Símablaðið - 01.01.1964, Side 17
Samuel Morse finnur upp
ritsímann 1832, Alexander
Grahm Bell gerir talsíma-
sendingu mögulega með upp-
íinningu sinni 1876. Gugliel-
mo Marconi færir okkur út-
varpið 1895 og árið 1901
brúar hann Atlantshafið
með fyrstu firðritsímamerkj-
unum og fyrsti ritsímasæ-
strengurinn er lagður yfir
Atlantshafið árið 1858. Árið
1927 var radíó-talsímaþjón-
ustan milli Ameríku og Ev-
rópu opnuð. Þó þetta radíó-
talsamband kæmi að miklu
gagni, þá hafði það sína ann-
marka, sem aðallega voru
vegna breytilegra hlustunar-
skilyrða. Sú skoðun varð
því ofan á, að sæsímastreng-
ir væru heppilegri lausn á
a’.þjóðatalsímaþjónustu. En
þar var sá hængur á, að áð-
ur en sú lausn á málunum
væri möguleg, varð að
að glíma við það tæknilega
vandamál, að útbúa sæsíma-
strengina með fjölmörgum
neðansjávarmögnurum, sem
yrðu að endast í um 20 ár
án nokkurrar umhirðu.
Þessu átaki var lyft og árið
1956 var sæsímastrengur
lagður milli Newfoundlands
og Skotlands.
Jafnvel þó enn fleiri sæ-
símastrengir hafi nú þegar
verið lagðir milli álfanna, þá
munu þeir ekki fullnægja
því aukna álagi, sem búist
er við næstu áratugina og
má í því sambandi geta þess,
að árið 1927 eru t. d. um
11.000 símtöl afgreidd milli
Ameríku og Evrópu, en árið
1961 voru þau yfir 4 milljón-
ir, sem þýðir um 20% aukn-
ing á ári.
Álagið mun vaxa jafnt og
þétt, ný ríki eru mynduð,
fólkinu fjölgar, verzlunar-
hömlur eru afnumdar og
milliríkjaverzlun vex í rík-
um mæli. Alls staðar blasir
við vaxandi þörf fyrir auk,-
in fjarskiptasambönd, og
tæknimenn láta því hendur
standa framm úr ermum, og
enn eru nýjar leiðir kannað-
ar með áður óþekktum tækj-
um.
10. júlí 1962 fór í fyrsta
skipti fram símtal með til-
stilli gervitungls. Gervítungl
þetta, sem var Bandarískt
og fékk nafnið Telestar, var
76.5 kg á þyngd og fór á
157.8 mínútum kringum jörð-
ina. Til að hlusta á merki
frá Telestar, hafði Telephone
Company í Bandaríkjunum
komið fyrir 380 tonna loft-
neti í New England og sams
konar loftnet var staðsett í
Frakklandi. Þá voru mót-
tökutæki staðsett í Goon-
hill Down í Cornwall í Eng-
landi, á sama stað og fyrsta
Marconi ritsímamerkið ,,S“
var móttekið frá Bandaríkj-
unum árið 1901. Bretar sjón-
vörpuðu síðan beint frá stöð-
inni Goonhilly Down og var
það í fyrsta skipti, sem sjón-
varpað hafði verið vestur yf-
ir hafið.
Tæknimenn þeir, sem unn-
ið höfðu að þessum tilraun-
ECHO.
um í meira en 5 ár, voru
mjög ánægðir með árangur-
inn, sem sýndi m. a. að
microbylgjur, (sem fara að-
eins beina línu, en fyigjh
ekki jarðkringlunni), var
hægt að nota fyrir langar
vegalengdir með hjálp tækja,
sem bókstaflega „héngu“ í
himingeymnum. En líklega
voru þeir hrifnastir yfir því
hve Telestar, sem var aðeins
88 cm í þvermál og saman-
stóð af 1500 hlútum, vann
snurðulaust.
Hugmyndin um notkun
gervitungla til fjarskipta er
ekki ný af nálinni eða álíka
gömul þeirri hugmynd
tæknimanna að koma gervi-
tungli á loft. En tæknimenn
segja, að til að koma báðum
þessum hugmyndum í fram-
kvæmd í einu, hafi verið
svipað og að krefjast þess,
af þeim, sem fann upp hjól-
ið, að hann kæmi jafnframt
með fullgerða bifreið fram
á sjónarsviðið. Þeir segja
ennfremur, að það sé álíka
að byggja fjarskiptagervi-
tungl og að byggja nýja flug-
vélategund, það taki 5—8
ár frá því teikningar séu
gerðar, þar til verkinu er
lokið.
Eins og er, er aðallega tal-
SÍMABLAÐIÐ