Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2005, Síða 25
DV Útivist & ferðalög MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 25 1 Kynnstu ekta japanskri menningu á þægilegan máta Ef þig langar að kynnast ekta japanskri menn- ingu skaltu leita uppi alvöru gistiheímíli. Ryokan svokölluðu, eru alltaf að verða aðgengilegri fyrir hinn erlenda ferðamann. Yagyu-no-sho er eitt af 60 þúsund ryokan í Japan og staðsett örlítið fyrir utan Tókýó. Þótt japönsk menning hafi varðveist á gistiheimilinu þurfa vestrænir férðlangar ekki að örvænta. f boði eru stærri inniskór og baðsloppar. Gestir fá herbergi sem er allt í senn sem stofa, svefnherbergi og matsalur svo skórnir verða að bíða fyrir utan. Dvöl á Yagyu-no-sho er ekki ódýr en nóttin fyrir tvo kostar 65 þúsund krónur en þeir sem hafa prufað segja það vel þess virði. Bindiverkshús Falleg bindiverkshús í miðbæ Bern- kastel-Kues i Móseldalnum Þýsk stemmning Götumynd frá gleð- skaparbænum Rudesheim. Domplatz Torgið stórkostlega fyrir framan dómkirkj- una í Erfurt. m Vínekrur við ána Mósel Margrét segir Mosel-Riesling vlniðafar gott. Fangabúðir Nöturleg mynd frá Buchenwald, rétt hjá Weimar, þar sem voru fangabúðir nasista. Ótrúleg fegurð Þorpið Cochem og Reichsburg-kastali við ána Mósel. mm „Uppáhaldslandið mitt er Ítalía sem stafar af því að ég var upphaf- lega skiptinemi þar fyrir mörgum árum og við það kviknaði bakterí- an,“ segir Margrét Gunnarsdóttir bókasafnsfræðingur, fararstjóri og umsjónarmaður heimasíðunnar fer- dalangur.net. Hefur ferðast mjög mikið Heimasíðan er hafsjór upplýs- inga um allt sem snýst að ferða- mennsku. Margrét hefur ferðast mjög mikið, bæði sem fararstjóri hjá Bændaferðum og á eigin vegum og notar eigin reynslu og upplýsingar sem hún finnur á netinu til að byggja upp síðuna. „Ég hef ferðast mikið til Mið- og Suður-Evrópu og landanna sem voru áður austan- tjalds megin eins og Tékklands og Ungverjalands auk Ítalíu, Þýska- lands, Austurríkis og Sviss," segir Margrét og bætir við að enn sem komið er haldi hún sig eingöngu við Evrópu. Ferdalangur.is varð til í byrjun ársins en Margrét var búin að skoða margar svipaðar, erlendar heimasíður. „Málið er að ég starfa sem bókasafnsfræðingur og vinn mikið á tölvur og með netið svo ég var með tækin og tólin og ákveðna kunnáttu í höndunum auk þess sem mér fannst vanta svona íslenska síðu," segir Margrét sem sér alfarið um heimasíðuna. Fær 500 heimsóknir á viku Margrét segir mismunandi hversu margar heimsóknir hún fái en vonar að sem flestir nýti sér þær upplýsingar sem þama er að finna. ,Ætli þetta séu ekki svona 500 heim- sóknir á viku og ég vona að þetta aukist smám saman en ég veit að það em margir sem hafa ekki hug- mynd um mig enn sem komið er. Eg rek einnig meðfram síðunni lítið fféttabréf sem kemur út vikulega og er ókeypis en áskrifendur em orðnir um 1500 talsins en í fréttablaðinu er útdráttur úr því sem birtist á síðunni og aðrir fróðleiksmolar." Hægt að skipuleggja ódýra ferð Margrét segir markmið síðunnar það að koma á framfæri til fólks hin- um ýmsa fróðleik sem hægt sé að finna á netinu. „Ég er að taka saman fróðleiksmola um staði sem íslend- ingar eru duglegir að