Símablaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 18
^JJelgX ^JJaí
láóon
práMauót
óer um
fjáttinn
Fyrir stuttu gaf að líta í
einu dagblaði höfuðstaðar-
ins hugleiðingar um tækni-
vísindin á komandi árum.
Þar kenndi margra grasa,
eins og jafnan þegar menn
láta gamminn geysa fram í
það ókomna. Blað þetta
spáði því, að þeir tímar
myndu koma, að þeir sem
hygðu á ferðalög, þyrftu að-
eins að ganga inn á næstu
símastöð, þaðan gætu þeir
fengið sig flutta; á öldum
ljósvakans, hvert sem þeir
óskuðu.
Ekki skal gert lítið úr þess-
um spádómi og það sér í
lagi, þegar haft er í huga,
hve tiltölulega stutt er síð-
an tækninýjungar, hver ann-
ari mikilvægari, hafa komið
fram á sjónarsviðið, nýjung-
ar, sem við teljum í dag
harla hversdagslegar.
Talsíminn þótti t. d. mikið
undratæki á sínum tíma, í
dag lítum við á hann sem
frekar hversdagslegan, en
mjög nauðsynlegan hlut.
Sjálfvirkt símakerfi spanar
sig senn um landið allt, við
getum talað truflanalaust
við aðrar heimsálfur, á
hvaða tíma sólarhringsins
sem er og þessa dagana er
verið að auglýsa telex-þjón-
ustu við útlönd. Allt þetta
mun í framtíðinni falla í
skugga af nýjum tæknileg-
um afrekum, þá mun ef til
vill sjónsíminn koma til sög-
unnar og gefst þá íslenzkum
húsmæðrum kostur á að sjá
hvað fisksalinn hefur á boð-
stólum, áður en hún fær sent
heim í matinn. Símakerfin
verða fullkomnari með
hverju árinu sem líður, að
því er unnið á stórum rann-
sóknarstofum víða um heim.
í Morris lllionis í Banda-
ríkjunum, sem er 8000
manna bær, hafa Bell rann-
sóknarstofurnar t. d. sett
upp til prufu, nýtt sjálfvirkt
símakerfi. Það er gert ráð
fyrir að kerfi þetta, sem á
eftir að valda byltingu
í amerískum símamálum,
verði almennt tekið í notk-
un í Bandaríkjunum árið
1965. Kerfi þetta vinnur
1000 sinnum hraðar, en nú-
verandi kerfi. Það saman-
stendur af 12000 transsitor-
um, sem magna straumpuls-
ana í gegn um fjölda „Minia-
ture“ tækja, er innihalda
105000 dióður og 23000 neon-
lampa sem sýna gulleitt ljós,
þegar þeir gefa símasam-
band, sem tekur aðeins
nokkra milljónustu hluta úr
sekúndu. Kerfi þetta getur
sjálft prófað allar rásir sín-
ar og jafnframt gert við
margar bilanir, sem á því
verða. Ef bilun er það mikil,
að kerfið getur ekki gert við
hana sjálft, þá fjarritar það
á hjálp og gefur til kynna
hvar bilunin sé og gefur
jafnframt upp dagsetningu
og tíma, þegar bilunin átti
sér stað.
Þá eru og miklar framfar-
ir á sviði útvarpstækninnar.
Smíðað hefur verið útvarps-
tæki, sem mun í framtíð-
inni vera hægt að bera í
eyranu. Tæki þetta, sem
Westinghouse Electric Corp.,
hefur látið smíða, saman-
stendur af 6 litlum silicone-
þynnum, hver þynna er að
flatarmáli á stærð við 25 eyr-
ing, þó aðeins 14 hans að
þykkt.
í þessu tæki eru engir
lampar, transsitorar, né aðr-
ir hlutir, sem eru í öllum
venjulegum tækjum, þó er
hægt að stilla tæki þetta
inn á hverja þá útvarpsstöð
sem er á bylgjulengd þess.
Tæki þetta mun án efa verða
kærkomið öllum þeim fjölda
manna, sem við sjáum dag-
lega, á hinum ótrúlegustu
stöðum, með glamrandi
ferðatæki sér við hlið, eða
jafnvel í vasanum. Hefur
sala á litlum ferðatækjum
aukist mjög hin síðari ár.
Sálfræðingar hafa ekki verið
lengi að koma með skýringu
á þessu fyrirbæri. Þeir segja
að þörfin fyrir dillandi
hljómtaktinn eigi sér djúp-
ar rætur hjá okkur mönn-
unum, eða allt frá því er
við vorum í móðurkviði og
heyrðum sííellt harmónisk-
an samhljóm, sem myndaðist
af hjartslætti móðurinnar,
SÍMAB LAÐIÐ