Símablaðið - 01.01.1955, Side 46
‘20
SÍMABLAÐIÐ
^JdátdaLöldin atan UewLiauíL
eiji^^aumar
Afmælisins var minnst á öllum ritsímastöðvum utan Reykjavíkur. —
Hefur Símablaðið talið viðeigandi að birta fréttir af þeim hófum, og gerir það
í eftirfarandi fréttaskeytum. Alstaðar hefur símafólkið lagt sig fram um það,
að undirbúa hátíðahöldin sem bezt, og lagt í það ótrúlega vinnu, svo hátíða-
höldin hafa orðið stéttinni hvarvetna til mikils sóma.
Hér fara á eftir fréttaskeyti frá hverri deild.
Fréttaskeyti
frá Akureyri
Fertugsafmælis F.l.S. var minnst á
Akureyri með hófi að Lóni, félags-
heimilis „Geysis“.
Formaður félagsdeildarinnar, Jó-
hanna G. Pálsdóttir, setti hófið og
skýrði með nokkrum orðum tilefni þess.
Sest var til borðs kl. 7,30 og snætt
hangikjöt og aðrir þjóðlegir réttir.
Fylgst var með skemmtiatriðum og
að nokkru leyti ræðuhöldum frá hátíð
félagsins í Reykjavík, þar eð beint sam-
band var á milli.
Við sumarbústað símamanna í Vaglaskógi.
Undir borðum tók til máls Gunnar
Schram, umdæmisstjóri, og ræddi
hann einkum um fyrstu ár félagsins
og Símablaðsins, einnig þá fyrirmynd
sem Starfsmannareglur Landssímans
hafa verið öðrum ríkisstofnunum.
Að lokum risu menn úr sætum og
hyltu F.f.S. Dans var síðan stíginn
til kl. 3 og var þar með þessu mjög
vel heppnaða hófi lokið.
J. G. P.
Fréttaskeyti
frá Seyðisfirði
Seyðisfjarðardeild F.Í.S. minntist
fjörutíu ára afmælis félagsins með veg-
legu hófi að Hótel Snæfell þann 26.
febrúar s.l. Hátíðahöldin hófust með
borðhaldi kl. 9 síðdegis. Aðalræðuna
flutti Emil Jónasson, en auk hans töl-
uðu þau Baldur Böðvarsson, Gestur
Jóhannsson og Brynhildur Haralds-
dóttir. Að loknum ræðuhöldum hófst
skemmtiþáttur, sem Björn Ólafsson
hafði tekið á segulband. —- Var hann
mjög fjölbreyttur að efni, svo sem:
Kórsöngur: Samkórinn Bjarmi, undir
stjórn Steins Stefánssonar. Einsöngur:
Sverrir Sigurðsson. Ferðasaga: Þor-