Símablaðið - 01.01.1958, Blaðsíða 20
14
SÍMABLAÐIÐ
fyrir félagsmenn svo og aðrar
staðfestar reglugerðir um starfs- og
launakjör.
Hann er því ekki eingöngu þýðingar-
mikill fyrir simamannastéttina, heldur
einnig samtök allra opinberra starfs-
manna.
Þetta umrædda mál og niðurstöður
dómstólanna hafa í för með sér greiðsl-
ur til starfsmanna Loranstöðvarinnar
sem nema munu um tvö liundruð þús-
und krónum.
Þar sem svo mikið bar á milli, er ekki
liægt að áfellast shnamálastjórnina fyr-
ir það, að láta skera úr réttmæti kröf-
unnar. En væntanlega verður ráðning
starfsmanna framvegis gerð með hlið-
sj ón af dómi þessum og þeirri dýrmætu
reynsulu, sem þessi langi málarekstur
hefur veitt.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson, sem um
mörg ár hefur verið lögfræðilegur ráðu-
nautur F.I.S., sótti málið fyrir undir-
rétti, en Benedikt Sigurjónsson hrl. fyr-
ir Hæstarétti.
I tilefni af þeim merka viðburði, sem
að framan greinir, vill stjórn F.l.S. nota
tækifærið og þakka lögfræðingi félags-
ins dr. Gunnlaugi Þórðarsyni, fyrir hans
ágætu störf i þágu þess.
Hann er fyrsti lögfræðingur félags-
ins, og vonandi fær félagið að njótá
starfskrafta lians sem lengst. Þó þetta
sé eina málið, sem dómstólarnir liafa
úrskurðað, þá hefur dr. Gunnlaugi tek-
izt að leysa mörg önnur mál fyrir fé-
lagið án þess að til málareksturs hafi
komið. Stjórn félagsins liefur oft leit-
að til hans og liefur liann ætíð verið
boðinn og búinn að gefa henni góð ráð.
Þá vill stjórnin ennfremur þakka
hrlm. Benedikt Sigurjónssyni fyrir lians
þátt í þessu máli, en liann flutti það
fyrir Hæstarétti.
♦
Frá féiagsdeildinni í Vík í Mýrdal.
A aðalfundi deildar F.I.S. í Vík, sem
haldinn var þann 9. þ. m., var samþykkt
svohljóðandi tillaga:
„Fundur haldinn i deild F.I.S. í Vík
9. marz 1958, lýsir þakklæti sínu við
F.l.S. fyrir þann stóra þátt, sem félagið
á í þeim sigri, sem timaverðir hafa unn-
ið i máli því, sem þeir hafa átt í við
Landssíma íslands, út af vangreiddum
launum frá fyrstu árunum, sem Lands-
síminn sá um rekstúr Lóranstöðvarinn-
ar. Sérstaklega skulu þeim vottaðar
þakkir, fyrrverandi formanni F.I.S.,
Andrési G. Þormar, og núverandi for-
manni, Jóni Kárasyni.“
Óskaði fundurinn eftir, að þessi á-
lyktun vrði birt i Símablaðinu.
Með félagskveðju.
Ari Þorgilsson,
iormaður.
♦
STAKAN.
Stakan hefir lífsins Ijóð
löngum gefið dalsins barni,
leilcur stef í léttum óð,
Ijúflingsvefur hugans arni.
♦
„Auðsjáanlega er maðurinn mjög skyn-
samur og heíur skarpa athyglisgáfu."
„Af hverju heldur þú það?“
„Mr. Brown er ókvæntur."
i ......: ® :.id