Símablaðið - 01.05.1962, Qupperneq 7
2. tbl. 1962
XLVII. árg.
£ítnabta$tö
^atfhnincfAréttu? opinberra
JtartfdinanHa
viðurkenndur með lögum
Gunnar Thoroddsen
fjármálaráðherra fylgir
frumvarpinu úr hlaði
í Efrideild.
Sá sögulegi atburður gerð-
ist í efri deild Alþingis 11.
apríl sl. að ríkisstjórnin lagði
fram frumvarp til laga um
kjarasamninga opinberra
starfsmanna og hafði fjár-
málaráðherra framsögu í
málinu daginn eftir.
Frumvarpið sigldi hrað-
byri gegnum þingið og var
afgreitt sem lög frá Alþingi
17. apríl, enda var um það
samkomulag milli ríkis-
stjórnarinnar og stjórnar
B.S.R.B
Lög þessi eru árangur af
langri baráttu opinberra
starfmanna fyrir jafnrétti á
við aðrar launastéttir, og
fyrir því að numin verði úr
gildi verkfallslögin frá 1915.
Að vísu eru þau lög enn í
gildi að nafninu til.
Á flestum, ef ekki öllum
þingum B.S R.B. hafa verið
gerðar kröfur í þessa átt og
fylgt eftir við þing og ríkis-
stjórnir.
Á þessu tímabili hafa setið
að völdum ríkisstjórnir allra
þeirra stjórnmálaflokka, sem
skipt hafa máli í ísl. stjórn-
málalífi og óteljandi sam-
steypustjórnir. En kröfur
Bandalagsþinganna hafa
jafnan lent í pappírskörfunni
hjá þeim.
Segir það sína sögu um
það rótgróna viðhorf til op-
inberra starfsmanna, sem
ríkt hefur hér á landi um
langan aldur. Bitlingalýður
hefur lengi klingt í eyrum
þeirra, utan og innan sala
Alþingi, þó þar hafi orðið
mikil breyting á síðustu ára-
tugina, einkum hinn síðasta.
Breyting, sem sýndi vaxandi
skilning hins opinbera á rétti
ríkisstarfsmanna og birtist í
setningu laga, reglugerða og
ákvæðum um samvinnu þess-
ara tveggja aðila í ýmsum
kjaramálum.
Hin nýju lög um kjara-
samninga eru þar þó mesti
og merkasti viðburðurinn, og
er hann það ekki sízt fyrir
þann vilja til samkomulags
er ríkisstjórnin sýndi, og þá
einkum fjármálaráðherrann,
Gunnar Thoroddsen. Er þess
því að vænta, að þær vonir
sem opinberir starfsmenn
binda við þessi lög, bregðist
ekki.
Samningsréttarlögin hafa
þegar verið ítarlega skýrð í
SIMABLAÐID