Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2005, Blaðsíða 5
Varúð Evrópsk verksmiðjuóbyrgð eða ekki? Vegna greinar í Morgunblaðinu 1 l.nóvember s.l.og þeirra skilaboóa sem bilaumboðin hafa látió frá sér fara um verksmiðjuábyrgá á bílum viljum viá aá eftirfarandi komi fram: Samkvæmt lögfræðilegri álitsgerð sem unnin var fyrir okkur kemur skýrt fram í EES samningnum að meginregla samningsins er að hvers konar hömlur á samkeppni séu bannaðar á EES-svæðinu. Þetta bann nær einnig yfir svonefnd einkaumboð, nema miklir hagsmunir neytenda felist í því að veita undanþágu frá því í hverju tilviki. Reglugerð EB 1400/2002 fjallar um hópundanþágu bifvélaframleiðanda og söluaðila þeirra frá þessari meginreglu. Undanþágan er veitt að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, samkvæmt 3. mgr. 81. gr. Rómarsáttmála (sem er sambærileg 3. mgr. 53. gr. EES- samningsins). Algert skilyrði fyrir undanþágunni er að fyrirtækið sem fer með umboð sinni ábyrgðar- og viðhaldsþjónustu neytenda að kostnaðarlausu að sama marki og framleiðandinn er skyldugur til, að það annist endurbætur vegna framleiðslugalla og veiti viðgerðar- og viðhaldsþjónustu sem nauðsynleg er til þess að tryggja að ökutækið gangi rétt og örugglega. Þetta á við án tillits til þess hvar á hinum sameiginlega markaði ökutækið var upphaflega keypt. Reglugerð EB 1400/2002 er ætlað að tryggja að neytenda sé frjálst að kaupa ökutæki sitt hvar sem er á EES-svæðinu og á að sama skapi að tryggja að skylda framleiðanda til þess að bera ábyrgð á vöru sinni hverfi ekki þó ökutækið ferðist milli landa innan svæðisins. Allir aðilar sem eiga í bíla’viðskiptum hér á landi eru hér með minntir á það að með löqum skal land byqqja oq auqlýsinqar sem virðast miða að því að qera eðlileqri samkeppni erfiðaðra fyrir með birtingu misvísandi upplýsinga eru hvorki heiðarlegar né löglegar. Skorað er á ALLA, jafnt umboðin sem aðra sem málið varðar, að fara eftir leikreglunum og virða rétt neytandans. www.sparibill.is Skúlagötu 17 • Sími: 577 3344

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.