Símablaðið - 01.01.1958, Blaðsíða 24
1»
SIMABLAÐIÐ
stéttarinnar út í frá. T. d. hefði blaðið fyrir
stuttu síðan heitið 1500 kr. verðlaunum fyrir
beztu grein um stéttarmál, en engin grein
hefði blaðinu borizt. Þó væri það vitað, að
margir ritfærir menn og konur, skáld og
hagyrðingar væru meðal símamanna.
Fundurinn taldi nauðsynlegt að hinar
ýmsu deildir sæju blaðinu að staðaldri fyrir
efni um starfsemi og áhuga mál þeirra.
Þriðjudaginn 1. apríl var síðari hluti að-
alfundarins haldinn.
Lýst var þar kosningum í Félagsráð og
aðrar trúnaðarstöður (sjá hér að framan).
Samþykktar voru tillögur'um félagsgj.öldin
og skiptingu tekna félagsins. Ennfremur var
samþykkt svohljóðandi tillaga, sem lögð var
fram á fyrri hluta aðalfundar:
,,Fundurinn telur það brýna nauðsyn
að félagsmenn eigi meiri kost á að ná tali
af formanni utan vinnutíma hans, og beinir
þeirri áskorun til símastjórnarinnar, að hún
leysi formann félagsins frá störfum einn
dag í viku, til að sinna félagsmálum og
veita félagsmönnum viðtal.
Felur fundurinn væntanlegu Félagsráði að
vinna að þessu máli.“
Upplýstu flutningsmenn, að í Danmörku
væri það svo, að formaður póst- og síma-
mannasambandsins væri algerlega leystur
frá starfi með fullum launum. —
Þá voru kosnir tveir endurskoðendur, þeir
Gunnar Böðvarsson og Snorri Lárusson.
Loks voru kosnir 11 fulltrúar á þing
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.
Kosningu hlutu:
Andrés G. Þormar .... með 46 atkv.
Jón Kárason .......... — 44 —
Agnar Stefánsson .... — 36 —
Aðalsteinn Norberg .. — 30 —
Hörður Bjarnason ... — 28 —
Jón Tómasson........ — 26 —
Lára Jónsdóttir ...... — 25 —
Karl Vilhjálmsson ... — 24 —
Sæmundur Símonarson — 24 —
Hafsteinn Þorsteinsson — 23 —
Inga Jóhannesdóttir .. — 23 —
Til vara (fyrstu þrír fulltr.):
Sigurður Árnason 22 atkv.
Vilborg Björnsdóttir 21 atkv.
Ingólfur Einarsson 20 atkv.
Fundarstjóri var Jón Tómasson.
55 mættu á fundinum.
♦
Oft hefur verið vakið máls á því við rit-
stjóra Símablaðsins, að æskilegt væri, að
í því birtust leiðbeiningar og fræðsla um
félagið, skipulag þess, lög, reglur, starfs-
greinar og annað það, sem hverjum félags-
manni er skylt og nauðsynlegt að vita.
Þá berast stjórn félagsins stöðugt fyrir-
spurnir um ýms ákvæði laganna um rétt-
indi og skyldur opinberra starfsmanna, og
reglugerðar um orlof, — eftirlaunaréttindi
í lífeyrissjóði o. m. fl. Mun í þessum þætti
verða framvegis reynt að birta stuttorðar
upplýsingar og leiðbeiningar um þetta efni,
— og svör við fyrirspurnum, sem þættin-
um kunna að berast.
TJm lífeyrissjóð.
Skylt er öllum starfsmönnum að greiða
iðgjald i lifeyrissjóð,
1. „sem laun taka eftir hinum aimennu
launalögum",
2. „sem taka laun úr ríkissjóði, og ráðnir
eru til ekki skemmri tima en eins árs,
eða með þrigggja mánaða uppsagnar-
fresti. Enda sé starf þeirra í þjónuseu
ríkisins, aðalstarf þeirra.“
Sjóðfélagi hlýtur eftirlaunarétt þegar hann
er 65 ára, — eða æviár hans og starfstími
eru samanlagt 95 ár.
Starfsmaður, sem heldur áfram starfi eft-
ir að hafa náð eftirlaunaréttindum, eyKur
eftirlaunarétt sinn um 2% við hvert ár, —
allt upp í 75%. Á sama hátt hækka eftir-
launaréttindi maka um 1%.