Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2005, Blaðsíða 16
76 FÖSTUDAGUR21. OKTÓBER2005
Fréttir DV
Pólitískur gæðingur I Hrikalegur skandall
Einn álitsgjafanna tilnefndi Markús
öm þrisvar sinnum: í sendiherrastöðu í
Kanada, í stöðu útvarpsstjóra í annað
sinn og f stöðu útvarpsstjóra í fyrsta sinn.
Markús er úrskurðaður af álitsgjöfum DV
sem einhver mesti gæðingur pólitískra
ráðninga, því hann virðist aldrei geta
klúðrað neinu nógu stórt til að vera
ýtt út í kuldann.
„Markús öm kom fagmennsku
í fjölmiðlum nánast ekkert við.
Stóll útvarpsstjóra var notaður fyr-
ir hann á meðan hans þurfti ekki
við í alls konar íhlaupaverk fyrir ^
Sjálfstæðisflokkinn.“
Honum var bjargað eftir hremm-
ingar í embætti borgarstjóra og
skrípaleikurinn þegar sitjandi útvarps-
stjóri var látinn lesa yfirlýsingu um að
honum leiddist djobbið og er
sendur með fjölskylduna til
Kanarí var óborganleg-
ur að mati eins álits-
gjafa blaðsins.
„Markús náði aldrei
tökum á stofn-
uninni. Var frekar til
óþurftar." Og:
„Hann reyndist
slakur útvarpsstjóri
og verri í seinna
skiptið." Og einn
álitsgjafanna átti
fullt í fangi með að
rekja ferilinn:
„Markús öm Ant-
onsson, algjörlega
misheppnuð ráðn-
ing. Davíð Oddson
rak þann sem hafði rekið vin hans, Hrafn
Gunnlaugsson, og réð vin sinn Markús
öm í staðinn. Eitt af fyrstu verkum Mark-
úsar var að ráða Hrafn aftur til starfa.
Þetta er líka maðurinn sem réð Auðun
Georg og faldi sig í þrjá daga fyrir
fjölmiðlum í kjölfarið." Og sá
síðasti sem vitnað er í dró
ekki af sér: „Maður með
allt niður um sig og skít-
inn upp á bak er verð-
■ * launaður með sendi-
j| herrastarfi! Hvað læt-
ur utanríkisþjónustan
ekki yfir sig ganga?"
m
„Jón Steinar Gunnlaugsson var skipað-
ur hæstaréttardómari í september 2004.
Sjö sóttu um embættið og samkvæmt
umsögn Hæstaréttar vom þeir Eiríkur
Tómasson prófessor og Stefán Már Stef-
ánsson prófessor taldir hæfastir til að
gegna því. Atli Gíslason hrl., lögmaður
Hjördísar Hákonardóttur dómstjóra, sem
talin var hæfust næst á eftir þeim Eiríki og
Stefáni, taldi að brotin hefðu verið jafn-
réttislög á henni í annað sinn, þar sem
konur em sannarlega í minnihluta í
Hæstarétti. Þá lét Björn Bjamason dóms-
málaráðherra þau ummæli falla að jafn-
réttislög væru bam síns tíma!“ Þetta segir
einn álitsgjafanna sem lítur það alvarleg-
um augum að Hæstiréttur sé með skipan-
inni gerður tortryggilegur. „Jón Steinar í
Hæstarétt strax á eftir Ólafi Berki
kom manni einhvem veginn
ekkert á óvart. Aðlögunar-
hæfnin er þvílík hjá íslend-
ingum að það var aðeins
tautað yfir þessu en varla
meira."
Með þessu áframhaldi jj
verður Hæstiréttur álíka ,
einsleitur og sá banda-
ríski sem er óhugnanleg
þróun í lýðræðissamfé- ,
lagi.
Einn álitsgjafanna ,
segir nánast guðlast j
að efast um marg-1
nefnda afburða- !
hæfileika hans í lög-
mennsku. „Ráðningin ,
er auðvitað hrikalegur
skandall."
