Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 4

Símablaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 4
yfirstjórnar símans við meðferð launa- málsins þá kröfu. í þessum efnum væri hægt að læra mik- ið af Norðmönnum. Hjá norska símanum hefur starfsmannadeild verið starfandi s.l. 45—50 ár, og' hefur yfirmaður þeirrar deildar haft úrslitavald í öllum personal- málum og verið ábyrgur aðili við samn- inga um launakjör starfsmanna gagnvart símafélögunum, og hefur þessi skipan reynst mjög vel fyrir alla aðila. Nú þegar sú skipan er hér á komin, að gera verður heildarsamninga við alla rík- isstarfsmenn, væri ekki úr vegi að breyta til þannig, að samningar gætu gengið greið- lega og ekki tæki mörg ár að skera úr um vafaatriði einstaklinga. Hér á eftir eru bornar fram tillögur sem miða í þá átt, að allir samningar og álits- gerðir liggi ljóst fyrir þegar í upphafi umræðna. Það sýndi sig nefnilega við fyrstu samningsgerðina, að gagntilboð rík- isstjórnarinnar var unnið af mönnum sem litla þekkingu höfðu á þessum málum, enda hlaðnir störfum. Það er ekki nóg að skrifa einhverjar tölur aftan við launa- flokkana, og láta það gilda yfir allan hóp- inn, svo einfalt er málið ekki. Það verður að kynna sér allar aðstæður hjá hinum ýmsu starfshópum innan ríkisstofnanapna, svo réttilega sé hægt að meta hin marg- víslegu störf. Hér koma svo tillögurnar, sem byggðar eru á fyrri skrifum hér í blaðinu, eins og getið er hér að framan: 1. Stofnuð verði 2—4 embætti skipuð sérfróðum og menntuðum mönnum í starfshagræðingu. Skulu þeir vera opin- berir embættismenn, skipaðir af forseta íslands og launaðir af ríkissjóði. 2. Þeir skulu vera nákunnugir meðferð þessara mála í öðrum löndum og fá að- stöðu til að fylgjast með og kynnast öllum störfum og starfsgreinum hjá því opinbera. 3. Stöðurnar séu auglýstar til umsóknar, og um það leitað álits fjármálaráðherra og stjórnar B.S.R.B. 4. Þessir menn skulu gera allt undirbún- ingsstarfið og vera reiðubúnir að rök- styðja það. Þeirra verk er að gera flokk- un og síðar nauðsynlegar breytingar á henni vegna starfsbreytinga og þróunar, og vera stofnunum og ríkisstjórn ráð- gefandi. 5. Álit þeirra og tillögur skulu jafnan liggja fyrir, þegar samningum er sagt UPP> og þegar þeir hefjast á ný. Einsog getið er um í 1.—2. tbl. 1963, hefur aldrei, við samningu launalaga, skapast önnur eins óánægja og við samn- inga þessara seinustu launaákvæða. Væri farið eftir þeim tillögum, sem hér að framan greinir, myndu vankantar þeir, sem komið hafa fram við kjarasamning- ana útilokaðir, og betra andrúmsloft skap- ast í viðræðum, þegar nýir samningar verða gerðir. Launþegar myndu treysta betur þessum vinnubrögðum; og mest hinnar dæmalausu skriffinnsku og hvimleiðu einstaklings viðtala við samningsaðila hverfa. Þessir samningar, vinnubrögð og niður- stöður, hafa skapað samtökum okkar síma- manna ný umhugsunarefni og mörg við- fangsefni. Ekki mun t. d. við það unað, að þessir samningar verði öðru sinni undirbúnir af stofnunarinnar hálfu, eins og um væri að ræða persónuleg feimnismál forstjórans. Það má ekki endurtakast að samvinna um svo þýðingarmikið og viðkvæmt mál, milli félagsins og póst- og símamálastjórnarinn- ar verði útilokuð. Samkvæmt starfsmannareglum er skylt að ræða kjara- og launamál í starfsmannaráði, og ekkert er sjálfsagðara en undirbúningur þeirra mála, þegar um heildarsamninga er að ræða, sé gerður af sameiginlegri launa- nefnd félagsins og stofnunarinnar. Endurskoðun á starfsmannareglum landssímans stendur nú yfir, og fyrir dyr- um mun vera ítarleg endurskoðun á ýms- um öðrum höfuðreglum og lögum er stofn- unina varða. Upp úr þeim endurskoðunum skapast vonandi sú festa í byggingu stofnunarinn- ar, að aldrei komi framar til neins hrá- skinnaleiks í þessum málum. — I. E. SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.