Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 15

Símablaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 15
Framhald af bls. 32. stofnuninni, starfsmannaráð, en það er eingöngu ráðgef- andi, og hefur ekkert fram- kvæmdavald. Hugmyndin um starfsmannaráð er stór- merk, en það er ekki nóg að hafa ráðgefandi ráð, ef fram- kvæmdavaldið tekur lítið sem ekkert tillit til þess. Þetta, sem ég hef nú sagt eru aðeins hugleiðingar mínar. En öllu gamni fylgir einhver alvara. Eins og okkur flest- um er kunnugt verður F.Í.S. í langflestum ef ekki öllum málum, að fara bónarveg til framkvæmdavaldsins. Þess vegna hlýtur það að vera torsótt leið fyrir félagið, að fá sínum málum framgengt hvort sem þau eru rétt eða röng, ef framkvæmdavaldið er á móti þeim, þar sem það getur sagt já eða nei eftir eigin geðþótta. Þetta held ég að þeir starfsmenn sím- ans, sem mest hafa gagn- rýnt F.Í.S., séu farnir að skilja, að minnsta kosti finnst mér hafa lækkað í þeim rostinn í gagnrýni á gerðir og getu félags síns. í einu máli, sérstaklega, hefur stjórn L.í. gert sig seka um innrás í atvinnulandhelgi íslenzkra símvirkja, en þar á ég við, að hleypa ónauð- synlegu erlendu vinnuafli í störf símvirkja, og greiða fyrir það offjár. Ég ætla ekki nú að ræða gang svía- málsins en það mál sýnir ekki hvað sízt, hvað lítið tillit er tekið til mótmæla frá samtökum fólksins. Þessu hefur hvað eftir annað verið mótmælt á deildar- fundum, af deildarstjórn, á aðalfundum, af félagsráði og framkvæmdastjórn, skrif- að um það mótmælagreinar í Símablaðið, og bent á leiðir til úrlausnar sem eru mörgum sinnum hagkvæm- ari, bæði fyrir stofnunina og starfsfólkið og þar af leiðandi þjóðarbúið í heild. Dagar embættismannavalds- ins eiga að vera liðnir undir lok á íslandi. Það er útilok- að fyrir opinbert fyrirtæki að ala upp starfsgóða og áhugasama starfsmenn ef þeir finna það, að þeir eru ekki annað en örlítið tann- hjól í stórri vél, sem er kæruleysislega smurð. En þessi vél er lifandi, og sú smurning, sem hún þarfnast er skilningur á sjálfsvirð- ingu og metnaði lifandi manna. Af þeim sökum er það þjóðhagslegt spursmál að yfirstjórn stofnana verði ekki rykfallin, né ofmetnist af lagalegu valdi sínu. X Endurskoðun á Póst- og símalögum aðkallandi Um áramótin 60’ og 61’ er ákveðið var að sameina að fullu yfirstjórn pósts og síma, snerust félög póstmanna og síma- manna gegn því. Áður hafði Félag forstj. pósts og síma gert ályktun, sem benti á, að það félag teldi nauðsynlegt að þetta mál yrði vel athugað áður en slíktyrði gert. Virðist sú skoðun undantekningarlítið vera ríkjandi meðal starfsmanna pósts og síma, að frekar hefði átt að skilja yfir- stjórn stofnananna að, en að grauta þeim saman undir eina yfirstjórn. Hefur það mál verið rökstutt hér í blaðinu. Þó að sam- einingin hafi farið fram, hefur sú afstaða félaganna ekki breyzt. Þess ber því að vænta að póst- og síma- málaráðherra taki fundarályktun félags '.V.V.V. F.F.P.S. til greina og skipi nefnd til þess- arar endurskoðunar sem fyrst. Það þykir þó rétt, að þessi afstaða stétt- arfélaganna sé lýðum ljós. En fyrst sameiningin á annað borð hefur farið fram, telja félögin nauðsyn til bera, að taka til athugunar og endurskoðunar lög og reglugergir um stjórn og skipulag stofn- unarinnar, og hefur um það sjónarmið ver- ið ýtarlega rætt hér í blaðinu, og mun verða gert. Ný samþykkt aðalfundar Félags for- stjóra pósts og síma ber með sér, að það félag telur nauðsyn þar á. Lögin um sameiningu pósts og síma frá 1935 stangast áberandi á við staðreyndir í dag, og nýjasta reglugerðin um stjórn pósts og síma stangast tvímælalaust á við lögin í meginatriðum, sem félögin telja höfuð nauðsyn að leiðrétta. SIMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.