Símablaðið - 01.01.1955, Page 49
S í M A B LAÐ IÐ
23
Seinasti þáttur „prógrammsins“ var
svo sá, að fimm manna ,,hljómsveit“
birtist á senunni og lék nokkur lög.
Einnig lék þessi sama „hljómsveit“
nokkur lög undir dansinum síðar um
nóttina og var ákaft fagnað. Hljóm-
sveitina skipuðu eingöngu kraftar úr
starfsliði póst og síma hér.
Þessum góða fagnaði lauk eigi fyrr
en klukkan rúmlega fjögur um morg-
uninn, og hafði þá staðið í tæpar 10
klukkustundir. Allir skemmtu sér hið
bezta og samkoman á annal hátt hin
ánægjulegasta frá upphafi til enda.
Við höfðum einnig þá ánægju að með
okkur sátu hófið stöðvarstjórahjónin í
Hnífsdal. Hófið sótti hver einasti starfs-
maður pósts og síma á Isafirði.
Ég vildi meiga nota þetta tækifæri til
þess að þakka samstarfsfólki mínu hér
við póst og síma íyrir frábæra sam-
vinnu um allt er að hófinu laut, frá upp-
hafi til enda. Einnig vil ég þekka stjórn
F.l.S. og ráðamönnum símans fyrir
þeirra hlutdeild í því að gera öllu starfs-
fólkinu fært að sækja hófið.
Að lokum vil ég óska félaginu og
stofnuninni allrar blessunar í nútíð og
framtíð og að ætíð megi ríkja góð sam-
vinna og gagnkvæmur skilningur milli
þessara aðila.
Ó. H.
Fréttaskeyti
frá Vestmannaeyjum
Frá fréttaritara Símablaðsins
í Vestmannaeyjum 27/2 ’55.
Afmælishóf Vestmannaeyjadeildar F.Í.S.
hófst með borðhaldi að Hótel H.B. kl. 19
í gærkvöldi og sátu það um 50 manns. —
Hlustað var á Rvíkurútvarpið frá Borg-
Símastúlkur í Vm. njóta sumarblíðunnar.
inni. Heyrðist ágætlega og vakti almenna
ánægju. Staðið var upp og Vestmannaeyja-
kveðjan sungin samtímis „útvarpssöngn-
um“ sem og kvæði A. S. Þ.
Formaður deildarinnar, Árni Árnason,
flutti ræðu og rakti í stórum dráttum sögu
F.Í.S. Ræddi hann um gildi félagsins fyrir
símamannastéttina og minntist starfa ein-
stakra formanna og F.Í.S.-stjórna frá fyrstu
tíð, störf félagsdeilda úti á landinu, Síma-
blaðið og gildi þess fyrir félagið o. m. fl.
Eftir ræðu hans var Vm-kveðjan til F.Í.S.
sungin við raust og var vel fagnað. Ágústa
Óskarsdóttir símastúlka lék á slaghörpu
nokkur lög, og vakti almenna hrifningu.
Skálað var fyrir minni L. í. og heillaríku
framtíðarstarfi hans, forráðamönnum L. í.
fyrir F.Í.S. og síðast en ekki sízt fyrir
minni símastjóra Vestmannaeyja Þórh.
Gunnlaugss. og frúar hans, sem.voru fjar-
verandi, í Reykjavík.
Hófið var deildinni til mikillar ánægju
og sóma, og stóð með dansi, söng og
fjörugu samanspjalli til klukkan tvö eftir
miðnætti og slúttað með „lengi lifi F.Í.S.!“
Stjjám F'.Í.S.
þakkar öllum þeim, sem hlut hafa
átt að því, að gera 40 ára afmælis-
hátiðina svo úr garði, að hún var
stéttinni til sóma.