Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1955, Page 58

Símablaðið - 01.01.1955, Page 58
32 SÍMABLAÐIÐ eins er það, sem vel fer, starfsmönn- unum að þakka. Oft hefur því miður borið á annarri skoðun og einhverri grýlu um kennt, ef eitthvert mál fé- lagsins hefur ekki náð fram að ganga, þó ástæðan hafi oft verið sú, að ekki hafi verið nægilega samrýmdir hags- munir starfsmanna og fulltrúa þess op- inbera. Stundum hefur þó einnig skort á skilning stjórnendanna á nauðsyn- legri lausn hinna ýmsu vandamála. Þannig ganga viðskipti starfsmanna og stjórnenda tíðum, en eftir því sem fé- lagsþroskinn hefur vaxið á báða bóga, hefur þetta lagast til mikilla muna. Það sem einu sinni var hægt að bjóða starfsmanni, og hann varð að láta sér lynda möglunarlaust, er nú ekki hægt lengur. Gagnkvæm virðing og traust er að verða almennara og starfsmaður- inn er víða orðinn aðili, sem fær að láta skoðanir sínar í ljós, en er ekki lengur mállaus og þægur þræll. Mér er sönn ánægja að óska F.l.S. til hamingju með þann árangur, sem félagið hefur náð á æsku- og uppvaxt- arárum sínum og þá sérstaklega með Starfsmannaráð. Með Starfsmannaráði er að hefjast nýr þáttur í sögu félagsins, sem ég af heilum hug vona, að verði starfsmönnum og stofnuninni í heild til mikils góðs. Ráðið hefur — þegar þetta er skrifað — haldið 32 fundi og hefur skilað eingöngu einróma ályktunum. Það eitt sýnir, að meðlimir þess meta allir samstarf og virða skoðanir hvors annars í hinum ýmsu málum. Ég skal ekkert um það segja, hvort sami á- rangur hefði náðst án Starfsmannaráðs, en ég er í vafa um það. Málefni ráðs- ins hafa — enn sem komið er — mest varðað launamál. En svo er nú komið, að til þess að fulls samræmis verði gætt um þá fjölmörgu starfsmenn, sem leit- að hafa til ráðsins með málefni sín, verður að fá ákveðnar línur um skipu- lag og starfsskiptingu í stofnuninni. Það verkefni verður mikið og reynir á skilning allra á nauðsyn samvinnunnar, ef vel á að fara. Fertugt hefur F.l.S. nú nýjan starfs- þátt, þar sem hagsýni manndómsáranna ræður, en litið verður til baka yfir runn- ið skeið æsku- og uppvaxtaráranna, og þess, sem þá var glímt við, og lært af. Að lokum vil ég óska sérhverjum fé- laga F.l.S. gömlum og nýjum til ham- ingju með afmælið og þakka samstarf- ið á liðnum árum. Einnig vil ég minn- ast horfinna félaga og þakka þeim starf þeirra, það verður aldrei nógsam- lega metið. F.I.S., brautryðjandi, vertu starfi þínu trúr þjóðinni til heilla. Einar Pálsson. Hjartanlega þökkum við öllu starfsfólki við Landssíma Islands fyrir drengilega aðstoð okkur til handa, þegar við misst- um aleigu okkar í éldsvoðanum á Gamla Vatnsnesi í Keflavík 15. nóv. síðastUð- inn. Sérstaklega þökkum við starfsfólki Landsssímans í Reykjavík og Keflavík fyrir framúrskarandi góðvild og hjály- semi. Sigurborg og Edda Friðgeirsdætur.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.