Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR21. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Atli Rafn er hláturmildur, ósér-
hlífinn og hjálpsamur dugn-
aðarforkur sem gott er að
leita tij. Hann er örlátur með
eindæmum.
Atli Rafn er óþolinmóður,
skapmikill og einum of
hreinskilinn. Hann hringir í
fólk meðan hann situr á
klósettinu.
„Atli Rafn er hvers manns hug-
Ijúfi og þúsundþjalasmiður af
guðs náð. Hann er hæfi-
leikaríkur og mikill vinur
vina sinna. Hann er llka
örláturmeð eindæm-
um. Hann getur verið
óþolinmóður og tekur stundum
ofstórt upp I sig enda með stór-
an munn."
Stefán Jónsson mágur.
„Atli er ótrúlega orkumikill og
glaölyndur maður. Hann er
uppbyggjandi og það er alltaf
hægt aö leita til hans. Það
alltafstutt I hláturinnn
hjá honum og ég held
að hann hlæi hæst af
öllum sem ég þekki. Þaö
getur verið ókostur hvað
hann er hreinskilinn, því efhann
hefur ekki mikiö álit á einhverj-
um, þá sést það. Sjálfum finnst
mérþað nú bara fínt."
Rúnar Freyr Gíslason vlnur.
„Hann ereinstaklega fyndinn,
skemmtilegur og velgefinn.
Mikill dugnaðarforkur, vinnu-
samur og ósérhlífinn. Hann er
gjafmildur og greiðvikinn og
alltafhægt aö leita til hans,
sama hversu upptekinn
hann er. Hann erhlýr
og traustur og þvf ekki
hægt að hugsa sér betri
bróður. Hann er skap-
mikill, stórorður og fljótur upp
efl hann fýkur en það rýkur
jafnfljótt úr honum aftur. Hann
vandi sig snemma á þann
slæma siö að vilja spjalla við
mig þegar hann situr á klósett-
inu og núna hringir hann iöu-
lega Imig undir þeim kringum-
stæðum."
Rebekka SigurÖardóttir systir.
Atli Rafn Siguröarson leikari fæddist í sept-
ember áriö 1972 og útskrifaöist úr Leiklist-
arskólanum 25 árum síöar. Hann hefur
brugöiö sér f ýmis hlutverk um ævina, nú
slöast f hlutverk Halldórs Laxness í verkinu
Halldór í Hollywood sem var frumsýnt í
Þjóöleikhúsinu um síöustu helgi.
Hansadagar
hefjast
Hansadagar hefjast í
Hafnarfirði í dag en í júlí
síðastliðnum
gekk bærinn
í Hansasam-
tökin, sam-
tök borga
þar sem
Hansakaup-
menn stunduðu kaup-
mennsku. Hansadagar
standa fram á sunnudag en
meðal atburða er Október-
fest á Fjörukránni, þýskt
þema á Bókasafni Hafnar-
ijarðar og heimsókn þýsku-
bflsins sem kynnir Heims-
meistaramótið í knatt-
spyrnu sem fram fer í
Þýskalandi næsta sumar. í
tilefni Hansadaga kemut
forseti íslands.Jierrá Ólafúr
Ragnar Grímsson, í opin-
bera heimsókn til Hafnar-
fjarðar í dag og tekur þátt í
dagskránni.
Dómur féll í máli Ólafs Birgissonar í gær. Af ótta við hefndaraðgerðir handrukk-
ara sem hann skuldaði hundruð þúsunda króna rændi hann 10-11 verslun vopnað-
ur skrúfjárni. Hann fékk átta mánaða fangelsi. Móðir Ólafs, Anna Bragadótfir, seg-
ir að handrukkararnir hefðu átt að vera í réttarsalnum, ekki sonur hennar.
10-11 búð Ólafur rændi búðina
vopnaður skrúfjárni og hafði 35 þús-
und krónur upp úr krafsinu.
„Það var búið að hóta honum og fjölskyldunni/' segir Anna
Bragadóttir, móðir Ólafs Birgissonar sem í gær var dæmdur í
átta mánaða fangelsi, þar af sex skilorðsbundna, fyrir að fara
ásamt félaga sínum inn í 10-11 verslun í Engihjalla með trefla
fyrir andlitunum, ógna afgreiðslustúlku með skrúfjárni og ræna
35 þúsund krónum. Sonur hennar framdi ránið af ótta við
hefndaraðgerðir handrukkara sem haft höfðu í hótunum við
hann um nokkra hríð.
