Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 8

Símablaðið - 01.01.1964, Blaðsíða 8
að 75. Þeir, sem metnir eru 75% öryrkjar eða meira, fá því fullan ör- orkulífeyri, en örorkulífeyrir almanna- trygginganna kemur þó> til frádráttar hjá þeim- Sem dæmi skulum við hugsa okkur mann, sem hefur 11.440 kr. laun á mán- uði og verður 65% öryrki eftir 22 ára starf. Áunninn ellilífeyrisréttur hans er 43.16% af launum. Örorkulífeyrispró- sentan verður 50 -)- 30 = 80%. Mánað- arlegur lífeyrir hans verður því 0.8x (0,4316x11440-)-1748)=5348.40 kr. Hafi hann börn á framfæri, fær hann auk þessa 80% af fullum barnalífeyri fyrir hvert þeirra. Meginbreytingar á reglunum um barnalífeyri eru tvær. Fyrir barn, sem á framfæranda á lífi var lífeyrir frá sjóðnum áður 125% af barnalífeyri al- mannatrygginganna. Nú er samanlagð- ur barnalífeyrir almannatrygginganna og sjóðsins 150% af barnalífeyri al- mannatrygginga. Hin meginbreytingin er sú, að barnalífeyrir greiðist nú til 18 ára aldurs í stað 16 ára áður. Kr. Guðm. Guðmundsson. Utdráttur úr skýrslu formanns F. I. S. á aðalfundi 1963. (Af mistökum kom þessi greinargerð ekki í 1.—2 tbl. 1963, eins og ætlunin var.) Það er óhætt að segja, að á síðast- liðnu ári, 1962, hafi gerzt sá atburður, er markar tímamót í kjarabaráttu ríkis- starfsmanna. Þar á ég við gildistöku laga um samningsrétt opinberra starfs- manna. Með samningsréttinum hefur náðst mikil réttarbót. Þó er það samt svo, að ekki höfum við sama rétt og aðrir þegnar þjóðfélagsins. Við höfum ekki verkfallsréttinn. Ef ekki næst sam- komulag við ríkisvaldið, verðum við að hlýta úrskurði gerðadóms. Margir líta svo á, að verkfallsréttur til handa opinberum starfsmönnum sé mjög ó- æskilegur, allt of mikið sé í húfi og þjóðfélaginu beinlínis hættulegt, ef slík- ur réttur yrði þeim veittur. En minna skal á það, að allir þegnar þjóðfélags- ins eiga að hafa sama rétt, og opinber- ir starfsmenn hafa bitra reynslu af því, að hafa ekki getað sótt sín kjaramál á sama vettvangi og aðrir. Þeir hafa ver- ið sniðgengnir og dregist aftur úr. En nú hefur rofað til, við höfum öðl- azt réttarbætur, við skulum vona að samningsrétturinn verði bæði okkur og þjóðfélaginu í heild til gagns og bless- unar. Með samningsréttinum sköpuðust ný viðfangsefni. Nú þurfti að byggja upp nýtt launakerfi, gömlu launalögin voru fyrir löngu orðin úrelt. Ljóst var að fjölga þurfti launaflokk- unum, nýjan launastiga þurfti að semja, og svo framvegis. Eins og þið vitið, er B.S.R.B. hinn lagalegi samningsaðili fyrir sambandsfélögin gagnvart ríkis- stjórninni. Bar því þegar að hefjast handa með undirbúning að samninga- gerð. Fyrsta skrefið var að kjósa kjara- ráð skipað fimm mönnum, en kjararáð skyldi vinna að skipan starfsfólks í launaflokka, og hafa á hendi allt undir- búningsstarf. Nokkur togstreita varð innan sambandsfélaganna um skipun manna í ráðið. Þess skal getið, að stjórn B.S.R.B. lét fara fram allumfangsmikla kjara- könnun, og sendi út eyðublöð í því skyni, sem félögin skyldu sjá um að dreifa út meðal félagsmanna til útfyll- ingar. Hugðist stjórn B.S.R.B. með könn- un þessari afla sér víðtækari upplýsinga Varðandi störf, launakjör og þjónustu- aldur hinna ýmsu starfsmanna. Eins og kunnugt er, voru lögin um SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.