Símablaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 27
Frá bæjarsíflianum í Reykjavík og Hafnarfirði
Nýju símanúmerin í Hafnarfirði, nr. 51000 til 51499, voru tekin í notkun
1. apríl s.l.. Athygli símnotenda skal vakin á eftirfarandi:
1. Þegar símanotandi ætlar að hringja í eitt af nýju númerunum, velur
hann númerið á venjulegan hátt og þá svarar símastúlka, sem gefur sam-
band við símanúmerið.
2. Þegar hringt er frá þessum númerum er afgreiðslan hinsvegar alveg
sjálfvirk. Um næstkomandi áramót verður símaafgreiðslan alveg sjálf-
virk við öll símanúmer í Hafnarfirði.
Frá Póst- og símamálastjóminni
Póst- og símamálastjórnm hefur ákveðið að gefa út tvö frímerki,
annað til þess að minna á skátahreyfinguna og hitt til þess að minna
á íþróttahreyfinguna á fslandi.
Er því hér með auglýst eftir tillögum að slíkum merkjum og
þurfa tillögurnar að berast póst- og símamálastjórninm fyrir 15.
ágúst 1962. Tillögurnar merkist dulnefni, en nafn höfundar fylgi
með í lokuðu umslagi.
Veitt verða verðlaun, kr. 4,000,00 fyrir þá tillögu að hvoru
merki um sig, sem dómnefnd telur bezta og eru þau jafníramt
greiðsla fyrir notkunarréttinn.
Engin sérstök skilyrði eru sett um gerð merkjanna utan það, að
þau þurfa að vera táknræn fyrir skáta- og íþróttahreyfinguna á
Islandi.
Reykjavík, 18. apríl 1962.
SIMABLAÐIÐ