Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Page 12
16 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 Fréttir XXV Sigurður ótækurí Baugsmálinu Héraðsdómur Reykjavík- ur felldi í gær úrskurð þess efnis að Sigurður Tómas Magnússon væri ekki bær til að sækja fyrir dómi þá átta ákæruliði í Baugsmálinu sem Hæstiréttur vísaði heim í hérað en Sigurður Tómas var settur rikissaksóknari af Birni Bjamasyni dómsmála- ráðherra eftir að Bogi Nils- son ríkissaksóknari sagði ifá málinu vegna tengsla. Sig- urður Tómas hefur þrjá daga til að ákveða hvort hann hyggst kæra úrskurðinn. Ragnhildurí stjórn Árvakurs Ragnhildur Geirs- dóttir, fráfarandi for- stjóri FL Group, hef- ur tekið sæti í stjóm Árvakurs, útgáfufé- lags Morgunblaðs- ins. Ragnhildur tekur sæti fyrir Forsíðu, fé- lag Ólafs Jóhanns Ólafssonar, en auk hennar kom Skúli Valberg Ólafsson nýr inn í stjóm. Æðsta stjórnin breyttist ekkert en Stefán Pétur Eggertsson er áfram formaður stjórnar og Kristinn Björnsson, fyrrver- andi forstjóri Skeljungs, er varaformaður. Nýtt sett hjá RÚV Páll Magnússon út- varpsstjóri hefur brugðist við harðari samkeppni frá NFS og glænýju fréttasetti þeirra með því að mæta til leiks með nýtt fréttasett í sjö-fréttum RÚV. Settið var vígt á mánudagskvöldið og ku þetta aðeins vera byrjunin á nýju útliti RÚV sem ætlar með þessu að komast í takt við tímann, fara inn í 21. öldina. „Héðan er allt gott að frétta, allir hressir eftir þvisem best er vitað, “ segir Baldur Krist- jánsson, sóknarprestur á Þor- lákshöfn.„Atvinnuástandið hér ergott og það er mikið byggt. Við erum með á plön- unum að byggja verslunar- miðstöð sem á að vera kjarn- inn í nýjum miðbæ. Svo erum við að Landsíminn bæta aðbúnað aldraðra og erum að leggja lokahönd á viðbygg- ingu við grunnskólann. Afmér er það að frétta að ég var að opna nýja endurhannaða heimasíðu, baldur.is, þar skrifa ég meðat annars ípistli að við ættum frekar að kalla Þrengslaveg Ölfusbraut, það er mun meira aðlaðandi nafn." Ofbeldisæði kraftakarlsins Ólafs Karls Eyjólfssonar ætlar að reynast honum með eindæmum dýrkeypt. Eins og DV hefur greint frá réðst Ólafur með ofbeldi gegn fimm samnemendum sínum og veitti þeim áverka síðastliðinn föstudag. Þrír hafa kært hann til lögreglu. Hann hefur nú verið rekinn úr meistaranámi sínu við laga- deild Viðskiptaháskólans og í kjölfarið missir hann vinnu sína sem starfsmanna- stjóri Samkaupa á Bifröst. Mkarl rekinn úr skúla og vinnu fyrir ofbeldisæði „Mál sem þetta er fordæmalaust," segir í úrskurði Runólfs Ágústs- sonar, rektors Viðskiptaháskólans á Bifröst, sem vikið.hefur Ölafi Karíi Eyjóifssyni, rneistaranemá í lögfræði, úr námi ótímabundið vegna fjölda líkamsárása sem DV greindi frá á mánudag. Ákvörð- unin var samþykkt á fundi háskólaráðs á mánudag. Á föstudaginn síð- asta réðst Ólafur með oíbeldi gegn fímm samnemendum sín- um og veitti þeim áverka. Greinargerð- um var í kjölfarið skil- að til háskólaráðs og af þeim mátti ráða að árásimar hefu verið með öllu tilefnis- lausar og grófar en þær áttu sér stað á Kaffí Bifröst, í skóla- húsi og fyrir utan j Bjarkarhraun. Þrír nemendur hafa kært Ólaf til lögreglu vegna málsins en ein stúlka mún hafa nefbrotnað við árás hans. DV 27 .nóvemt •ímm Árás á há- skólasam- félagið í úr- skurði gjj rektors P| sem há- | skólaráð samþykkti einróma segir meðal annars: „Árás af þessu tagi er hvort tveggja í senn gróf aðför að lífí og limum þeirra einstaklinga sem fyrir henni urðu og alvarleg árás á há- skólasamfélagið Bif- röst sem heild. Bif- röst leggur, sem samfélag og háskóli, höfuðáherslu á þau gildi sem felast í gagnkvæmri virðingu fólks, öryggi og sam- stöðu. Því telst rétt og hæfilegt að viðkomandi nem- anda verði vísað úr námi við háskólann ótímabundið. Sömuleiðist er honum vísað af háskólasvæðinu sem shku og skal hann þegar yfirgefa svæðið." Má ekki líðast Háskólaráð samþykkti í kjölfar úrskurðar rektors ályktun þar sem segir: „Of- beldi má ekki undir nokkrum kringumstæðum líðast. í há- skólasamfélaginu á Bifröst. Há- skólaráði ber að taka á slíkum málum af full- um þunga.