Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1955, Síða 64

Símablaðið - 01.01.1955, Síða 64
3ð SÍMABLAÐIÐ (juma litia et qletttí fljcð Mjó, blaut og forug gatan hlykkjar sig gegnum bæinn. Húsin, sem við hana standa, eru óskipuleg timburhús með kvistum, turnum og allskonar úreltu útflúri. Þessi hús eru mjög eymdarleg. Málningin er víð- ast snjáð af, þar sem annars einhverntíma hefur verið málning og þar skín í kol- ryðgað bárujárnið. Gluggarnir og þeirra skraut, veggsvalir og stromparnir er allt brotið og úr sér gengið. Þessi hús eru dæmd til tortímingar samkv. skipulags- uppdrætti bæjarverkfræðingsins. Þarna á nýi tíminn að ryðja sér veglega braut. Þessi gata á að verða að beinu, fallegu stræti. í stað timburhjallanna á að reisa þarna nýtízku hús — funkishallir úr gleri, stáli og steini. Þar eiga hinir færustu iðn- aðarmenn að koma til sögunnar, skapandi hendur og hugur hinna lærðustu manna. Ennþá er þessi gata —- Ráðhússtræti hins nýja tíma — hlykkjótt gata, og ráðhúsið, sem á að standa fyrir enda strætisins hinu megin við torgið, en það er nú bara ljótur forarpollur, grænn af slýi og óþverra, já, ráðhúsið er ennþá aðeins gamalt og hrör- legt hesthús, hurðarlaust og óhrjálegt, hlaðið úr grjóti og torfi. Og þarna í hverf- inu heitir hið fyrirheitna ráðhússtræti bara Hesthússtígur, þó að hestarnir séu allir horfnir fyrir tímans tækni. Nú skrölta bíl- ar eftir ósléttri og forugri götunni, spúa gasi og sletta aur á vegfarendurna, sem ekki eru nógu fljótir að forða sér upp á tröppur eða jafnvel inn í húsin, því að gangstétt er þarna vitanlega engin. Bílarnir hoppa og skrölta eftir Hesthússtíg, þessir trúboðar tækninnar ösla yfir tjörnina, sem á að verða torg, svo kolgrænt og gruggugt vatnsskolpið skvettist í allar áttir. Svo beygja þeir fyrir hurðarlausa framtíðar A * Sonnetta eftir A.A. ráðhúsið og hverfa inn á aðalstræti bæjar- ins. Bak við húsið nr. 10 við Hesthússtíg, sem er kassalaga og klunnalegt timburhús, klætt bárujárni með stórum ryðskellum hingað og þangað, stendur fremur lítill skúr með einni smá gluggaboru, en annars nokkuð nýlegur að sjá. Dyrnar standa al- veg opnar, svo að haustsólin geti gægst sem bezt inn. í skúrnum stendur ungur iðnaðarmaður, Siggi Jóns, og hamast við að hefla rimla í garðgrindur sýslumannsins. Einhverjir skrattans prakkarar stálu kvöldinu áður gamla fordbílnum heildsal- ans og óku bílskömminni utan í grindurn- ar meðan næturvörðurinn skrapp skottúr inn á varðstofu og fékk sér eitt kapal- partí. Siggi hætti að hefla og hvíldi sig. Hefill- inn hans beit ekki of vel og ekki átti hann hefla á lager til skiptanna. Hann var fyrir skömmu laus úr skólanum og hafði nýlega fengið sveinsbréfið sitt. Nei, hann átti enn ekki mörg smíðaverkfæri og tald- ist heldur en ekki til þeirra snjöllu í fé- lagsskapnum, sem iðnaðarmenn höfðu með sér. Hann varð því að láta sér nægja smá- vegis dútl og smíðar ennþá. Siggi snýtti sér svo að rumdi í skúrnum og þurrkaði af sér svitann með rauða vasa- klútnum sínum. Hann var alveg bullandi sveittur af vinnunni. Hann leit út um gluggakytruna. Þarna var lögregluþjónn- inn á harða hlaupum, sem var reyndar al- veg nýtt fyrirbrigði í hennar óskráðu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.