Símablaðið - 01.12.1943, Side 44
50
SÍMABLAÐlfí
Guðjón Bárðarson
— sextugur —
Ég heyri sagt aö þú hafir orSið sextugur
þann 5. nóvember s.l. Er það meíS núgi'ld-
andi vísitölu eSa veruleikinn sjálfur?
Það mun vera rétt, segir GuSjón; en
annars er maBur nú vanur a8 breiSa yfir
ellina eftir beztu getu.
Þú ættir að segja mér dálítið um starf
þitt hjá símanum. Hvað ertu búinn að
starfa lengi viS stofnunina?
Ég er búinn aS vera fastur starfsmaSur
bæjarsímans í Reyjavík sl. 20 ár, og áður
var ég búinn aS vera a?S nokkru leyti
starfandi hjá stofnuninni í fimm eða sex ár.
Og í hverju hefir starf þitt aíSallega
verié fólgið ?
Leggja síma inn í hús .og gera við dag-
legar bilanir, segir Gu?Sjón.
Kemur ekki margt skemmtilegt fyrir
hjá ykkur, starfsmönnum bæjarsímans,
þegar þiS eruð aS heimsækja notendurna?
Yfirleitt er okkur vel tekiS, en fyrir
kemur þó, aS viS fáum smávegis ónot út
af símabilunum. En maSur er nú léttlynd-
ur, eins og þú veizt, og þá rætist oft betur
úr en efni standa til.
GeturSu sagt mér hvaS þú ert búinn aS
setja upp marga síma og hvaS þú ert
búinn aS gera við margar bilanir á síSast-
liðnum aldarfjórSungi ?
Nei, blessaSur vertu, þar veit ekki hin
vinstri hönd hvaS hin hægri gefur.
Er ekki meSferSin á símaáhöldunum
misjöfn hjá almenningi, og kemur ekki
stundum fyrir, aS fólk vilji hafa áhöldin
á hinum ólíklegustu stöSum?
Yfirleitt er meSferSin góS, en þar ekmur
margt utanaSkomandi til greina, svo sem
húsakynni, upphitun o. f 1., en einu sinni
hefi eg samt lent í hálfgerSum vandræS-
um meS aS finna símaáhald í húsi, vegna
þess aS notandinn hafSi sett áhaldiS innan
í yfirsængina sína,, til þess aS fá rólega
stund fyrir hringingum.
GuSjón BárSarson er fæddur 5. nóv. 1883
aS Króki í Ásahreppi í Rangárvallasýslu,
sonur hjónanna GuSrúnar Jónsdóttur og
BárSar GuSlaugssonar, er þar bjuggm.
Ung'ur aS aldri missti hann foreldra sína.
Fluttist hann þá aS Hala í Holtum, til
ÞórSar GuSmundssonar alþingismanns.
Var hann þar í þrjú ár og fluttist þá aS
Lindarbæ í sömu sveit og dvaldist þar
til átján ára aldurs, en þá réSist hann til
Reykjavíkur og hugSist aS verSa bakari.
En ekki leizt honum á þaS starf og fór nú
vestur á Bíldudal og var þar þrjú ár viS
sjómennsku. SíSan fluttist hann til Reykja-
víkur og byrjaSi aS starfa hjá raftækja-
firma í bænum viS allskonar lagnir, sem
leiddi til þess, aS hann réSist í þjónustu
símans.
Vigfús Guðbrandsson & Co.
Austurstræti 10, Reykjavík.
Itlæðskerar hinna vandlátu
Venjulega vel birgir af fata- og frakkaefnum, og öðru til góðra fata.