Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1958, Page 8

Símablaðið - 01.01.1958, Page 8
2 S í M A B LAÐ I Ð þingi lög um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins, og má segja, að öll veiga- mestu atriðin í þeim lögum séu tekin úr Starfsmannareglunum og sum svo að segja orðrétt. Þannig njóta nú allir starfs- menn ríkisins góðs af þessu brautryðjanda- starfi F.Í.S. Næsti stóri áfanginn í starfsemi F.Í.S. var svo stofnun Starfsmannaráðs árið 1953. Hlutverk Starfsmannaráðs er margþætt, svo sem reglugerðin ber með sér. Það er ekki einskorðað við launakjör starfs- manna og önnur hagsmunamál í þrengri merkingu, heldur er þar farið inn á alveg nýjar brautir, þar sem gert er ráð fyrir, að félagið hafi tillögurétt um skipun í stöð- ur og um frávikningu, ásamt forstjórum hinna ýmsu deilda stofnunarinnar. Þá er hitt ekki síður merkilegt nýmæli, að viðurkenndur er í reglugerðinni réttur félagsins til þess, með áðurnefndum for- stjórum, að gera tillögur til póst- og síma- málastjóra varðandi umbœtur á rekstri stofnunarinnar yfirleitt. Með öðrum orðum, starfsmenn landssím- ans hafa gegnum fulltrúa sína í ráðinu rétt til þess að gera tillögur um hvers konar mál, er varða reksturinn, og kjör félagsmanna. Því það er eitt af hlutverk- um Starfsmannaráðs, að kynna sér sem bezt hag og rekstur landssímans, í því skyni að gera tillögur um umbætur á rekstrinum, er orðið gætu til hagsbóta fyrir stofnunina og viðskiptamenn henn- ar, byggja á reynslu starfsfólksins. Það þarf ekki að taka fram, að ekkert starfsmannafélag hérlendis hefur öðlazt slíkan rétt til afskipta af rékstri fyrir- tækisins, sem F.Í.S. með þessum ákvœð- um reglugerðarinnar. Á þessum tæpum 5 árum, sem liðin eru síðan Starfsmannaráð var stofnað, hefur starf þess aðallega be'inzt að launamál- um og stöðuveitingum, þegar um þær hef- ur verið að ræða. Þegar Starfsmannaráð tók til starfa sumarið 1953, var óleystur fjöldi mála varðandi launakjör og önnur bein hagsmunamál starfsmanna. Og síðan komu svo tillögur ráðsins í sambandi við setningu launalaganna 1955. Verður varla annað sagt, en að mikill árangur hafi náðst á þessu sviði, enda er nú svo komið, að óánægja með launamál- in er hverfandi hjá því sem áður var, burtséð frá áhrifum sívaxandi dýrtíðar. Að sjálfsögðu verður þó ekki hjá því kom- izt, að Starfsmannaráð láti þessi mál til sín taka þegar þörf er á, enda er það eitt af aðalhlutverkum ráðsins. Þróun stofnun- arinnar og allar breytingar eru einnig svo örar, að óhjákvæmilegt er að ýmis vanda- mál skapist öðru hvoru, varðandi kaup og kjör starfsfólksins. Hinsvegar má búast við, að þessi störf verði framvegis ekki jafn tímafrek hjá ráðinu, og má því segja, að nú sé komið að þáttaskilum í starfsemi þess. Starfsmannaráði ber tvímælalaust að rækja skyldur sínar, svo sem reglugerðin ætlast til, með því að snúa sér nú að þeim þætti starfseminnar, sem útundan hefur orðið af eðlilegum ástæðum, en það eru tillögur um umbætur á rekstrinum og það, sem betur mætti fara í viðskiptum stofn- unarinnar við símanotendur. Á þessu sviði bíður ráðsins mikið verkefni, og er von- andi, að það reynist ekki síður giftudrjúgt á þeim vettvangi. í reglugerð um ráðið eru ákvæði sem heimila, að veitt séu verðlaun fyrir at- hyglisverðustu tillögur, sem ráðinu ber- ast, og miða að umbótum á hvaða sviði sem er, í rekstri stofnunarinnar. Of mikils tómlætis hefur gætt hjá starfsmönnum stofnunarinnar í þeim efnum. En slíkt tómlæti gæti orðið til þess, að mikið og einstætt tækifæri til áhrifa starfsfólks á rekstur opinberrar stofnunar, yrði dauður bókstafur. Þess er hinsvegar að vænta að nú, þegar

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.