Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Qupperneq 24
Kristín Ruth Jónsdóttir, einn af stjórnendum morgunþáttarins Zú- ber og dóttir hins góðkunna úvarpsmanns Jóns Axels Ólafsson- ar, er mikið jólabarn. Hún segist njóta þess að vinna í útvarpi og lítur mikið upp til föður síns sem hún segist hafa lært mikið af. Jólastelpa „Snjór er eitthvaö sem verður aö vera. Snjóinn þarf til að koma manni I fuilkomna jólaskap- iö, og auðvitað til að komast á bretti og sieöaferðir I fríinu.“ — Kristín Ruth Jónsdóttir, einn af stjómendum morgunþáttarins Zúú- ber, er á fyrsta ári í viðskiptafræði við Háskóla Reykjavfkur. Hún er jólabam og nýtur þess að vera í Skorradalnum með pabba sínum, Jóni Axeli Jóns- syni, og fjölskyldunni yfir hátíðamar. Þetta var eins og halda jól í amerískri bíómynd! „Við emm fjögur saman í þættin- um," svarar Kristín Ruth Jónsdóttir sem starfar ásamt útvarpsfólkinu Svala, Gassa og Jóhönnu í þættinum Zúúber á FM 957 á morgnana milli klukkan 7-10. „Við gerum okkar allra besta til að koma landsmönnum framúr og fylgjum hlustendum okkar brosandi í vinnuna eða skólann. Ég sé um að gefa hlustendum upplýsingar um umferðina og bestu leiðimar og færð á helstu vegum landsins. Svo - geri ég líka at eða hrekki í fólki í beinni útsendingu, eins og til dæmis að syngja í strætó. Ég heimsótti borgar- stjórann, reyndi við Sverri Bergmann, þóttist vera starfsmaður ykkar hjá DV,“ segir Kristín hlæjandi og það má sjá að hún hefiir lært ýmislegt af föð- ur sínum sem er Jón Axel Ólafsson, útvarpsmaðurinn góðkunni. „Pabbi er búinn að vera viðloðandi útvarp mjög lengi. Hann var á Rás 2, Stjöm- unni og Bylgjunni," segir Kristín ánægð með pabba sinn sem var með útvarpsþáttinn Tveir með öllu hér um árið ásamt Gulla Helga. „Ég er rosa- lega stolt af honum og lít upp til hans. Pabbi og Gulli em mínar fyrirmyndir í útvarpi. Miklir reynsluboltar og ég ''hlusta vel og vandlega ef pabbi gefúr mér ráð eða annað um framkomu mína f útvarpi. Ég hef lært mikið af honum.“ Með pabba í útvarpinu „Ég upplifði það bara á jákvæðan hátt þegar pabbi vann í útvarpi. Ég hef tengst útvarpi frá því ég fæddist og það hlaut að koma að þvf að ég færi að fikta við að tala í míkrófón- inn. Ég fékk oft að fylgjast með pabba þegar hann var í útsendingu og svo komu stundum inn nokkur innslög frá mér þar sem ég var lítil stelpa og varð nú að leggja mitt orð með í umræðuna, beðin eða ekki. Pabbi gerði mikið í því að útskýra fyrir mér og sýna hvemig hlutimir virkuðu. Hann sýndi mér hvemig ætti að gera þetta með stæl.“ Afmælisveisla á FM „Á morgun eigum við í Zúúber eins árs afmæli. Enginn af okkur trú- ir að það sé heilt ár liðið," segir þessi fallega stúlka sem er greinilega ánægð með útvarpsstarfið. „Hlust- endur samgleðjast með okkur á morgun og síðan eiga margir þjóð- þekktir fslendingar eftir að fagna með okkur eins og Skítamórall, Ira- fár, Kalli Bjami, Svala Björgvins, Simmi og Jói og Magni í Á móti sól, svo einhveijir séu nefndir. Gleðin hættir ekki þar því við ætlum að bjóða hlustendum með okkur í bíó á nýju Zorró-myndina sem er ekkert nema meistaraverk og eftir bíó höld- um við aftur á Óliver þar sem veigar em f boði fyrir þá sem ætla að fagna með okkur á afmælisdaginn." Jólin beint í æð „Christmas Vacation er það sem allir ættu að horfa á yfir hátíðarnar," svarar Kristín spurð um hvað skapi sanna jólastemningu. „Ég horfi bara á hana einu sinni á ári og hlakka alltaf jafn mikið til. Ég get varla beð- ið eftir að sjá hana um næstu jól. Jólalög em líka eitthvað sem er nauðsynlegt að hlusta á. Setja þau í spilarann svona í lok nóvember og hafa þau undir í bakgmnni við baksturinn og annað. Annars finnst mér nauðsynlegt á jólunum og í kringum jólin að vera í kringum þá sem mér þykir vænst um og eyða þessum fallega tíma með þeim," segir Kristín