Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 Sport J3V Jelena látin fara frá Haukum Haukar hafa ákveðið að láta Serbann Jelenu Jovanovic fara frá liðinu og mun hún ekki spila síðasta Evrópu- leik liðsins sem fer fram á Ítalíu á fimmtudaginn. Jel- ena spilaði átta leiki með Haukaliðinu, þar af fimm þeirra í Evrópukeppninni. Jelena var með 9,9 stig, 5,1 fráköst og 34% skotnýtingu á 27,4 mínútum í þessum 8 leikjum. Jelena lék sinn síð- asta leik með Haukum í undanúrslitum Power- adebikarsins um síðustu helgi og var þá með 6 stig og 5 fráköst á 27 mínútum. James og Brand valdir bestir Lebron James, leikmað- ur Cleveland, og Elton Brand hjá Los Angles Clipp- ers voru valdir bestu leikmenn vikunnar 14. til 20. nóvember í NBA- deildinni í körfu- bolta. James var með 29.7 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar að meðaltali í þremur sig- urleikjum Cleveland í vik- unni, þar af var hann með þrefalda tvennu í þriggja stiga sigri á Philadelphia (36 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar). Brand var með 25 stig og 11,7 fráköst að meðaltali í þremur sig- urleikjum Clippers en hann var með tvpfalda tvennu í öllum leikjunum og nýtti 57% skota sinna í þeim. Bloch stoppaði í 5 daga í Grindavík Þýski leikmaður- inn Andreas Bloch sem átti að fá leik- heimild með körfu- knattleiksliði Grin- davíkur þann 10. desember er farinn heim og Grindvíkingar geta því ekki nýtt sér hann til að fylla í það skarð sem Damon Bailey skildi eftir sig. Bloch kom til Grindavíkur 14. nóv- ember en var farinn aftur til Þýskalands fimm dögum seinna af persónulegum ástæðum. Grindvfldngar leita áfram að nýjum stór- um leikmanni en tíminn styttist óðum því fresturinn fyrir Evrópumann rennur út um áramót. Báðir úr leik á HM í fimleikum Fimleikamenn- irnir Viktor Krist- mannsson og Rún- ar Alexandersson úr Gerplu eru báðir úr leik á heims- meistaramótinu í fimleikum sem fer nú fram í Melbour- __ ne í Ástralíu. Viktor varð 42 í undankeppni í fjölþraut og hlaut 47.174 stig en Rún ar lauk aðeins keppni á bogahesti og fékk 8.600 í einkunn. Hæsta einkunn Viktors í fjölþrautinni var 8.725 fyrir stökkæfingar en sú lægsta var upp á 6.825 fyrir gólfæfingar. Viktor fékk síðan 7.625 í einkunn fyrir bogahest, 7.780 fyrir hringi, 8.312 fyrir tvíslá og 7.987 fyrir svifrá. Seinni dagur fimmtu umferðar Meistaradeildar Evrópu fer fram í kvöld. Tvö lið, Lyon og Real Madrid, hafa tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum í riðlum E, F, G og H en fíögur önnur lið geta bæst í hópinn í kvöld. Augu margra eru á AC Milan og Porto sem eru ekki í alltof góðum málum en ensku liðin geta hins vegar tryggt sér sinn farseðil. LIVERPOOL-REAL BETIS Heimir: 2-1. Betis klúörar þessu eftir að hafa unnið Chelsea. Ouðni: 1-0. Liverpool vill tryggja sætið I 76 liða úrslitunum núna strax. ANDERLECHT-CHELSEA Heimir: 0-3. Eiður skorar þrjú á gamla heimavelli pabba síns. Guðni: 0-2. Chelsea þarfað vinna rétt eins og Liverpool. Liverpool-menn léttir á æfingu Liverpool er igóðum málum i Meistara- deildinni og það var létt yfir mönnum á æfingu I gær. jilJNBt LÍWPOOI00 CWseo afram i Lyon og Real Madrid eru bæði komin áfram í 16 liða úrslit og það er lítil spenna í F-riðlinum lengur en í hinum riðlunum þremur hefur ekkert lið tryggt sér farseðilinn en Liverpool, PSV og Internazionale geta öll komist áfram með sigrum í leikjum kvöldsins auk þess sem Eiður vS^ Smári Guðjohnsen og félagar hans í Chelsea geta einnig komist í 16 liða úrslitin verði úrslitin í G-riðlinum þeim hagstæð. Liverpool getur tryggt sér sér sæti í 16 liða úrslitunum með sigri á Real Betis á heimavelli og um leið hjálpað Chelsea til þess að komast áfram vinni Chelsea Anderlecht á útivelli. Eiður Smári Guðjohnsen er Kklegur til þess að byrja hjá Chelsea í forföllum Claudes Makele (meiðsli) og Shauns Wright-Phillips (leikbann) og spila á sama stað og faðir hans gerði garðinn frægan fyrir tveimur áratugum en Amór Guðjohnsen varð meistari og markakóngur með Anderlecht vetur- inn 1986 til 1987. Heimsækja Istanbúl á ný Fyrrverandi Evrópumeistarar í AC Milan og Porto eru ekki í nógu góðum málum eftir fýrstu fjórar umferðir riðlakeppninnar. AC Milan er í 2. til 3. sæti síns