg- falda ffamleiðslugetu sína úr 100 milljón skömmtum af Tamiflu. Enda veitir ekki af. Bretar keyptu nýlega 15 milljónir og hyggja á ffekari kaup. Hundur handtekinn Lögreglan í Keflavík hafði afskipti af bifhjóla- manni í Grindavík í gær þar sem hann var að aka um á númerslausu og ótryggðu hjóli. Við nánari athugun kom í ljós að hann var einnig ökurétt- indalaus. Um fimmleytið í gær hafði lögreglan uppi álausumhundivið Hátún í Keflavík. Lögregl- an fór með hundinn í geymslu á Heilbrigðiseft- irliti Suðumesja. Hundur- inn er skosk-íslenskur, svartur og hvímr. Börnin heim „Ég þarf að senda sex til sjö böm heim þessa vikuna vegna veikinda starfsfólks," segir Svala Ingvarsdóttir, leikskólastýra á leikskólanum Lækjaborg í Reykjavík. Vegna manneklu þarf að grípa til þessa ráðs þegar upp koma veikindi starfs- fólks. Lækjaborg á enn eftir að ráða í tvö stöðugildi. „Það er h'tið af fólki að hafa og fáar umsóknir sem berast," segir Svala. Glœpasögur Snæbjörn Arngrfmsson framkvæmdastjóri bókaútgáf- unnarBjarts. „Ég les meira afsakamálasög- um en ævisögum. Ég les glfur- lega mikiö afþríllerum. Ann- ars fer þetta eftir bókum, ég vil frekar lesa góöa ævisögu en lélega glæpasögu." Hann segir / Hún segir „Ég vil heldurævisögur, ég er meira fyrir þær. Mérfinnst alltaf áhugavert aö lesa um fólk sem hefur gert eitthvað spennandi I llfinu. Einhvern veginn hefég aldrei komist uppá lag meö að lesa spennu- sögur." Hildur Hermóðsdóttir eigandi bókaútgáfunnar Sölku. Vinkonur úr Reykjanesbæ fóru til Grindavíkur til þess að hitta sjómanninn Bjarna Kristinn Ólafsson. Ein vinkonan, Hanna Þurý Ólafsdóttir, segir Bjarna hafa gert einni þeirra óleik. Þær hafi viljað ganga úr skugga um að hann sæi eftir því. Uppi varð fótur og fit við komu stúlknanna til Grindavíkur sem endaði með útkalli lög- reglunnar í Keflavík. Ég sá hana kyssa annan strák og varð brjálaður, segir Bjarni. Ástarskot fór úr böndunum T * i Lögreglan í Keflavík Mættii Grindavík tilþess að stöðva hugsan leg hópslagsmál. „Þeir hefðu ekki gert rassgat í málirtu, þeir gera ekki einu sinni neitt í nauðgunum „Við ætluðum ekkert að lemja hann,“ segir Dóra Stefánsdóttir, en hún er ein af fjórum stúlkum sem leiddu hóp 40 ungmenna til Grindavíkur á mánudagskvöldið vegna ástarhefnda. Atburða- rásin gæti verið úr bandarískri unglingamynd. Lögreglan í Keflavík var kölluð út vegna þess að hópur ungmenna var saman kominn fýrir utan sjoppuna Aðalbraut í Grindavík. Mikill æsingur var í ungmennun- um og taldi lögreglan að það gæti leitt til slagsmála. Hópur úr Keflavík hafði gert sér ferð til Grindavíkur til þess að gera upp sakir við ungmenni í Grindavík. Lögreglan mætti á svæðið á tveimur bflum og tókst, með tiltali, að koma í veg fýrir að átök ættu sér stað en hópurinn leystist smám saman upp. Eitthvað var um pústra en engin slys urðu þó á fólki. Stolinn koss Forsaga málsins er eins og gott handrit fýrir íslenska sápuóperu þar sem ástir og átök koma fýrir. Helgina áður hafði sautján ára piltur úr Grindavík, Bjami Kristinn Ólafsson, átt í stuttu sambandi við Dóm Stef- ánsdóttur sem er sextán ára. Þau kynni enduðu illa í gleðskap í heimahúsi. Dóra segir Bjama Kristinn hafa ógnað sér, gripið um háls hennar og reynt að kyssa hana. Hún segist hafa haldið að Bjarni Kristinn hafi ætlað að berja sig því reiði hans hafi verið yfirþyrmandi. Hún telji vinkonu sína hafa komið í veg fyrir það með því að koma inn í herbergið þar sem þau vom. Hópferð til Grindavíkur