Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2005, Page 27
DV Fréttir FIMMTUDAQUR 20. OKTÓBER2005 27 íslensku bækurnar brenna í Kaupmannahöfn Ur bloggheimum Myndarlegur en minnstur „Ég varl ferð með Herra Is- land. Við fórum í„óvissuferð“ meö Skjá einum og endaði húnmeð stæl Ég get þvl mið- ur ekki talað umþaðhérna hvað skeði hehehehe þvl við skrif- uðum undir samninga á sunnudaginn um það sem við máttum ekki gera. Enþettavar geggjuðferðogvorum 19 gæjar I henni. 19 harðir keppendur og allir þvilíkt myndalegir. Ég er með þeim minnstu Þannig það er stór mlnus held ég. En vona samt þaö besta." ÓU Geir Jónsson - blog.central.is/oli_geir Hraðskák við páfann „Einngóöurvinurminnhringir ailtafi mig þegar hanner að etja hraðskákvið páfann...ég skil ekki alveg þetta fetish I stráknum en það síðasta sem mig dett- urlhug þegar égsitá kló- settinu að fara að hringja I einhvern. Ég veit ekki meðykkur lesendur góðir en mér finnst þetta vægast sagt sjeiký framkoma hjá pilti.. Ég er oft mjög slmaglaður þegar ég er undir áhrifum áfengis en aldrei þegar ég sit sem fastast á klóinu..' Helgi Gunnarsson - blog.central.is/hefner Vísundaferð. Linu-Hönnun. Kárahnjúkar „Ég truflaði manninn skyndilega I miðjum lof-lýsingum hans og sagði lágt: "Það ernú bara verst með alla vesalings nátturuna.'Sakleysisleg at- hugasemd að ég hélt en þar hafði ég kolrangt fyrir mérlÉg dró framkvæmda- stjórann niður frá skýja- borgunum með skelli. Ég var ekki lengur krúttulegur fyrsta-árs verkfræðinemi heldur hafði á svip-stundu breyst I sjálfan djöfulinn. Augu hans skutu gneistum þegar hann spurði mig, umhverfis- geöskúklinginn, hvort ég hafði komiö á svæðið. Ég játti þvl sannleikanum sam- kvæmt og spurði hann mig þá. '..og þykir þér vænt um hvern stein sem þú sást I þeirri ferð/'Ég varö hálfkvumsa. Hverju skildi svar- að. Ég gat ekki sagt að ég hafði tekið ástfóstri við hvern stein sem ég sá I ferð minni um Kárahnjúkasvæðiö en svæðið var fallegt og ferðin eftirminnileg... Ég tók skyndiávörðun. Maðurinn horfði á mig illum augum og beið eftir svari. Tlminn stöðvaðist er ég opnaði hægt munninn til að svara. Kallinn beygöi sig nær mér og herbergið þagnaði aðmér fannst. "Hvar er klósettið...?’" Vala - blog.central.is/valfania 20. október árið 1728 kom upp eldur í Kaupmannahöfn og stóð í þrjá daga. Þá brann mik- ill hluti bókasafns Áma Magn- ússonar en flest skinnhandrit björguðust. Sumarið 1728 var hlýtt og þurrt og hélst veðurblíðan langt fram eftir hausti. Að kvöldi miðvikudagsins 20. október kom upp eldur i húsi Árni Magnússon Náði að bjarga hluta bókasafnsins. háskólahverfið, Frúar- kirkjuna og Þrenning- aridrkjuna en há- skólabókasafnið var á lofti hennar. Ámi Magnús- son (1663-1730) fór utan til náms í Kaupmannahöfn ungur og varð pró- fessor við Haftiarhá- skóla. Hann kom sér upp miklu safhi bóka, þar á Eldurinn mikli Brenndi stóran hluta borgarinnar. úti við Vesterport og varð það upp- hafið að miklum bruna sem geisaði fram á laugardagsnótt og lagði stóran meðal handrita. Langflest vom hluta borgarinnar í rúst. Þar á meðal íslensk frá öllum öldum íslenskrar við að bóksögu, frá 12. öld og fram á hans daga. Eldurinn grandaði miklum hluta prentaðra bóka Áma og fjölmörgum handritum, einkum úr hópi þeirra yngri. Garður Áma brann síð- degis á fimmtudeginum. Þegar hann fr étti um morg- uninn að tumspíra Frúar- Jdrkju væri fallin og ljóst J var að eldurinn yrði ekki haminn hófst hann handa bjarga bökasafni sínu. Hlóð I dag Árið 1969 sendi Leonard Kleinrock prófessor fyrsta rafpóstinn milli Los Angeles og San Francisco. I honum stóð LO en átti að standa LOG ON. bókum og húsgögnum á vagn og áður en yfir lauk tókst vagnekli Áma að brjótast í gegnum mannþröngina með nokkur vagnhlöss að húsi fyrr- verandi skrifaraÁma. Á banabeði ánaínaði Ámi Hafnar- háskóla ailar eigur sínar. Skóiinn var þá háskóli alls Danaveldis, þar á með- al Islands. Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum liðandi stundar. Airwaves fyrir alla Kristín hringdi: Mér finnst mjög leiðinlegt að tónlistarhátíðin Áirwaves sé bara fyrir eldra fólk. Ég er fjórtán ára gömul og hef mikinn áhuga á tón- list. Mér finnst hátíðin flott og þær hljómsveitir sem koma munu fram skemmtilegar. Samt sem áður kemst ég ekki inn á neinn af þeim stöðum þar sem tónleikamir á þess- ari hátíð em haldnir. Alls staðar er aldurstakmark því það er verið að selja vín og bjór fyrir tónleikagesti. Ég skil vel að sumir vilja drekka bjór þegar þeir em á tónleikum en um leið finnst mér að fleiri tónleika- staðir gætu verið vímulausir. Ef það yrði gert myndi fleira fólk örugglega koma á hátíðina. Síðan er aftur spuming af hverju það þarf endi- lega að selja bjór á tónleikum. Getur fólk ekki skemmt sér án þess að vera undir áhrifum áfengis? Þannig fólk er að mínu mati ekki sannir tónlist- aráhugamenn. Ég á mjög erfitt með að trúa því að maður njóti góðra tónleika jafnvel undir áhrifum bjórs og víns og edrú. Góð tónlist á að vera víman sem gerir tónleika að óviðjafnanlegri upplifun. Guðna í prófkjör Guöjón Siguiösson hringdi: Ég var að horfa á Boltann með Lesendur Guðna Bergs á Sýn og verð bara að segja að áþekkilegri sjónvarps- mann er vart hægt að finna hér á landi sem stendur. Guðni Bergs er eitthvað svo afslappaður og hefur djúpan skilning á því sem hann er að fjalla um. Þá eru athugasemdir hans um lífið og tilveruna athyglis- verðar og þess vegna fmnst mér að hann ætti að fara í eitthvað af þess- um prófkjörum sem alltaf er verið að auglýsa. Mér skilst að Guðni hafi lokið lögfræðiprófi samhliða knattspyrnuferli sínum með Bolton og það er meira en margir aðrir frambjóðendur geta státað af. Mér skilst að einn þeirra hafi ekki einu sinni getað klárað BA-próf vegna pólitískrar þátttöku og var sá þó alls ekki bundinn við erilsamt starf atvinnuknattspyrnumanns- ins. Þess vegna segi ég: Guðna Bergs í pólitík!_____________ Guðni Bergs Yfir- burðamaður sem á | erindi f þágu al- mennings. Ingimar Ingimarsson fylgdist spenntur með landsfundi Sjálfstæöisflokksins. WL 1 4 Garðyrkjumaðurinn segir Línur í lögnunum Ég ásamt kannski fleirum, fylgdist að sjálfsögðu spenntur með landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins. Þar sem Geir var aðeins kos- inn með 94,3%. Ef ég væri Geir myndi ég reyna að komast að því hverjir þessir 104 sjálfstæðismenn, sem augljóslega eru að gera mis- tök, eru. Á fundinum komu upp, að sjálfsögðu, gömul og ný mál. Nýju málin voru þó heldur fyrir- ferðaminni. Þeir vilja áfram Nato og herinn, ætla samt að stuðla að friði. Svo vilja þeir að sjálfsögðu harðar reglur um fjölmiðla, sem sumir hafa túlkað eftir ræðu verð- andi seðlabankastjóra, að 25% eru of mikið. Hvemig var þetta með Árvakur og fjölskylduböndin þar? Annars var ég mjög ánægður með fundinn, flokkur sem er búinn að vera með fjármál ríkisins í 14 ár ætlar loks að gera eitt- hvað fyrir öryrkjana eða var það ekki gera öryrkjum eitthvað? Hvort sem er þá erþettajá- kvætt. Annars mæli ég sterklega meðaðfólk taki sér tíma og skoði hellulögðu svæðin áður en frostar almenni- lega. Ef mikill gróður erþá etum að gera að sprauta sjóðheitu vatni og setja svo fi'nan púsn- ingasand yfir því eins og við garðyrlgumenn segjum: Það verða að vera línur í lögnum. m U A rv\V ■* \.,a Jm% Maður dagsins Skátaforingi sem vill bjarga heiminum „Ég sá sjónvarpsþátt um fátæktina í öðr- um heimshlutum og það snart mig djúpt/ „Mér finnst ekki nóg að tala um hungursneyð og fátækt en gera svo ekkert í því,“ segir Unn- steinn Jóhannsson, sveitarfor- ingi hjá Skátafélaginu Vífli f Garðabæ. Unnsteinn átti hugmyndina að því að krakkarnir í ljósálfasveitinni sem hann stjórnar gerðust heimsforeldrar í gær í gegnum SOS-barnahjálp: „Ég sá sjónvarpsþátt um fá- tæktina í öðrum heimshlutum og það snart mig djúpt. Þá ákvað ég að koma með þessa hugmynd að leyfa krökkunum í flokknum að taka á sig þá ábyrgð að gerast heimsforeldrar og safna fyrir þeim 2.300 krónum sem það kostar á mánuði. Við sem búum á íslandi eigum möguleika á að hjálpa öðrum og af hverju ekki að gera það?“ Unnsteinn segir að skáta- hreyfingin hafi það markmið meðal annars að hjálpa öðrum og hann hafi lært það á þeim 10 árum sem hann hefur verið skáti að hjálpa þeim sem eiga um sárt að binda. „Skátastarfið er göfugt og ger- ir fólk að betri mann- eskjum, krakkarnir eru mjög spenntir að byrja að safna fýrir barninu sem þeir ætla að styrkja. Þetta borgar námið og mat þangað til það verður sjálf- bjarga,“ segir Unnsteinn sem er í námi við Iðnskólann í Hafnar- firði á listnámsbraut. Auk þess vinnur hann á Cafe Roma í Kringlunni. Unnsteinn segir að sinn æðsti draumur sé að vinna við hjálpar- starf í Afríku að námi loknu. *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.