heimsækja auk staða sem væri skemmtilegt að heimsækja og sigta út þá staði sem ég þekki sjálf til,“ segir hún og bætir við að markmiðið sé einnig að ýta undir ferðir á eigin vegum. „Ég reyni að stíla inn á þá sem ferðast einir enda er stór munur á því og að ferð- ast í skipulagðri ferð. Fólk þarf að vera mjög sjálfstætt og að kunna að bjarga sér. Mér finnst mjög mikil- vægt að fólk æði ekki bara af stað heldur lesi sér til um staðinn sem það ætlar að heimsækja. Þannig er hægt að fá mun meira út úr ferðinni þó að maður verði að grípa gæsina og leyfa einhveiju skemmtilegu og óvæntu að gerast líka svo það má ekki alit vera niðumjörvað. Mér finnst líka skipta miklu máli að fólk spyrji sjálft sig hversu miklu það ætli að eyða því það er enginn vandi að skipuleggja ferð þar sem maður kemst af án þess að eyða of miklu rétt eins og það er ekkert mál að eyða um efni fram," segir Margrét sem er dugleg að benda á leiðir til að spara á heimasíðunni. Jólastemmning á jólamörk- uðum í Evrópu Margrét er á leiðinni með hóp á vegum Bændaþjónustunnar á jóla- markað í Wurzburg og Rotenburg í Þýskalandi. „Á þessum tíma er mjög skemmtiiegt að fara til landa eins og Þýskalands, Tékklands og Austur- rflds til að upplifa jólastemmning- una og jólamarkaðina. Borgirnar eru uppfullar af ferðamönnum yfir sum- artímann og því verður andrúms- loftið allt öðruvísi fyrir jólin. Ég er einmitt að fara í áhugaverða ferð í byrjun desember og það verður mjög spennandi að heimsækja Þýskaland á þessum tíma." indiana&dv.is Gíbraltar Spánverjar veittu Bretum yfirráð yfir Gíbraltar árið 1713. Bretar lýstu land- svæðinu sem nýlendu sinni árið 1830. Ibúarnir neituðu að sameinast Spáni í kosningum 1967 og 2002 og kusu að vera áfram undir breskum yfirráðum. STAÐSETNING: I Suðvestur-Evr- ópu við suðurströnd Spánar. STÆRÐ: 6,5 ferkílómetrar. NÁTTÚRUAUÐLINDIR: Engar. ÍBÚAFJÖLÐI: 27.884. LÆSI: Meira en 80% íbúa eldri en 14ára kunna að lesa. HÖFUÐBORGIN: Gibraltar. ÆVtLÍKUR: 79,67 ár. TRÚARBRÖGÐ: Rómverskir kaþ- ólikkar 78,1%, enska biskupakirkjan 7%, aðrir kristnir 3,2%, múslimar 4%, 2,1% gyðingar, hindúar 1,8%. hJÓÐARBROT: Spánverjar, ítalir, Bretar, Möltubúar, Portúgalar, Þjóð- verjar og Norður-Afríkumenn. Nældu í bestu sætin v Skráðu þig í aJIa mögulega netklúbba sem flugfélögin bjóða upp á. v Ef það er fullbókað á venjulegu fargjaldi spyrstu þá fyrir um fyrsta farrými. v Vertu snyrtílega klædd/ur. v Ferðastu ein/n. Ef þú ert með börnin með þér minnka lflcumar á fýrsta farrými. * Vertu alltaf tilbúinn að færa þig ef þú ert beðin/n um það. Líkurnar á að sætið sé enn betra en það sem þú hefur em miklar. •> Þú kemst langt á kuiteisi og veiviija. v Mættu á réttum tíma. Líkurnar á að þú fáir sérlega gott sæti minnka ef þú tékkar þig inn á síðustu mínútunum. v Láttu vita ef þú varðst fyrir miklum óþæg- indum síðast. Ekki vera með stæla eða skamm- ast. Ef þú dregur að þér athyglina muntu ör- ugglega fá versta sætið í von um að þú látir aldrei sjá þig aftur. * Notaðu ferðapunklana þina. Notaðu kort sem gefa þér ferðapunkta og ekki gleyma að nota þá. v Spyrstu fyrir um bestu sætin og tilboð sem em í boði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.