Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 Fréttir JSV Kjarasamn- ingar felldir Starfsmannafélag Garðabæjar felldi nýjan kjarasamning í almennri atkvæðagreiðslu félags- manna. Samningurinn, sem undirritaður var þann 27. október, var felldur með 93 atkvæðum gegn 64. Auð- ir og ógildir seðlar voru 20. Alls greiddu 88 prósent fé- lagsmanna atkvæði. Stjórn félagsins mun á næstunni funda með trúnaðarmönn- um starfsstaða til að túlka niðurstöðu kosningarinnar. Jafnréttivið jólaundirbún- ing Eins og margir hafa tek- ið eftir hefur þema ársins hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur verið jafnrétti, einkum jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. í tilefni þess að jólin eru á næsta leiti fannst VR því við hæfi að kanna hvemig kynin skipta með sér verkum á heimilinu þegar kemur að því að gera klárt fyrir jólin. Könnunina má finna á vef félagsins og þar er meðal annars spurt um hver sjái um jólaþrifin, jólagjafa- kaup, jólaskreytingar og að skjóta rjúpu. Enginn vill vinna viðjóla- hald Enginn virðist vilja starfa í Pakkhúsinu í Snæ- fellsbæ um jólin. Á fundi Pakkhúsanefndar Snæfells- bæjar í gær kom fram að enginn hafi sótt um áður auglýst starf í Pakkhúsinu vegna jólahalds. Vom nokkrar umræður um mál- ið á fundinum. Nefndar- menn höfðu sjálfir reynt að fá fólk til starfsins en lítið orðið ágengt. Niðurstaðan var því að auglýsa starfið á nýjan leik en af fundargerð- inni að dæma vom nefnd- armenn ekki bjartsýnir á að það bæri árangur. Fíkniefnasali á Patreksfirði slapp heldur betur með skrekkinn þegar dæmt var í máli hans nú á dögunum. Héraðsdómur VestQarða dæmdi fíkniefnasalann Hörð Sveinsson i eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir sölu og vörslu amfetamins, kókains og e-taflna. Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, vill að menn fái dóma í samræmi við brot sín. Seldi ftaiielni é sjómanna- dagshatm og slapp Hörður Sveinsson seldi fíkniefni á sjómannadagshátíð Patreks- fjarðar í sumar. Hann var handtekinn af lögreglu en á honum fundust e-töflur, amfetamín og kókaín. í dómnum kemur fram að hann hafi selt tveimur aðilum e-töflur en þrátt fyrir það fékk hann aðeins eins mánaðar skilorðsbundinn dóm. fbúar Patreks- fjarðar furða sig á dómnum. Hörður þarf ekki að greiða neina sekt heldur aðeins halda skilorð í tvö ár. Málið var dómtekið 9. nóvember síðastliðinn en það var sýslumaður- inn á Patreksfirði sem kærði Hörð Sveinsson. Hörður hafði verið á sjó- mannadagshátíð bæjarins að selja fíkniefni og náðist af lögreglu aðfara- nótt mánudagsins 6. júm' en þá hafði hann innanklæða 2,42 grömm af am- fetamíni, 2,06 grömm af kókaíni og 10 e-töflur. Seldi e-töflur Fram kemur í dómnum að lög- reglan hafi fundið efnin við likamsleit á Herði Sveinssyni. Var hann staddur á Aðalstræti á Patreksfirði en þar fór fram sjómannadagshátíð með til- heyrandi skemmtunum. Hörður var kærður fýrir að hafa fíkniefni í vörslu sinni ásamt þvf að hafa selt tveimur aðilum þrjár e-töflur fyrir samtals 8.000 krónur. Svo virðist sem að Hörður hafi gef- ið lögreglunni upplýsingar um hvem- ig hann fékk efnin því fram kemur í dómnum að Hörður hafí keypt sex grömm af kókaíni, fimm grömm af amfetamíni og 20 e- töflur í kringum mánaðamótin maí/júní 2005. Ekki kom fram af hverj- um hann keypti efn- in. | Guðmundur Guðlaugsson IBæjarstjóri Vesturbyggðar. Ánægður með dóminn „Ég er bara ánægður með að hafa sloppið svona vel," sagði