Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Qupperneq 15
E*V Fréttir
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005 15
Ólafur Börkur, náfrændi Davíðs, „sigrar“ næsta auðveldlega
en skipan hans í Hæstarétt vorið 2004 þykir hneisa. „Sigurður
Líndal lagaprófessor sagði af því tilefni að Ólafur Börkur hafi ver-
ið á meðal þeirra sem hafi verið minnst hæfir umsækjenda og að
hann hafi engan hitt í lögfræðingastétt sem hafi talið Ólaf Börk
hæfasta umsækjandann. Þess má geta að Ólafur Börkur studdi
svo um haustið ráðningu Jóns Steinars, stórvinar Davíðs, með
séráliti,“ segir einn áhtsgjafanna. Annar segir Ólaf Börk hafa átt
að vera sérfræðing í Evrópurétti en hann sé það ekki. „Hann
hafði bara skrifað einhverja eina mastersritgerð um málið.
Hæstiréttur er það mikilvæg stofnun að pólitískar ráðningar
þangað fara efst á hstann. Það er búið að gera Hæstarétt tor-
tryggilegan." Og annar segir: „Bláa höndin laumaði sér inn í
Hæstarétt og sýndi þar með að henni er ekkert heilagt. Banana-
lýðveldið var staðreynd og tilboð ferðaskrifstofa skoðuð með
miklum áhuga - one way ticket." „Rómarkeisarar hefðu verið
fulisæmdir af þeim nepótisma sem birtist í vali þessa gjörsam-
lega óhæfa frænda Davíðs í Hæstarétt." Og annar segir: „Davíð
réð þennan frænda sinn í gegnum Björn Bjamason og launaði
gamlan greiða við Þorvald, pabba Ólafs Börks, sem einu sinni
hafði reddað Davíð vinnu. Ólafur hefur ekki það sem til þarf í
Hæstarétt."
Náfrændi forsætisráðherrans, furðulega ungur og með ekkert
sérlega merkilegan feril að baki. Mjög ósvífið.
jakob@dv.is
verstu politisku
stöðuveitingarnar
Landsmenn eru orðnir svo vanir misbeitingu pólitísks valds að þeir kippa sér ekkert
upp við það þegar vanhæfum flokksjálkum er skotið á beit í feit embætti ríkisins.
Þrælslundin virðist landsmönnum í blóð borin. „Yfirstéttin á íslandi hefur undanfarna
öld haft þann háttinn á að láta gáfaðasta erfingjann ávaxta fjölskylduauðinn en tryggja
öryggi hinna barnanna með því að koma þeim í forstjórastöður hjá ríkinu,“ orðaði
einn álitsgjafa DV það. DV tók saman lista yfir 100 verstu pólitísku ráðningarnar.
Olafur Börkur Þorvaldsson
12 tilnefningar og 82 stig,