Og: „Ofugt við Ólaf Börk er Jón Steinar
afburðalögfræðingur. Ráðning hans kom
samt á vondum tíma og lyktar af pólitík og
margir höfðu á orði að ríkisstjómin væri
að koma sínum mönnum að í Hæstarétti
áður en Baugsmálið eða
önnur óþægileg dóms-
mál yrðu tekin fyrir
t sem og koma í veg
fýrir slys á borð við
[ það að þurfa að
i endurgreiða ör-
1 yrkjum."
\
■■■■■■■■
Bíræfnasta pólitíska Einhvers staðar verða
raðning seinni ara
vondir að vera
Auðun Georg í fréttastjórastólinn hjá
RÚV síðastliðið vor. „Þessi ráðning kemst
á listann vegna þess hversu svakalega
mikið klúður hún var. Framsókn ætlaði
að beita klókindum og skipa mann í stól-
inn sem yrði ekki sakaður um að vera
þeirra maður en væri það samt og þetta
snérist allt í höndunum á þeim, því
maðurinn hafði óvart enga reynslu. Og
á meðan hlakkaði í sjálfstæðismönn-
um."
Og annar hafði þetta til málanna að
leggja: „Hann hafði minnsta reynslu allra
umsækjenda af fjölmiðlum, hafði verið
fréttaritari samhliða námi erlendis Einnig ’
fréttist að fulltrúar Framsóknarflokksins
hefðu leitað eftir því að hann sækti um
starf fréttastjórans. Hann var vinur ráða-
manna Framsóknarflokksins sem töldu
að þessi staða tilheyrði flokknum. Auðun
sagði af sér á fyrsta starfsdegi sínum eft-
ir að lýst var vantrausti á hann."
Og: „Einhver bíræfnasta
pólitíska ráðning í seinni tíð,
beinlínis ætlað að skemma
vinnustaðinn sem agentinn
var sendur á." Og enn einn:
„Einhver rammpólitískasta
og mislukkaðasta stöðu-
veiting síðari tíma. Bar vott
um mikinn dómgreindar-
brest útvarpsstjóra.
Dæmigert um hvemig
dómgreindin getur brostið þegar menn
halda sig vera að þóknast öðrum."
Mál manna er að framsóknarmenn
hafi orðið sér til skammar enn og aftur.
„Auðun hafði afar tak-
markaða þekkingu
á fjölmiðlum og
ráðningin
I hlægileg.
1 Reynsluleysið
1 kom berlega í
ljós þegar hann
var tekinn eft-
irminnilega á
beinið af undir-
i manni sínum."
fl
„Sjálfsráðning Davíðs í Seðlabankann
er sérlega ósvífin ráðning í ljósi þess að
Davíð var búinn að tryggja sig í bak og
fyrir með eftirlaunafrumvarpinu og var
búinn að vera bankamálaráðherra
lengi."
Einkum er það launahækkunin sem
menn horfa í þegar Davíð er annars veg-
ar. Davíð er reyndar hákarlinn í þessu
því þræðirnir liggja víðast um hendur
hans þegar feitustu bitarnir eru annars
vegar: „Það sem var asnalegt við þessa
ráðningu var það hversu mjög menn
kepptust við að segja að það væri tóm til-
viljun að laun seðlabankastjóra hefðu
verið hækkuð um 26% rétt fyrir ráðnin
og að það væri tóm tilviljun að Birgir
leifur skyldi hætta á þessum góða tíma.
Tilviljun my ass."
Þeir urðu að hækka kaupið svo stað-
an væri samboðin honum, segir einn og
annar að Davíð sé hvergi nærri hættur
afskiptum af pólitík. Enn einn: „Maður
sem kominn er á endastöð í pólitík
skipar sjálfan sig seðlabankastjóra og
hækkar launin sín í leiðinni. Allt snakk-
ið um að auka fagmennsku í stjórnsýslu
reynist hafa verið akkúrat það, bara
snakk."
Menn segja að gengið hafi verið fram
hjá hæfari mönnum en „um Seðlabank-
ann gildir eins og Drangey forðum.
„Einhvers staðar verða vondir að vera.""