í aprfl var Ólafur Birgisson, 22 ára
Hafnfirðingur, á flótta undan hand-
rukkurum. Hann skuldaði þrjú
hundruð þúsund krónur vegna
kókaínfíknar sem hann hafði nýver-
ið unnið bug á. Þrátt fyrir að fflcnin
hafi verið sigruð voru afleiðingar
hennar ennþá að koma í bakið á
Ólafi Birgissyni. Þrjú hundruð þús-
und krónur er upphæð sem hand-
rukkarar sleppa ekki svo glatt. Að-
gerðirnar sem þeir eru tilbúnir að
fara út í til að innheimta slíkar
skuldir eru óhuggulegar.
Stigmagnandi hótanir
„Við vitum hvaða leið litli bróðir
þinn gengur í skólann," sagði einn
handrukkaranna við Ólaf þegar ver-
ið var að innheimta. Hótanir þeirra í
garð fjölskyldu hans fóru stigvax-
andi og svo fór að Ólafur sá sér enga
aðra leið færa en að fara eftir skip-
unum þeirra.
„Þeir sögðu honum einfaldlega
að fara og sækja þessa pen-
inga, annars hlyti hann og
fjölskyldan verra af,“ segir
Anna, móðir Ólafs sem
hlýddi kallinu og ruddist inn í
10-11 vopnaður skrúfjárni og
kom út með 35 þúsund krón-
ur. Fengurinn var aðeins brot
af því sem hann skuldaði. Svo
fór á endanum að fjölskyldan
safnaði saman peningnum til
að sleppa undan ofsóknunum.
Lögreglan úrræðalaus
Anna segir það skelfilega til-
hugsun að vita af barninu sínu í
klóm þessara manna. „Hann
„Þeir sögðu honum
einfaldlega að fara og
sækja þessa peninga,
annars hlyti hann og
fjölskyldan verra af."
taldi sig vera að verja fjölskyldu sína,
litla bróður sinn," segir hún. Þegar
Anna spurði son sinn hvaða menn
þettu væru sem voru á eftir honum
svaraði hann. „Þú vilt ekki vita það,
mamma. Það er best að þú vitir sem
minnst."
Anna bendir á að auðvitað eigi
sonur hennar að axla ábyrgð á
gjörðum sínum hvað varðar ránið.
Henni þykir samt súrt í broti hversu
úrræðalaus lögreglan er gagnvart
handrukkurum sem halda ótrúlega
mörgum fjölskyldum í gíslingu ótt-
ans. „Lög-
Héraðsdómur
Reykjaness
Dæmtvarlmáli
Ólafs I gær.
reglan gerði ekkert til að hjálpa hon-
um. Enginn af þessum handrukkur-
um var í réttarsalnum þegar réttað
var yfir syni mínum," segir hún.
Anna segir að sonur hennar sé
búinn að snúa bakinu við þessum
heimi. Fyrir það er hún þakklát.
„Hann er með fasta vinnu og kom-
inn í sambúð," segir hún. „Ef hann
heldur því áffam á hann framtíðina
fyrir sér.“
andri@dv.is
Magnús Ólafsson fær ekki að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Hafnarfirði
Bæjarstjóradraumur Bjössa bollu fyrir bí
Leikarinn góðkunni Magnús
Ólafsson fékk ekki að bjóða sig fram
til forystu sjálfstæðismanna í Hafn-
arfirði eins og hann ætlaði. Fram-
boðsfrestur rann út á miðvikudags-
kvöld en þá var úrskurðað að Magn-
ús hefði ekki nægilega marga með-
mælendur. Magnús bað um frest en
fékk ekki.
„Ég er ekki sáttur," segir Magnús
sem óskaði eftir sólarhringsfresti til
að ná tilskildum fjölda meðmæl-
enda, 20 talsins. Þann frest sá flokk-
urinn sér ekki fært að veita honum.
„Og ég fékk engar skýringar á því,"
bætir Magnús ósáttur við.
Það vakti furðu margra þegar
Magnús lýsti þvf yfir að hann ætlaði
sér fyrsta sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins í komandi bæjarstjórnar-
kosningum. Magnús er þekktur hjá
þjóðinni fyrir túlkun sína á Bjössa
bollu en síðustu ár hefur hann starf-
að sem prentsmiður
með misjöfnum ár-
angri, farið á haus-
inn og lent í mála-
ferlum.
„Maður tekur
þessu bara eins og
hverju öðru
hundsbiti.
Nú er
bara að
vinna
með
flokknum
og hjálpa
því góða
fólki sem
skipa
mun for-
ystu-
sveitina
eins og
ég get."
Magnús Ólafsson
leikari Fékkekki
að bjóða sig fram
eins og hann vildi.