Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1955, Page 47

Símablaðið - 01.01.1955, Page 47
BÍMAB LAÐ IÐ 21 steinn Gíslason. Skemmtisögur og kvæði sem símafólkið las, og að end- ingu gamanvísur og kvæði sem Sig- ríður Jónsdótttir þvottakona flutti. Þótti segulbandsþáttur þessi hin bezta skemmtun. Að borðhaldi loknu var stíginn dans af miklu fjöri fram eftir nóttu. Alls sátu hófið 37 manns; þar af þrír af stofnendum F.Í.S., þau: Þorsteinn Gíslason, stöðvarstjóri frú Margrét Friðriksdóttir og frú Hólm- fríður Jónsdóttir frá Múla, og auk þeirra margt af fyrrverandi starfs- fólki Landsímastöðvarinnar hér. Em. Fréttaskeyti frá Siglufirði Minnst var 40 ára afmælis F.l.S. á Siglufirði. Lengi höfðum við hlakkað til þessa afmælishófs, og mikið um það talað að þessi hátíð okkar yrði ekki siðri heldur en þær, sem áður hafa verið, því að um mörg ár hefur símahátíðin verið ein bezta árshátíð hér í bæ. Kosin var fjögurra manna nefnd til að undirbúa hófið. Samkomusalinn skreyttum við með ýmsu móti. T. d. klipptum við út og máluðam símatæki allt frá fyrstu síma- tækjum til nútíma síma, og festum á veggina og útbjuggum hús, sem hljóm- sveitin spilaði í. Og leit það út sem sjálfvirkur sími. Einnig var útbúið loft- skraut. Þess skal einnig getið, að Bragi Magn- ússon teiknaði mjög fallegt afmælis- merki og afhenti sem gjöf frá konu sinni, Hörðu Guðmundsdóttur, sem starfaði hér hjá L. I. um 20 ára skeið, en er nú sjúklingur á Kristneshæli. Loks rann upp laugardagurinn 26. febrúar, yndislegt veður allan daginn. Kl. 19 hófst hófið með borðhaldi. Frú Magðalena Hallsdóttir setti skemmtun- ina og rakti sögu félagsins í stórum dráttum. Þá var matur fram borinn. Stöðvarstjórinn, sem var heiðursgestur okkar ásamt konu sinni, þakkaði boðið og sagði frá stofnun F.Í.S., en hann var einn af fyrstu meðlimum þess. Að lok- um var stiginn dans. Einnig höfðum við happdrætti með þrem vinningum. Allir skemmtu sér hið bezta. — Þarna var um 130 manns. En eitt vantaði okkur símafólk sérstaklega þetta kvöld, sem sé Þórð „okkar“ síma- mann, en hann liggur á sjúkrahúsi. En vísu sendi hann hófinu í símskeyti, og var hún sungin við raust. Læt ég fylgja hér með hátíðasöng okk- ar, sem alltaf er sunginn á árshátíð okkar. Piltar og stúlkur prýðishópur, af pósthúsi og símastöð. Einu sinni á ári hverju eta þau saman glöð. Okkar „sambúð“ aldrei slitnar Enda er Þórður til. Og meyjarnar reikna ekki mönnumnúna í mínútum viðtalsbil í mínútum viðtalsbil. Meðal okkar hátt skal hljóma harpa gleðimáls. Við gleymum öllu gargi í síma gott er að vera frjáls.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.