Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1956, Síða 9

Símablaðið - 01.01.1956, Síða 9
SÍMABLAÐIÐ 3 AÐALFUIMDUR F.Í.S. 1956 Fyrrihluti aðalfundar F.Í.S. var hald- inn 14 febr., s.l. Þar gaf formaður fé- lagsins greinagóða skýrslu um störf þess á liðnu starfsári. Kom hann víða við, en veigamesta málið, sem stjórnin hafði með höndum á þessu tímabili (að Landsfundinum slepptum), var auðvit- að í sambandi við setningu launalag- anna. Skýrði hann frá aðgerðum fram- kvæmdastjórnar, félagsráðs, stjórnar F. F. P. S. og Starfsmannaráðs L. I., í sambandi við þetta mál. Þakkaði hann að miklu leyti góðri samvinnu allra þessara aðila, ásamt því hve fljótt framkvæmdastjórnin hefði brugðist við í máli þessu, hver árangurinn hefði orð- ið. Einnig þakkaði hann Maríusi Helga- syni ómetanlega aðstoð hans í stjórn bandalagsins. Nokkrir urðu til að þakka formanni og framkvæmdastjórn fenginn árang- ur í máli þessu, en þó kom fram gagn- rýni á stjórnina fyrir að starfsfólk á 1. fl. B.st. var ekki tekið á launalög nú. Var gefin skýring á því og upplýst, að erfitt hefði verið að sækja það fast, þar sem því jafnvel hefði verið haldið á lofti, að allt símafólk mundi óska eft- ir að taka ekki laun samkv. launalög- um ef á þeim fengist ekki lagfæringar. Á fundinum lágu frammi fjölritaðir reikningar félagsins og voru þeir skýrð- ir rækilega. Þá gaf ritstjóri símablaðsins einnig skýrslu um hag og gengi blaðsins og hvatti menn, að vanda, að senda því efni. Lýst var tillögu stjórnarinnar (sem áður hafði verið rædd og samþ. af fé- lagsráði) um hækkun félagsgjalda í kr. 200,00 á ári. Gerði formaður grein fyrir tillög- unni. Hvað hann hækkunina ekki ætlaða til að auka eyðslu eða til aukins rekstr- arkostnaðar, heldur til aukningu sjóða félagsins, er síðan legðu fé þetta til geymslu í Lánasjóð Símamanna. En hans markmið þekktu flestir, og væri þörfin þar fyrir meira fé, mjög brýn. Einnig hefðu nokkrir útgjaldaliðir hækkað t. d. gjald til B.S.R.B. um 50%, en félagsgjöld til F.l.S. staðið í stað um 10 ár. Einnig minntist hann á tillögu Ól. Hannessonar frá Landsfundinum, og gat þess, að stjórnin hefði álitið þessa leið greiðari til að auka getu Lánasjóðsins. Nokkrir tóku til máls um tillöguna og mæltu allir með henni. Á þessum fundi afhenti formaður Steindóri Björnssyni heiðursfélaga- skjal, samkvæmt samþ. Landsfundar- ins, og bað fundarmenn að heiðra þenn- an mæta félaga með ferföldu húrra- hrópi. Þakkaði Steindór með nokkrum orð- um sér auðsýnda vinsemd og heiður. Lýst var eftirfarandi tillögu frá Karli Helgasyni og Jóni Tómassyni: „Aðalfundur F.l.S. haldinn 14. febr. 1956 skorar á Póst- og símamálastjórn- ina að láta starfsfólk á 1. fl. B. stöðv-

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.