Símablaðið - 01.01.1958, Blaðsíða 13
SÍMABLAÐIÐ
7
að vinna að þvi að íá þessum úrskurði
breytt, og ef það fengist ekki, að láta þá
dómstólana skera úr um þetta mál, þar sem
við töldum að umsögn póst- og símamála-
stjórnarinnar væri afar villandi og fengi
ekki staðizt. Framkvæmdastjórnin fól þvi
lögfræðingi félagsins, dr. Gunnlaugi Þórðar-
syni, að taka málið upp að nýju. Hann
skrifaði síðan fjármálaráðuneytinu bréf, þar
sem hann gagnrýnir mjög umsögn póst- og
símamálastjórnarinnar og fer fram á að
ráðuneytið endurskoði afsöðu sína tii þessa
máls. Ef það sjái sér hinsvegar ekki fært
að gera það, þá sé hann tilneyddur fyrir
hönd félagsins að fá dómsúrskurð í málinu.
Þessi viðbrögð félagsins urðu til þess, að
ráðuneytið fól póst- og símamálastjórninni
að safna skýrslum um allt starfsfólk pósts
og síma á I. fl. B-stöðvum og póstafgreiðsl-
um landsins, og ef þessi skýrslusöfnun upp-
lýsti það, að þetta umrædda fólk hafi sitt
aðalstarf hjá pósti og síma, beri að skoða
það sem opinbera starfsmenn, með þeim
réttindum, sem því fylgir. Var stjórn F.I.S.
falið að fylgjast með þessu máli.
Framkvæmdastjórnin er ekki í neinum
vafa um, að þessi skýrslusöfnun mun leiða
í ljós, að allt þetta umrædda fólk mun verða
úrskurðað undir lögin um réttindi og skyld-
ur opinberra starfsmanna, og þá mun stjórn
félagsiins bjóða því að gerast fullgildir fé-
lagar í F.I.S., með þeim réttindum er því
fylgir.
Stjórnin hefur hugsað sér að skrifa öllu
þessu fólki og útskýra fyrir því þau rétt-
indi, sem það öðlast við þetta breytta við-
horf. Póst- og símamálastjórnin hefur þegar
sent út til allra síma- og póststöðva í land-
inu eyðublöð, sem viðkomandi fólk er beðið
um að útfylla og senda sem fyrst til baka.
Stjórn F.l.S. vill því hvetja allt það fólk,
sem hér á hlut að máli, til að endursenda
þessi upplýsingaeyðublöð sem allra fyrst,
til þess að hægt verði að ganga endan-
lega frá þessu máli.
Jón Kárason.
♦
Símastjórastaðan á
Seyðisfirði.
hefir verið veitt Emil Jónassyni varðstj. frá
1. marz 1958. En þá fór Þorsteinn Gíslason
frá starfi, eftir langa þjónustu, sem í hví-
vetna var til mikillar fyrirmyndar.
Emil Jónasson er fæddur 17. maí 1898, son-
ur Jónasar Eiríkssonar fyrverandi skóla-
stjóra á Eiðum og konu hans.
Hann hóf símritaranám við stöðina á
Seyðisfirði 15. okt. 1923 og var skipaður
simritari þar 1. mai 1924. Árið 1932 var hann
skipaður varðstjóri við ritsímastöðina á
Seyðisfirði og hefur gengt því starfi síðan.
Emil hefur jafnan verið áhugasamur um
mál F.I.S. og tekið á ýmsan hátt þátt í því.
Verið umboðsmaður þess á Seyðisfirði og
átti sæti á landsfundum.
Símablaðið óskar Emil allra heilla I hinu
nýja starfi hans.
Um simstjórastöðuna á Seyðisfirði sóttu:
Emil Jónasson.
Jens Pálsson símast. á Reyðarf.
Baldur Böðvarsson símaritari Sf.
Snorri Lárusson fulltrúi í Rvík.
ni •
„Ég er ekki neinn lukkunnar panfíll, eins
og þú heldur frarn," sagði hann við kunn-
ingja sinn. „Ef ég hitti laglegan kvenmann,
þá er annaðhvort hún gift — eða ég.‘