og bætir við að jóla- skrautið sé nauðsynlegt að sama skapi. „Það lffgar svo upp allt um- hverfið og gleður mig líka mikið. Ég væri búin að skreyta í ágúst ef ég mætti það. Ég er algjört jólabam og dýrka allt sem er í kringum jólin! Jó- laundirbúningurinn, jólagjafimar, baka laufabrauð og smáköktn, fara niður í bæ og upplifa stemninguna þar sem ég fæ jólin beint í æð og það sérstaklega á Þorláksmessu." Falieg jól með þeim sem skipta máli „Fjölskyldan á æðislegan sumar- bústað í Skorradal sem er meira eins og heilsárshús frekar en sumarhús og þar eyðum við öllum okkar frí- stundum og viljum helst vera þar alltaf þegar við getum því þar er allt til alls. Eg hef alist meira og minna upp þar og nýt þess í botn að slaka á og njóta h'fsins í náttúmnni," segir Kristín og ljómar við frásögnina en segir einnig að í Skorradalnum sé svo mikil ró og góð orka sem eflir hana. „Það er alltaf gott að komast úr amstrinu á einhvern stað þar sem maður nær algjörlega að hreinsa hugann." Pabbi kom með klikkaða hugmynd „Það var rétt fyrir síðustu jól að pabbi kom þá með sniðuga hug- mynd og draum sem átti alltaf eftir að framkvæma hjá okkur feðginun- um. Það var að vera í bústaðnum okkaryfir jólin. Klikkuð hugmynd og ég var nú ekki lengi að samþykkja hana," segir Kristín og hlær innilega og heldur áfram: „Við fómm í það að „Síðan þegar upp eftir var komið var rosalega jólalegt þegar við vorum búin að hengja upp jólaljós i greinarnar allt í kringum bústaðinn en það gekk ekki áfallalaust fyrir sig þar sem pabbi er nú ekki sá þolinmóðasti Stolt af pabba „Ég er rosalega stolt afhonum og Ift hiklaust upp til hans. Hann og Culli eru mlnar fyrirmyndir I útvarpi. Miklir reynsluboltar. Ég hlusta vel og vandlega efpabbi gefur mér ráð eða annað um framkomu mlna I útvarpi. Ég heflært mikið afhonum." skipuleggja og skrifa niður allt sem þarf fyrir jólin til að gera þau sem allra best og eftirminnilegust." Þorláksmessu lögðum við af stað og vorum þar til jóladags. örk- uðum öll saman, pabbi, ég, Óli bróð- ir minn og Tumi hundurinn okkar í búðina og keyptum allar nauðsynjar. Þú veist, jólaljós, jólaskraut og allt sem byrjar á orðinu „jóla-“. Ham- borgarhrygginn, kartöflumar, baun- imar, rauðkálið, sósuna, appelsín og malt, ís og ávexti í eftirrétt og nammi fyrir allan peninginn," segir Kristín og blaðamanni er skemmt við frá- sögnina. „Síðan var lagt af stað með jólalögin alveg í botni alla leið og það endaði með því að geislaspilarinn hætti bara að spila og neitaði að spila fleiri jólalög. Síðan þegar upp eftir var komið var rosalega jólalegt þegar við vorum búin að hengja upp jóla- ljós í greinamar allt í kringum bú- staðinn en það gekk ekki áfallalaust fyrir sig þar sem pabbi er nú ekki sá þolinmóðasti. Þetta endaði þó allt vel með tilheyrandi hlátri, föllum á rassinn og endalausum fimmaura- bröndumm," segir þessi ljúfa stúlka sem heldur áfram að segja okkur frá upplifun sinni í faðmi ástvina sinna. „Við vöknuðum við hvítan nýfallinn Einn af fjölskyIdunni „Hundurinn okkar heitir Tumi Jónsson og er tveggja ára labrador.Tumi er m.a.s. á póstkassanum og með netfang. Ofsalega stilltur og sérstaklega barngóður. Algjör draumur.“ snjó yfir öllu á aðfangadag og eftir morgunmat, heitt kakó og ristað brauð, fómm við út að ná okkur í jólatré sem við völdum okkur sjálf út í skógi," útskýrir Kristín brosandi og bætir við að þegar þau vom búin að velja rétta jólatréð söguðu þau það niður með könglum og öllu saman og tóku það síðan með sér inn í hús. „Þetta var eins og halda jól í amer- ískri bíómynd," segir hún, hugsar sig eilítið um og segir: „Algjört æði. Eft- ir hátíðarnar héldum við heim södd og sælleg með rosagóðan jólaanda í hjartanu yfir þessum yndislegu jól- um sem aldrei gleymast." elly@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.