Hörður Sveinsson þegar haft var samband við hann í gær. í fyrstu vildi hann ekkert kannast við málið. Hann sagði að lög- reglan hefði aldrei handtekið hann umræddan dag og að hann hefði aldrei verið við- riðinn fíkniefni. Virkt eftirlit Ekki em aUir sáttir við dóminn eins og gefur að skilja. fbúar Patreks- fjarðar, sem höfðu samband við DV í gær, lýstu yfir vonbrigðum sfn- um með dóminn og sögðu það ótrú- legt að fíkniefnasali fengi aðeins skilorðs bundinn dóm og enga sekt fyrir jafíi alvarlegan glæp. Bæjarstjóri Vesmrbyggð- ar, Guðmundur Guðlaugsson, segir aukna gæslu hafa orðið til þess að Hörður var handtekinn: „Þessi handtaka kom í kjölfar mjög virks eftirlits. Við vomm með sérstakt aukaeftirlit yfir sjómannadagshátíð- ina til þess að koma í veg fyrir svona hluti. Þessi handtaka sýndi það að þetta bar árangur sem eríiði." Mildur dómur Guðmundur segir stöðuga um- ræðu um fíkniefni í gangi í bæjarfé- laginu og að reglulega hafi verið grip- ið til ráðstafana í þeim efnum. „Lögreglan hefur verið með ,Ég er bara ánægður með að hafa sloppið svona vel. ákveðið starf í gangi sem fer í grunn- skólana. Sölumenn dauðans mæta á svona hátíðir en þess vegna vildum við hafa virkt eftirlit. Það var leitar- hundur á svæðinu og þessi gæsla gekk eftir. Hvað dóma varðar þá vilj- um við eðlilega að menn fái dóma í samræmi við brot sín. Fyrir leik- manninn hljómar þessi dómur frekar mildur en ég hef ekki vit á þessu." Hörður Sveinsson þarf að halda skilorð í tvö ár til þess að sleppa við mánaðarfang- elsisvist. Horður Sveinsson Fékk vægan dóm þrátt fyrir að viðurkenna sölu á e-töflum og að hafa haft kókaín, e-töflur og amfetamín innanklæða Sjómannadagshátíðin á Patreksfirði Virkteftir- lit varð tilþess að fíkni- efnasalinn Hörður Sveins- son var handtekinn. Idol-lúðinn væntanlegur til landsins á morgun Hung hefur selt meira en Bubbi William Hung, einhver frægasti þátttakandi í Idol fyrr og síðar, er væntanlegur til landsins á morgun. Þétt dagskrá er fyrirliggjandi en einn þeirra sem verða honum inn- an handar er Sigmar Vilhjálmsson, Idol-kynnir með meiru. Hann er fullur tilhlökkunar að hitta þennan skemmtikraft sem þekktastur er fyrir flutning sinn á lagi Rickys Martin, She Bangs. „Hung lifir góðu lífi á því að fara um og skemmta. Hann hefur selt yfir níu hundruð þúsund niðurhöl af síðu sinni amhung.net. á She Bangs. Hann selur meira en Bubbi. En þetta er kannski einhver markaðs- fræði sem ég er að fara með," segir Sigmar. Aðalástæða íslands- ferðar Williams Hung er landsleikur íslendinga og Norðmanna í Vestmanna- eyjum á laugardag, þar sem hann ætlar að troða upp. Hann mætir hingað með mömmu sinni en Sigmar mun vera Hung innan handar í þeim viðtölum sem hann fer í. „Vel má vera að ég fari með hann á Gullfoss og Geysi. Svo er náttúrlega klass- ískt að fara í Bláa lónið. Ég geri fastlega ráð fyr- ir því að Hung og mamma hans slaki á þar eftir erfiða ferð frá LA." Uggjgjjggi wUI‘' Pað liggur á að undirbúa næstu bók sem ég á að skila íjanúar, “ segir Áslaug Jóns- dóttir bókverkakona sem hlaut Islensku myndskreytiverðlaunin i ár fyrir bók sína Gott kvöld.„Nýja bókin er framhald afbók sem ég gafút í fyrra og heitir Nei sagði litla skrimslið, og kemur út Iþremur löndum næsta vetur.“ Simmi og Hung Simmi verð- ur Hung innan handar íþeim viötöium sem hann veitirþér á landi. Hung kemurhingað frá LA ásamt móður sinni. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.