riðils með jafiimörg stig og Schalke en tveimur stigum minna en topplið PSV sem komst í lykilstöðu með 1-0 sigri á Mílanómönnum í síð- asta leik. Næst á dagskrá hjá Paolo Maldini og félögum í AC Milan er að heimasækja Istanbúl þar sem þeir glutruðu niður 3-0 forustu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar síðasta vor. „Nú fáum við gott tækifæri til þess að bæta fýrir leikinn í vor þegar við mætum Fenerbahce," sagði Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, sem var ekkert hress með það að vera minnt- ur á klúður vorsins þegar Iiverpool skoraði þtjú mörk í seinni hálfleikn- um og vann síðan í vítakeppni. Það er þó ekkert gefið að Mílanóliðið sæki þrjú stig til Tyrklands, liðið hefur ekki unnið í síðustu þremur leikjum og heimsækir nú Fenerbahce sem er taplaust á heimavelli og hefur skorað sex mörk í þeim tveimur leikjum. Fenerbahce hefur reyndar tapað 8 af 9 leikjum sínum gegn ítölskum liðum sem vinnur með Mílanó. Ekkert nema sigur dugar Porto Porto hefúr Ktið gert eftir brott- hvarf Joses Mourinho og þeir gætu verið úr leik eftir leiki kyöldsins. Intemazionale kemst áfram með sigri á Artmedia en Porto fær Rangers í Eiður Smári með í | kvöld? Allar likur eru á því að Eiður Smári Guðjohnsen verðimeð Chelsea gegn Anderlecht i kvöld en leikurinn fer fram á heimavelli Ander- lecht þar sem faðir hans Arnór var / aðalhlutverki fyrir tveimur áratugum. VIFV VIIM b E V R Ó P MEI5TARADEILD ' 5TAÐAN I RIOLUNUM: E-riðill PSV 4 21 Milan 4 1 2 Schalke 4 1 2 Fenerbahíe 4 1 1 F-riðill Lyon 4 4 0 Real Madrid 4 3 0 Rosenborg 4 1 0 Olympiacos 4 0 0 G-riðill Liverpool 4 31 Chelsea 4 21 Betis 4 2 0 Anderlecht 4 0 0 H-rlðill Lyon 4 4 0 Real Madrid 4 3 0 Rosenborg 4 1 0 Olympiacos 4 0 0 10-2 12 4-11 4-1 heimsókn. Porto hefur þrjú stig og er í neðsta sæti riðilsins, tveimur stigum á eftir Rangers og Art- media og því kemur ekkert annað til greina en sigur í kvöld. Real Madrid fær tækifæri til þess að stoppa sigurgöngu Lyon á Santiago Bemabéu og um leið að bæta fyrir skellinn gegn Barcelona um helg- ina. Rosenborg get- ur líka tryggt sér sæti í Evrópukeppninni með sigri á Olympi- acos. Franska liðið Lyon er með fullt hús eftir fyrstu fjóra leiki sína í Meistaradeildinni Aukaspyrnur sama sem vítaspyrnur fyrir Lyon Brasilíumaðurinn Juninho Pernambucano hefur átt frábært tímabil og er lykilmaðurinn í frá- bæm liði Lyon sem er enn taplaust í deild og Evrópu í vetur, hefur unnið alla fjóra leiki sína í Meistaradeild- inni og tólf af 15 leikjum sínum (3 jafntefli) í frönsku úrvalsdeildinni. Juninho er einn fjögurra leikmanna liðsins sem hafa unnið fjóra meist- aratitla á undanförnum fjómm ámm og hann er líklegur til að bæta við fleirum en hann er nýbúinn að framlengja samning sinn til ársins 2008. Þessi 30 ára miðjumaður er einn mest umtalaði leikmaður Meistaradeildarinnar í ár enda þeg- ar búinn að skora þrjú glæsimörk beint úr aukaspyrnum í keppninni í ár. „Þegar hann býr sig undir að taka aukaspyrnu ætlast ég nærri því til þess að hann skori," sagði varnar- maðurinn Claudio Cacapa í liði Lyon. Juninho skoraði einmitt mark beint úr aukaspyrnu fyrir Lyon í 2-1 sigri á Olympiacos í síðasta leik liðs- ins í Meistaradeildinni en í kvöld mætir hann með Lyon á Santiago Bemabéu til þess að spila við Real Madrid. Juninho sjálfur er ekkert að gera of mikið úr þessu sjálfur. „Þess- ar aukaspyrnur em allar að fara inn þessa stundina en starf mitt fyrir Lyon snýst ekki um að skora úr aukaspyrnum. Mitt aðalstarf er að vinna vel fyrir liðið og koma boltan- um til framherjanna sem eiga að skora mörkin," sagði Juninho sem hefur skorað 3 mörk og gefið 3 stoðsendingar í 4 leikjum Lyon í Meistaradeildinni. Það er samt staðreynd að stuðn- ingsmenn Lyon fagna aukaspyrnum í kringum vítateiginn líkt og um víta- spyrnur sé að ræða enda hefur brasih'ski miðjumaðurinn raðað inn mörkum úr aukaspymum. Juninho hefur nú skorað 22 af 55 mörkum sínum fyrir Lyon beint úr auka- spyrnum og þegar hann fékk tæki- færi með brasilíska landsliðinu á dögunum skoraði hann tvö mörk beint úr aukaspymum í 8-0 stórsigri á Sameinuðu arabísku furstadæm- unum í vináttulandsleik. / DV-mynd Gettylmages

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.