Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1955, Page 32

Símablaðið - 01.01.1955, Page 32
6 SIMABLAÐIÐ Jrá tíi Ingólfur Einarsson. Þegar ég lít 30 ár aftur í tímann af 40 ára starfssögu F.Í.S., flæða fram í hugan minningar um mikið og merkilegt starf, sem félagið hefur innt af hendi á liðnu 40 ára tímabili. Eins og gengur og gerist hafði félags- starfið í fyrstu gengið upp og niður — en þó aðallega upp. Stórfeldasta sigur sinn í hagsmunamálum félagsmanna, vann það með samþykkt ráðherra á starfsmanna- reglum landssímans 1935, og færði þar með félögum sínum miklar hagsmunabætur í auknum hlunnindum. Var það fyrsta félagið sem slíkar reglur fékk samþykktar af ríkisstjórninni, og hefur verið í því, eins og í mörgu öðru á sviði félagsmála, til fyrirmyndar. Árabilið 1930—45 tel ég að félagsstarfið og árangur þess hafi staðið í mestum blóma. Á þessum árum er félagið skipu- lagt og byggt upp, ef svo má segja, með tilliti til þess, að félagsmenn eru dreifðir um land allt. í Reykjavík og á þremur stöðvum út á landi, reisti félagið sumar- bústaði til afnota fyrir félagsmenn og ótal margt fleira er framkvæmt á þessu ára- bili til mikilla hagsbóta fyrir félagsmenn og sjálft félagið, sem til frambúðar má teljast. Ein töluverð mistök álít eg þó að félagið hafi hent á þessu árabili, og það er þegar fundur í félaginu samþykkir að selja sumarbústað símamanna að Elliða- hvammi á þeim forsendum, að rekstur hans hafi verið félaginu ofviða, og einnig að bústaðurinn hafi verið lítið notaður, nema af fámennum hóp manna. Að mestu var þetta misskilningur, því oft lögðu margir leið sína upp í Elliðahvamm og margir félagsmenn eiga þaðan margar og ánægjulegar minningar, og ekki sízt sá hópur manna, sem dvaldi þar margar frí- vaktirnar, og sumir heil sumarfrí ár eftir ár, við sjálfboðavinnu að prýða bústaðinn og umhverfi hans. Hin geysilega vinna, sem margir lögðu af mörkum við byggingu bústaðarins, var að engu gerð með sölunni, og þótt reksturskostnaður væri nokkur, varð félagið að mínu áliti fyrir fjárhags- legu tjóni við söluna. Þrátt fyrir þessi mistök álít ég að á þessum árum hafi félagsmenn verið hvað samstiltastir í félagsstarfinu og framgangi þess á öllum sviðum. Málgagn félagsins, Símablaðið, sem hóf göngu sína með stofnun félagsins undir nafninu Elektron, hefur gegnt merkilegu og miklu hlutverki. Til þess að félagarnir úti á landi gætu fylgzt með félagsmálum, og ekki síður til þess, að þeir geti látið til sín heyra um þau málefni, sem á dag- skrá voru hjá félaginu, og sem í fyrstu var einkum launakjörin, var nauðsynlegt að hafa félagsblað, sem kæmi út að minnsta kosti öðru hvoru. Oft hefur mikill styr staðdð um útkomu Símablaðsins, aðal- lega síðustu árin. Eðlilega hafa félagsmenn beint gagnrýni sinni að stjórn félagsins. Ég veit ekki hvort félagarnir hafa gert sér grein fyrir því, hve mikið og erfitt starf það er, að halda blaði gangandi, reglulega, Frh. á bls. 36

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.