Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1964, Page 3

Símablaðið - 01.01.1964, Page 3
‘TOccrsi ^waklaðii 1. tbl. 1964 XLI\. árg. Ritstjóri: A. G. Þormar - Medritstjóri: Ingólfur Einarsson - Auglýsingastjóri: Júlíus Pálsson - Félagsprentsmidjan. Vankantar á kjarasamningum Nú er bráðum ár liðið síðan kjarasamn- ingar starfsmanna ríkisins tóku gildi, með úrskurði Gerðardóms. Síðan hefur samstarfsnefnd unnið að nánari flokkun einstaklinga og að því að reyna að lagfæra hina miklu vankanta og það misræmi í mörgum tilfellum, sem kjaradómur skapaði. Að þessu hefur starf- að fjöldi fólks, og mikil skriffinnska átt sér stað. Eftir um það bil eitt ár, hafa aðeins örfá ágreiningsmál símastarfsfólks verið afgreidd, og er það ef til vill eðlilegt, þar sem að þessum málum vinnur fólk, sem hlaðið er öðrum störfum og hefur ekki að- stöðu eða þekkingu til að meta hin fjöl- þættu störf, sem um þarf að ræða. Árangurinn af þessu er sá, að fjöldi manna og starfshópa er sáróánægður, því ósamræmið er mjög áberandi, jafnvel inn- an lítilla starfshópa, og þrátt fyrir greini- lega starfslýsingu. Margir hafa því misst trúna á þá meðferð sem lögin ráðgera, og tekið málin í sínar eigin hendur, og er það mjög áberandi, hvað einstaka fram- hleypnir menn hafa getað bolað sér þann- ig áfram. Eitt áberandi dæmi um ósamræmi í launaflokkun eru starfshópar eins og sím- virkjar og símritarar, þeir eru flokkaðir með réttindalausum kennurum, og varð- stjórar símritara í Reykjavík eru flokkaðir þannig, að þeir hafa minni laun en undir- menn þeirra, og svona mætti lengi telja. Allt þetta hefur skapað leiðinlegt and- rúmsloft og raskar oft hefðbundnum hlut- föllum. Hér verður að gera breytingar á, til þess að skapa tiltrú manna. Sennilega eru þeir alltof margir, sem að þessum málum vinna, og væri vænlegra til árangurs að fækka þeim. Einnig er nauðsynlegt að útiloka alla hlutdrægni og koma í veg fyrir að einstakir menn geti haft áhrif á störf þeirra, sem að þessum málum vinna. Á þetta hefur áður verið bent hér i blaðinu, og þá drepið á aðra skipan. Hefur hið geysilega starf, sem lagt hefur verið í kjarasamningana, og það misrétti og mis- tök sem í þeim felast, styrkt þessa skoðun. Hvort sem ákvæðum laganna yrði breytt um kjararáð, kjaradóm og kjaranefnd, — er óhjákvæmilegt að gera undirbúninginn traustari, og byggðan á meiri reynslu og þekkingu. Verði haldið svo áfram sem nú horfir, má gera ráð fyrir að stór félög, skipuð fjölþættum staríshópum, kæri sig ekki um, til lengdar, að kjör umbjóðenda þeirra verði ákveðin og að þeim málum unnið á þann hátt, sem lög nú gera ráð fyrir. Einnig hefur verið á það bent hér í blaðinu, að nauðsynlegt væri að stofna sérstakt embætti hjá símanum, sem með þessi mál hefði að gera, ásamt starfsmanna- ráði, og styður hin dæmalausa afstaða S ÍM AB LAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.