Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Blaðsíða 23
J3V Sálin MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 23 Berjast gegn þunglyndi í Suður-Afríku Sérfræðingar í Suður- Afríku eru að byrja með mikla herferð gegn sjálfs- vígum ungmenna. „Á þess- um tíma þjást margir af þunglyndi þar sem stress og álag prófa er rnikið," segir Roshni Parbhoo hjá Sam- tökum gegn sjálfsvígum. Hann segir tengingu milli sjálfsvíga og þunglyndis og að fæstir sem reyni sjálfsvíg geri það áður en þeir geri sér grein fyrir að sjálfsvígs- hugsanir ganga hjá. „Flestir vita að þeir eiga við vanda- mál að stríða en vita ekki hvert þeir geta leitað. Þar ætlum við að koma inn í.“ 9% unglinga sem hafa látist í Suður-Afríku á þessu ári féllu fyrir eigin hendi. Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is BETUSAN Unnur María Hjálmarsdóttir, formaöur Makalausa félagsins á Akureyri, segir félag- ið hafa verið stofnað þar sem svo margir hafi verið einir. í dag er Makalausa félag- ið orðið að alvörufélagi þrátt fyrir skoðanir einhverra um að félagið sé vettvangur fyrir lauslæti. Unnur María og aðrir í stjórninni halda árshátíð félagsins á laugar- daginn en eina skilyrðið um inntöku í félagið er að vera makalaus og makalaust skemmtilegur. „Tilgangur félagsins er að að hafa félagsskap hvert af öðru,“ segir Unn- ur María Hjálmarsdóttir, formaður Makalausa félagsins, sem er félags- skapur einhleyps fólks á Akureyri og nágrenni. Fjöldi félagsmanna er breytilegur eðli síns samkvæmt en Unnur segir nýjustu tölur telja um 35 einstaklinga. „Fyrir mánuði síðan vorum við yfir 50," segir Unnur Mar- ía og bætir við að það sé þó afar sjaldgæft að félagsmenn stingi sam- an nefjum. „Það varð til eitt par úr hópnum og svo voru átta aðrir sem fundu sér maka út fyrir hópinn en hinir fluttu í burtu eða borguðu ekki félagsgjaldið af öðrum ástæðum," segir hún og bætir við að félags- menn séu ekki aðeins á Akureyri heldur einnig frá Sauðárkróki, Dal- vík, Akranesi, Siglufirði, Egilsstöðum og jafnvel Reykjavik. Félagsmenn á öllum aldri „Við komum nokkur saman í september 2002 og stofnuðum fé- lagið og í dag er þetta orðið alvöru- félag með kennitölu, lögum og fé- lagsgjaldi og við ætlum að halda árs- hátíðina okkar á laugardaginn í hhð- arsalnum í Sunnuhlíð." Unnur María segir félagsmenn á öllum aldri en að konurnar séu þó aðeins fleiri en karlmennirnir. „Sú yngsta sem hefur verið með okkur var 25 ára og sú elsta áttræð. Við stofnuðum þennan félagsskap þegar við fréttum að það væri svo mikið af fólki sem væri eitt og í dag eru marg- ir hópar innan félagsins," segir hún og bætir við að gönguhópurinn sé þar langvirkastur. „Einnig förum við í kaffispjall, erum með menningar- hóp, grillum saman, förum í leikhús, erum með jólahlaðborð auk þess sem við hittumst alltaf á Kaffl Akur- eyri á mánudögum en þangað geta allir áhugasamir komið og spjallað við okkur." Fordómar í garð félagsins Unnur María segist ekki finna fyrir fordómum í garð einhleypra en að hún finni hins vegar fyrir fordóm- um í garð félagsins. „Sumir halda að þetta sé eitthver vettvangur fyrir lauslæti og að við séum einfaldlega að sofa hvert hjá öðru. Félagsskap- urinn snýst hins vegar alls ekki um kynlíf enda höfum við ekki áhuga á að skemma vináttuna með því að sofa hvert hjá öðru,“ segir hún og bætir við að það segi kannski mest um fólkið sjálft sem hafi þessar skoðanir. „í rauninni er þetta ein- ungis félagsskapur en ekki sjálfs- hjálparhópur en ef fólk vill ræða sín mál þá reynum við að hjálpa og höf- um þá algjöran trúnað enda gerum við mikið af því að droppa inn í kaffi hvert til annars og rabba um allt milli himins og jarðar." Eiga margt sameiginlegt Samkvæmt