Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 8

Símablaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 8
blöðum, svo ekki skal farið langt út í það. Opinberir starfsmenn setj- ast nú við samningsborðið sem jafnréttháir aðilar og vinnuveitandinn. Að vísu hafa þeir í þau tvö skipti, sem launalögin hafa verið endurskoðuð, átt fulltrúa við þá endurskoðun, sem nokkur áhrif hafa getað haft á það starf. En lokaafgreiðsla hef- ur verið í höndum Alþingis. Nú er sú mikla breyting á orðin að launalög eru úr sög- unni, þröskuldurinn, sem ekki hefur fengizt tjaslað upp á nema tvisvar sinnum á rúmum 40 árum. Hér eftir er það tryggt, að laun verða aldrei bundin til lengri tíma en 2 ára. Fram- vegis fjallar Alþingi ekki um launamálin. Nú verður um það aðeins átt við ríkis- stjórnina hverju sinni, eftir samningsleiðum. En þar með hefur skapazt það viðhorf, sem okkur opinberum starfs- mönnum er bezt að horfast strax í augu við. Það kunna að vera ljón á veginum fram- undan. Að þessum málum verður nú í fyrstu lotu unnið á þann hátt af hálfu opinberra starfsmanna, að hin ýmsu félög gera tillögur um launa- flokkunina frá sínum bæjar- dyrum séð. Síðan tekur kjararáð við þeim til sam- ræmingar og samninga við fulltrúa ríkisstjórnarinnar. í félagi okkar, sem sam- anstendur af mörgum deild- um og mörgum óskyldum starfshópum, verður unnið að undirbúningi samninga þannig, að félagsdeildirnar gera tillögur hver fyrir sig 26 SÍMABLAÐIÐ Lög uni kjarasamninga opinberra starfsmanna samþykkt á Álþingi 17. apríl 1962 1. KAFLI 1. gr. Lög þessi taka til starfsmanna, sem skipaðir eru, sett- ir eru eða ráðnir í þjónustu ríkisins, ríkisstofnana eða atvinnufyrirtækja ríkisins með föstum launum og minnst þriggja mánaða uppsagnarfresti, enda verði starf þeirra talið aðalstarf. Ákvæði laganna taka ekki til: 1. Ráðherra né hæstaréttardómara, sbr. þó 2. málsgr. 4. gr. 2. Iðnaðarmanna, sjómanna, verkafólks né starfsfólks í iðjuverum, er um kaup þeirra og kjör fer eftir kjara- samningum stéttarfélaga þeirra og vinnuveitenda, sbr. lög nr. 80/1938. Ráðherra getur með reglugerð sett nán- ari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis. 3. Bankastarfsmanna. 4. starfsmanna Alþingis. 2. gr. Fjármálaráðherra fer með fyrirsvar ríkissjóðs, að því er varðar kjarasamninga og aðrar ákvarðanir af hendi ríkisvalds samkvæmt lögum þessum. Hann getur skipað nefnd þriggja til fimm manna til að annast samninga af sinni hendi. 3. gr. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja fer með fyrirsvar ríkisstarfsmanna um kjarasamninga og aðrar ákvarðanir af hendi starfsmanna samkvæmt lögum þessum. Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja velur fimm ríkisstarfsmenn í Kjararáð, sem fer með umboð bandalagsins til samningagerðar. Þegar bandalagsstjórn velur menn í Kjararáð skulu bæjarstarfsmenn víkja sæti, en varamenn úr hópi ríkisstarfsmanna koma í þeirra stað. Ríkisstarfsmaður, er lög þessi taka til, sbr. 1. gr., á rétt til að vera félagsmaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja eða félags innan vébanda þess eftir nánari reglum í samþykktum bandalagsins.

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.