Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1956, Page 12

Símablaðið - 01.01.1956, Page 12
tt SIMASLAÐIÐ Síniafólk vinnnr að gróðursetning:u. settar 1500. Síðan hefur árlega verið plantað út þrjú þúsund stk. Þann- ig er nú búið að gróðursetja í þennan reit F.l.S. alls um 13500 plöntur og vonandi tekst nú á þessu vori að bæta enn við 3000. Um árangurinn er það að segja, að sitkagrenið og lerkið virðast þrífast bezt og ef sumarið verður gott, má vænta þess, að einstaka lerkiplöntur verði met- erháar í haust, Furan er mjög seinvax- in fyrstu árin, en margar furuplöntur eru lifandi þó lítið beri á þeim, þar sem þær standa ofan í grasi og lyngi, en þrátt fyrir það mun hún hafa týnt tölunni að einhverju leyti. Um gróðursetninguna er það að segja, að allt of fáir félagsmenn hafa þar lagt hönd á plóginn og er það óskiljanlegt sinnuleysi. Starfið hefur því hvílt á til- tölulega fámennum en dugandi hóp fé- lagsmanna. Þar sem félagið fékk þarna nijög góðan og skemmtilegan blett, væri ánægjulegt að hann gæti orðið félaginu til sóma í framtíðinni. 1 þessu sambandi skal lítillega bent á nauðsyn þess að halda óviðkomandi fólki frá þessum bletti okkar. Er það álit mitt, að sem fyrst þyrfti að reisa þarna sumarhús, sem í og með gæti máske orðið til þess. Forniaðurinn fæst við plöntur. Kah.

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.