Hanna Þurý Ólafsdóttir, vinkona Dóm, segir að þær vinkonurnar hafi ákveðið að leita ekki til lögreglu vegna málsins. „Þeir hefðu ekki gert rassgat í málinu, þeir gera ekki einu sinni neitt í nauðgunum," segir Hanna Þurý. Eftir þetta atvik ákváðu stelpurn- ar að fara til Grindavflair, þar sem Bjarni býr, og tala við hann að því er þær segja. Sú heimsókn endaði með því að lögreglan í Keflavík skarst í leikinn. Hún er kexrugluð „Ég sá hana kyssa annan strák þegar ég var að sækja hana og vin- konu hennar. Þá varð ég bara brjál- aður. Siðan laug hún að mér að hún ætti kærasta en ég vissi það al- veg að hún ætti ekki kærasta þannig að ég kallaði hana bara dmslu," segir Bjami Kristinn. Þrátt fyrir allt sá Bjarni eftir þeim orðum sem hann lét falla um Dóm. Hann sendi henni skilaboð sam- dægurs og baðst af- sökunar á því að hafa kallað hana druslu. „Ég myndi aldrei leggja hendur á stelpur, það er ekki séns. Vinkonur hennar dreifðu síðan sögum um mig að ég hafi ætíað að lemja hana. Hún hefur bara eitthvað misskilið þetta." Bjami Kristinn segir að ferð ung- menna úr Keflavík hafi snúist um það að berja hann. „Ég fór bara og náði í vini mína því það vom strákar með þeim og við vomm tilbúnir til þess að beija þessa gaura," dregur hann upp stöðumynd af vettvangi áður en lögreglan blandaði sér í leik- inn. Bæði Bjarni og Dóra segja málið nú búið. Ekki sé að vænta frekari árekstra hjá vinahópum þeirra. atii@dv.is Dóra Stefánsdótt- ir Aðalstúlkan í ótrú- legri atburðarrás. Kokteilboð Gísla Marteins um helgina Vífilfell borgaði drykkina Borgarstjóraffambjóðandinn Gísli Marteinn Baldursson hélt glæsilegt kokteilboð á Hótel Nordica síðustu helgi. Borgin var full af Sjálfstæðis- mönnum enda landsfundur flokks- ins í gangi. Gísli Marteinn þurfti ekki að borga fyrir kokteilboðið sjálfur heldur naut hann aðstoðar aðila úr viðskiptalífinu. „Framboð mitt greiddi fýrir kok- teilboð sem haldið var ríflega fimm hundmð stuðningsmönnum mínum á Nordica hóteli á föstudaginn. Framboðið er stutt af hundruðum einstaklinga og tugum fýrirtækja sem deila framtíðarsýn minni um breytta tíma í Ráðhúsi Reykjavíkur," segir Gísli Marteinn um kokteilboðið. Þeir aðilar sem Gísli vísar til í þessu tilviki er annars vegar Vífilfell en Þorsteinn Jónsson, aðaleigandi Coke hér á landi, er stuðningsmaður Þorsteinn Jónsson aðal- eigandi Coke Dyggurstuðn- ingsmaðurGisla Marteins. m eins verður hald- ið í Iðu á föstu- daginn. Samið í Kópavogi Gísla. Til marks um það var aðeins af- greiddur Carlsberg bjór á Nordica þetta kvöld. Vanalega skiptir Hótel Nordica við Ölgerðina. Hin glæsilega umgjörð Nordica kostar einnig sitt en þar var FL Group, eigandi Hótel Nordica, Gísla Marteini innan handar. Og eftir því sem kosningabaráttan dregst á langinn mun kok- teilboðunum fjölga - það næsta á vegum Gísla Mart- Gísli Marteinn Bald- ursson borgarstjóra- frambjóðandi „Fram- boðið er stutt afhund- ruðum einstakiinga og tugum fyrirtækja." Starfsmannafélag Kópavogs skrifaði í gær undir kjarasamning við Launanefnd sveitafélaga. Fé- lagsmenn hafa í tvígang fellt samninga við launanefndina en formaður félagsins, Jófriður Hanna Sigfúsdóttir, er bjartsýn á að nýjasti samningurinn verði samþykktur. Helstu breytingar á samingnum nú eru þær að samið hefur verið um að tengingu launa félagsmanna við starfsmat sem nú er í vinnslu verður flýtt til 1. janúar 2006. Einnig er samið um ákveðnar eingreiðslur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.