Unni Maríu eru fé- lagsmenn af öllum toga. Þar séu margir fráskildir, ekkjur og ekklar auk fólks sem aldrei hafi verið í sambandi. „Það eru margir sem eru einir og því nauðsynlegt að komast í samband við eitthvert fólk. Sjálf er ég svo sannarlega ekki ein því ég á hóp af börnum og barnabörnum en ég sæki í þennan félagsskap því ég á margt sameiginlegt með hin- um félagsmönnunum. Ef maður er einhleypur er gott að eiga ein- „Félagsskapurinn snýst hins vegar alís ekki um kynlíf enda höfum við ekki áhuga á að skemma vinátt- una með því að sofa hvert hjá öðru." hleypa vini því þú hringir einfald- lega ekki í gifta vinkonu þína og biður hana um að koma með þér í ferðalag og skilja karlinn eftir heima en einhleyp vinkona gæti þess vegna verið tilbúin á morg- un." Unnur María segir líklega of seint að skrá sig á árshátíð félagsins en það geti allir sem vilji skráð sig í félagið. „Við leggjum áherslu á að þetta sé alvörufélag en ekki eitt- hvað kynferðislegt. Einu skilyrðin fyrir inntöku er að vera makalaus og makalaust skemmtilegur." indiana@dv.is 1. Með hverjum? Spyrðu sjálfa/n þig þessarar spurn- ingar í hreinskilni. Með hverjum viltu virkilega eyða jólunum? ímyndaðu þér jól án samviskubits. Hvar líður þér best? Hvar geturðu hlegið og fi'flast? Hvar er þér tekið eins og þú ert? Hvar eru þínar É. þarfir teknar með í reikninginn? Þar áttu . að vera yfir jólin. 2. Jólainnkaupin Spyrðu sjálfa/n þig hvort þú sért að kaupa hverja gjöf ánægjunnar vegna eða vegna þrýstings. Vertu raunsæ/r varðandi fjárhagsstöðu þína. Ekki kaupa bara til að kaupa. Ef þú getur ekki hugsað þér að sleppa jólagjöf- unum reyndu þá að dreifa þeim yfir árið svo þú getir keypt gjöf sem þig virkilega langar að gefa. 3. Notaðu jólafríið Notaðu tímann sem þú ert í fríi úti í náttúrunni. Farðu í göngutúr í skóginum eða á skíði í brekkunum með börnunum. Ekkert er betra en að koma inn úr kuldan- um eftir velheppnaða útiveru, setj- ast í sófann með konfekt og góða bók. 6. Forðastu mikla áfengisneyslu Þótt góður matur og drykkur sé hluti af jólunum skaltu passa þig á að fara ekki yfir strikið. Ef þú veist að þú átt til að drekka eða borða of mikið skaltu umgangast fólk sem gerir það ekki. Farðu á AA-fund og umfram allt ekki eyða jólunum alein/n. 4. Iilúðu að andlegu hliðinni Andleg upplyfting er hollasta geðlyf- ið. Dustaðu rykið af barnatrúnni þinni og mættu í kirkju. Reyndu að finna friðinn innra með þér. 5' Sigrastu á einmanaleikanum Ef þú hefur áhyggjur af því að eyða tímanum ein/n skaltu ganga í ein- hver samtök. Það skiptir afar rniklu máli að hafa fólk í kringum sig sem skil- ur mann. Ekki festast í sjálfsvorkun- inni. Drífðu þig af stað. Unnur María Hjálmarsdóttir, for- maður Makalausa félagsins „Sjálfer ég svo sannarlega ekki ein þvlég á hóp afbörnum og barnabörnum en ég sæki i þennan félagsskap því ég á margt sam- s eiginlegt með hinum félagsmönnunum. ggapp f: -irfmf 6ráð til að njóta jólanna ■ Tengstu öðrum Hringdu í gamlan vin og spjallaðu. ■ Vertuviðstjóm Verslaðu við kaupmanninn á hom- inu og spjallaðu við hann um dag- inn og veginn. M Elskaðu sjálfa/n þig Stoppaðu þig ef þú ætlar að segja eitthvað neikvætt um sjálfa/n þig. ■ Vertu stolt/ur Biddu fjölskyldu þína um að segja þér af hverju þeim þyki vænt um Þig- ■ Finndu tilganginn Spyrðu vini og kunningja um þeirra markmið fýrir utan að eignast pen- inga. ■ Tengstu lfkama þínum Hentu öllum glanstímaritunum og hættu að horfa á gervilega fólkið í tónlistarmyndböndunum. ■ Tengstu náttúrunni Farðu í göngutúr á hveijum degi og taktu eftir því sem í kringum þig er. ■ Hugaöu að sálartetrinu Gerðu lista um allt það sem fær þig til að brosa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.