Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1955, Side 55

Símablaðið - 01.01.1955, Side 55
SÍMABLAÐIÐ 29 FVJVÐARGEBÐ stofnfuntiar 99Eétaps Reykjavík, 27. febrúar 1915. Frk. G. Aðalstein kosin fundarstjóri og setur fund kl. 10 e. m. Stofnendur félagsins eru viðstaddir og voru þeir: Ottó Björnsson, Brynjólfur Einarsson og Adolf Guðmundsson, frk. G. Aðal- stein og Kristjana Blöndahl. Ástríður og Sigríður Hafstein gáfu Ottó Björnssyn i umboð fyrir sig. Einnig höfðu 0. Björnsson og K. Blöndahl umboð fyrir stofnendur þá út um landið er ekki gátu mætt. Lagafrumvarp það er 0. Björnsson bar upp er samþykkt með nokkrum breytingum. — Skeyti nokkur bárust oss einnig frá stofnendum út um landið. L. Petersen, Vestmannaeyjum, gaf 0. Björnssyni umboð fyrir sig. Frá Seyðisfirði barst oss svohljóðandi skeyti: „Vér sem höfum daglega fyrir augum hin heilladrjúgu áhrif félags- skapar símritaranna í Stóra Norræna, leyfum okkur hérmeð eindregið að skora á væntanlegan stofnfund í Reykjavík, að annast um stofnun slíks félagsskapar meðal íslenzkra síma- þjóna. Vér getum í öllum höfuðatrið- um felt oss við frumvarp það er oss hefur borist og göngum út frá því sem sjálfsögðu, að allir verði með. Jafnvel þótt talsverðar breytingar yrðu gerðar á lagafrumvarpinu, sem ekki kæmu í bága við tilgang félags- ins, munum vér ekki skerast úr leik, heldur standa sem einn maður og lof- um heillarík og til hagsbóta fyrir starfsfólkið og stofnunina. Ól. Kvaran. istenahra síwnatnanna“ um að styrkja félagið og væntanlegt blað eftir mætti. Álítum þó réttast að formaður og ritstjórn sæti í Reykja- vík, þar ættu að vera nægilegir kraftar og áhugi sem mættu verða félaginu til heilla. Með beztu kveðjum fyrir hönd síma- fólksins á Sf. og Esk. Fr. A8alsteinsson.“ Eftir samþykkt lagafrumvarpsins var kosin stjórn. Formaður var kosinn Otto Björns- son, ritari Adolf Guðmundsson, gjald- keri Kristjana Blöndahl. Fundi var slitið kl. 12. FUNDAHGERÐ frrstai stjórnarfundar F.Í.S. Dagsetningu vantar). Formaður Otto Björnsson setur fund. — Kosnir umboðsmenn fyrir fé- lagið: Friðbjörn Aðalsteinsson á Seyð- isfirði, Margrét Friðriksdóttir á Ak- ureyri og Ása Guðmundsdóttir á Isa- firði. Rætt um nafn blaðsins og ákveðið að allir félagsmenn megi koma með upp- ástungur. Kosin var fimm manna nefnd til að íslenzka teknisk orð. Kosningu hlutu Ottó Björnsson, Kr. Blöndahl, Adolf Guðmundsson og Friðbjörn Aðalsteins- son. Ákveðið var að senda umboðs- mönnum tilkynningu um kosningu þeirra.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.