“ Samkvæmt 40. grein reglu- gerðar Viðskipta- háskólans er Ólafi Karli heimilt að skjóta ákvörðun rektors n . Ólafur Karl Eyj- ólfsson Gert að yfirgefa háskóla- svæðið undir eins. Viðskiptaháskólinn á Bifröst Háskólaráð samþykkti ályktun íkjölfar brottrekstursins. skólaráðs til áfrýjunarnefndar. Missir vinnuna líka Æðiskastið sem rann á Ólaf síð- astíiðið föstudagskvöld kom flestum sem til hans þekkja á óvart. Honum er lýst af vinum sínum sem dag- farsprúðum pilti og hvers manns hugljúfa. Föstudagskvöldið ætlar að reynast honum með ein- dæm- um dýr- „Árás afþessu tagi er hvort tveggja í senn grófaðför að lífi og limum þeirra einstak- iinga sem fyrir henni urðu og alvarleg árás á háskólasamfélagið Bifröstsem heild." keypt því auk þess að vera vikið úr meistaranámi sínu mun hann einnig láta af störfúm sem verslun- arstjóri Samkaupa á Bifröst. „Jú, þetta helst í hendur. Þetta er ákaflega leiðinlegt mál," segir Guð- jón Stefánsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, um starfslok Ólafs Karls Eyjólfssonar. andri@dv.is Allt í loft upp í unglingadeild Hvassaleitisskóla Veggjakrot og dóppartí Hvassaleitisskóli Algjör ringulreið rikir Iskólanum að mati móður sem vill ekki láta nafns síns getiö afótta við að það bitni á börnum hennarsem eru Iskólanum. Foreldrar barna í unglingadeild Hvassaleitisskóla hafa miklar áhyggjur af stöðu mála í skólanum. Móðir, sem vildi ekki láta nafns síns getið af ótta við að börn hennar í skólanum yrðu fyrir aðkasti í kjöl- fari, sagði í samtali við DV í gær að veggir skólans væru eins og listaverk eftir Erró og mikið agaleysi ríkti í skólanum. Móðirin sagði jafnframt að skóla- stjórnendur hefðu sent út boð tU foreldra um að fyrirhugað væri partí með dópi og brennivíni fyrir 8. bekk- inga. Hún sagði rnikla ringulreið hafa skapast meðal foreldra við þessar fréttir og lýsti því eiginlega svo að foreldrar væru gjörsamlega ráðþrota. Bergþóra Njála Sigurðardóttir, formaður foreldrafélags Hvassaleit- isskóla, vildi ekki tjá sig um þetta mál. Aðspurð sagðist hún ekki tjá sig um slík mál við fjölmiðla en myndi glöð svara fyrirspurnum foreldra. Ekki náðist í Pétur Orra Þórðar- son, skólastjóra Hvassaleitisskóla, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Alvarleg staða í Eystrasalti í dag fer fram fundur hjá Eystrasaltsráðinú í Stokkhólmi og situr Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hann fyrir ís- lands hönd. Tilefnið er alvarleg staða umhverfismála í Eystrasalti. Stór hafsvæði urðu fyrir miklum þörungablóma síðastliðið sumar, sem rakið er til mengunar frá landi vegna landbúnaðar og skólps frá íbúabyggð. Sigríður Anna hyggst leggja áherslu á nauðsyn þess að sjálfbær þróun sé höfð að leiðarljósi við stjórn umhverfismála Eystrasalts, enda hagsmunir íslands sem strandrík- is miklir á þessu sviði. Fundinn situr einnig framkvæmdastjóri umlrverfísmála Evrópusam- bandsins, en framkvæmdastjórn- in hefur nýlega lagt fram stefnu- mótun og tillögu að tilskipun um málefni hafsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.